Gerðir kirkjuþings - 2001, Blaðsíða 52
sé keypt af Kirkjuráði og færð í eignasafn þess, þar sem fyrir eru eignir eins og
Skálholt, Langamýri ofl.
í leigu eru Bergþórshvoll I, en prestssetur hefur verið lagt þar af. Einnig er í leigu
Vatnsfjörður og Asar í Skaftártungu, svo og Bólstaður í Svartárdal, en heimild er til
sölu þess húss og hefur verið unnið að því en lítið verð fæst fyrir húsið og hefur verið
hik á þeim kaupanda sem átti hæsta tilboð og salan ekki náð ffam. Þá er prestssetrið í
Grindavík í leigu, en á móti er leigð íbúð fyrir afleysingarprest, þar sem
sóknarpresturinn er í leyfi.
Ekki er hægt að ljúka þessari skýrslu án þess að minnast á leigu og haldsbréf. Eitt af
verkum stjómar var að endurskoða leigu þ.e. afgjald prestssetra. Tók ný
afgjaldsupphæð gildi ffá og með 1. júní sl. og má segja að afgjaldið hafi nánast staðið
í stað eða jafnvel lækkað, en þar munaði mest um lækkun fasteignagjalda
sveitarfélaganna. Þá er einnig ánægjulegt að upplýsa að nú hafa náðst samningar við
svo til alla presta um haldsbréf og er einungis eftir að ganga formlega frá þeim
málum, er vonast til að það náist alveg á næstu vikum. Eimúg var gengið ffá
haldsbréfi við einn af þremur prestum sem eru á elstu samningunum og mun þeim
tveimur sem þar eru eftir vera boðið sömu kjör.
Mikil umræða hefur orðið varðandi ráðstöfun á greiðslumarki sauðfjár á
prestssetursjörðum og var ætlun stjórnarinnar að leggja fyrir Kirkjuþing tillögur að
vinnureglum um hvemig skuli fara með og ráðstafa greiðslumarkinu. Leitað var
samráðs við Prestafélag Islands sem stéttarfélags presta varðandi þessar reglur og var
einn fundur haldinn með fulltrúum þeirra og stjórn Prestssetrasjóðs og verður þeiiri
vinnu haldið áfram. Því miður eru ekki neinar tillögur um málið ífá Prestssetrasjóði,
enda telur sjóðstjóm sig hafa umboð innan núverandi starfsreglna. til að ráðstafa
þessum réttindum. En það verður ekki gert án víðtækrar samstöðu við presta og því
var farin ofangreind leið og leitað til Prestafélagsins. Landbúnaðarmálin sjálf eru hins
vegar í mikilli deiglu og ríkir þar nokkur óvissa. Einnig eðlilegt að samningar við
ríkið um prestssetrin fái einhvem endi áður en teknar em bindandi ákvarðanir um
þessi mál.
Varðandi fjárhagsstöðu þá er þess að geta að tekjur sjóðsins duga rétt fyrir almemiu
viðhaldi og rekstri hans en ekki á neinn hátt til kaupa eða bygginga á nýjum
bústöðum, eða til að kaupa upp eldri framkvæmdir á jörðum. Ljóst er að
lausaijárvandi sjóðsins hefur vaxið á þessu ári og er ástæða til að ítreka það sem sagt
hefur verið í síðustu skýrslum, um að full þörf sé á ffamlagi frá “eigendum” sjóðsins
til þess að sjóðurinn geti staðið við þær skyldur sem honum eru faldar.
Að tillögu fjárhagsnefndar samþykkti Kirkjuþing eftirfarandi
ÁLYKTUN
A. Um reikninga og eignir
Kirkjuþing samþykkir endurskoðaðan ársreikning prestssetrasjóðs fyrir árið 2000.
Kirkjuþing samþykkir meðfylgjandi endurskoðaða fjárhagsáætlun prestssetrasjóðs
fyrir árið 2002.
48