Gerðir kirkjuþings - 2001, Blaðsíða 18
Á undanfömum Kirkjuþingum höfum við unnið að því að setja kirkjunni þær
starfsreglur, sem við höfum talið nauðsynlegastar til að móta og styrkja stöðu og
starfsramma hennar með þeim hætti. Síðast starfsreglur um Kirkjuráð á síðasta þingi.
Nú hljótum við því að beina sjónum í ríkara mæli að því að marka stefnu og styðja
starfslið kirkjunnar og söfnuði hennar með öðrum þeim hætti, sem tök eru á, til að
vinna að því að byggja upp betra samfélag innan kirkjunnar og þjóðfélagsins.
Eftirminnilega hefur verið minnt á, að þegar ná skal árangri, þarf að taka höndum
saman.
"Þú litla þjóð, sem átt í vök að verjast.
O vertu ei við sjálfa þig að berjast".
Þau sannindi gilda reyndar jafnt, hvort sem þjóðin er stór eða smá, hvort sem margir
eða fáir koma að verki. Islenska þjóðin hefur því aðeins styrk til að efla frið í
heiminum, að þjóðin leggi sig sjálf fram við að vinna með þeim hætti. Boðskapur
kirkjunnar er friðarboðskapur og þjóðin þarf því sannarlega á því að halda að sá
boðskapur móti orð hennar og gjörðir.
Á síðasta ári var minnst 1000 ára kristni á landi hér og rifjuð upp saga þess tíma. Eitt
skeið þeirrar sögu fékk nafnið friðaröld, þegar kirkjan hafði nægan styrk til að móta
slíkt samfélag. Við vinnu að framgangi allra góðra verka hlýtur kirkjan og sérhver
einstaklingur að leita samherja en ekki óvina Þar gildir það sama, hvort sem ætlunin
er að vinna að friði nær og fjær eða heill og hamingju íslenskrar æsku að hverju öðru
góðu máli, sem leggja ber lið.
Því biðjum við þess, að í öllum okkar hugsunum, orðum og gjörðum berum við gæfu
til þess að "sátt og eining semji ég, en sundrung aldrei veki".
14