Gerðir kirkjuþings - 2001, Blaðsíða 43
Allar ákvarðanir um ráðningu nýrra starfsmanna skulu vel ígrundaðar og rökstuddar
og fylgja reglum sem þar um gilda og í sem mestu samræmi við starfsmannaþörf.
Mikilvægt er að það liggi ljóst fyrir þegar auglýst er hvert sé markmiðið með
ráðningunni. Tekið skal tillit til þeirra starfsmanna sem fyrir eru. Liggja skal fyrir
starfslýsing fyrir öll störf sem ráða skal í. Ráðning til reynslu er æskileg þar sem því
verður við komið.
Þegar starfsmaður lætur af störfum skal eftir því sem við verður komið starfið
endurskoðað og metið hvort ráða eigi í það að nýju.
8. Starfsauglýsingar
Þjóðkirkjan telur mikilvægt að þeirri meginreglu sé fylgt að auglýsa laus störf til
umsóknar.
Þjóðkirkjan leggur metnað sinn í að standa vel að gerð auglýsinga, svo sem þess að
jafnréttissjónarmiðum sé framfylgt. Auglýsingar um laus störf eru birtar með a.m.k.
hálfs mánaða umsóknarfresti. Umsóknarfrestur er þó a.m.k. mánuður þegar um er að
ræða prestsembætti.
9. Kynning og fræðsla nýrra starfsmanna
Þjóðkirkjan leggur áherslu á að taka vel á móti nýjum starfsmönnum og að þeim líði
vel í starfi frá byrjun.
Nýir starfsmenn skulu fræddir bæði um almenna starfsemi þeirrar stofnunar sem þeir
eru ráðnir til og almennt um Þjóðkirkjuna, sem og þann hluta starfseminnar sem lýtur
sérstaklega að starfsviði þeirra og um réttindi þeirra og skyldur. Næsti yfirmaður er
ábyrgur fyrir því að nýjum starfsmanni sé veitt slík fræðsla.
10. Starfsþjálfun, símenntun og handleiðsla.
Þjóðkirkjunni vill veita starfsfólki sínu trausta og góða starfsþjálfun, viðhalda og auka
hana með endur- og símenntun og styrkja fólk í starfi með faghandleiðslu eftir því
sem kostur er.
Mikilvægt er að starfsfólki stofnana Þjóðkirkjunnar sé gefinn kostur á að sækja
innlendar og/eða erlendar kynnisferðir, námskeið og ráðstefnur og rækja samstarf við
innlend og erlend starfssystkin eftir því sem kostur er, enda sé þjálfunin markviss og
sýnt að hún muni nýtast í starfínu. Starfsfólk skal leitast við að laga sig að
síbreytilegum kröfum, sem starfið gerir til þeirra, svo sem vegna faglegrar og
tæknilegrar þróunar og vera reiðubúið að þjálfa sig til nýrra og breyttra verkefna.
Þá skal stefnt að því að starfsfólk njóti faglegrar handleiðslu í starfi sínu til að auka
öryggi í starfi og gæði þjónustunnar og að starfsmaður brenni síður út í starfi.
11. Starfsmannaviðtöl
Stefnt skal að því að reglulega skuli fara fram starfsmannaviðtal við starfsfólk
Þjóðkirkjunnar.
Tilgangur með starfsmannaviðtali er að vera vettvangur fyrir gagnkvæmar
upplýsingar yfirmanns og undirmanns, til að styðja og styrkja starfsmann í starfi hans
og skapa ánægjulegra starf.
39