Gerðir kirkjuþings - 2001, Blaðsíða 10
fram í boðun fagnaðarerindisins, fræðslu í trú og sið og helga atliöfn og iðkun í þágu
lífsins.
Kosið verður til Kirkjuþings á vori komanda. Ég vænti þess að þá verði gaumur
gefinn að því að jafnrétti kynjanna verði í heiðri haldið, og einnig að ungt fólk verði
kjörið til þings. Við þurfum að vinna að því að Kirkjuþing endurspegli raunverulegt
litróf kirkjunnar og kirkjustarfsins, þar sem konur eru að minnsta kosti til jafhs við
karla í forystu sóknanna og þar sem rödd unga fólksins heyrist. Þjóðkirkjan þarf að
vinna með miklu markvissari hætti að auka vægi hinna ungu í starfi kirkjunnar.
Kirkjuþing unga fólksins var haldið á Kirkjudögum á Jónsmessu. Kirkjuþing unga
fólksins ætti að verða árlegur viðburður. Æskan er ekki aðeins framtíðin. Æskan er
nútíðin. Kirkjan þarf á krafti og atorku hinna ungu að halda, skapandi hugsun og
vakandi vilja og lífsþrótt.
Stefnumótun og innra starf kirkjunnar
Umliðið ár hefur verið unnið að stefnumörkun verkefnaþátta Biskupsstofu.
Biskupsstofa er embættisskrifstofa Biskups íslands og skrifstofa Kirkjuráðs og
Kirkjuþings og gegnir miðlægu hlutverki hvað stjómun og reikningshald varðar, og
stoðþjónustu sjóða og stofnana kirkjunnar. Biskupsstofa er mikilvægt staifstæki
tilsjónar innan biskupsdæmis Islands í andlegum og veraldlegum efnum, til eftirlits.
eflingar, samþættingar og styrktar þjónustu kirkjunnar. I skipulagi og stefnumörkun á
Biskupsstofu er horft til verkefna en ekki embætta. Skilgreind eru verkefni ijármála
og stjómsýslu, ffæðslumála, kærleiksþjónustu, guðfræði og þjóðmála. tónlistar og
helgisiða, upplýsingamála og samkirkjutengsla. Hið nýja skipurit verður lagt fram
með skýrslu Kirkjuráðs.
Viðamestu starfsþættir Biskupsstofu em starfsmannahald og fjármál auk almennrar
skrifstofu er sinnir margvíslegri þjónustu. Starfsmannamál lúta að hinum vígðu
þjónum kirkjunnar, starfsmönnum Biskupsstofu, og kirkjulegra stofnana sem tengjast
henni. Markmið fjámrálasviðs Biskupsstofu er að veita réttar og aðgengilegar
upplýsingar um fjárhagsstöðu og stunda vandaða áætlanagerð og ráðgjöf.
Biskupsstofa annast almennt fyrirsvar vegna Þjóðkirkjunnar og sameiginlegra mála
hennar, samskipti og samstarf við hinar ýmsu stofnanir svo og erlend samskipti.
Biskupsstofa hefur og ftumkvæði að því að hrinda ffamfara og umbótamálum í
ffamkvæmd.
Biskupsstofa veitir margvíslega þjónustu vegna samstarfs annarra kirkjulegra aðila og
starfsemi kirkjulegra stjómvalda. Biskupsstofa veitir sóknum og stofnunum margs
konar stoðþjónustu t.d. í formi ábendinga, ráðgjafar og upplýsingamiðlunar. Loks
annast Biskupsstofa meðferð ágreiningsmála svo sem sáttaumleitan, ráðgjöf og
leiðbeiningar.
I stefnumörkun Biskupsstofu skal lögð megináhersla á eflingu helgihalds,
kærleiksþjónustu og ffæðslu á vettvangi sóknanna, og markvissa boðun og sókn út í
þjóðlífíð. Vinna þarf að eflingu prestsþjónustunnar og auknum stuðningi við starf
sóknanna.
I ffæðslu þarf að leggja áherslu á tengsl við foreldra og heimili, skóla og
menntastofnanir. Umffam annað þurfum við þó að ná til ungs fólks, ekki síst ungra
foreldra af kynslóð sem ef til vill hefur minni tengsl við kirkjuna en þær eldri. Við
þurfum að mæta þessu unga fólki þar sem það er statt en með sístæðan boðskap
6