Gerðir kirkjuþings - 2001, Blaðsíða 75
Skipulagsskrá fyrir Kirkjumiðstöðina við Vestmannsvatn í Aðaldal S- Þing.
12. mál, flutt af Pétri Þórarinssyni
1. gr.
Stofnunin heitir Kirkjumiðstöðin við Vestmannsvatn. Hún er sjálfseignarstofnun og
rekur á eigin ábyrgð kirkjumiðstöð fyrir ýmsa starfsemi á vegum Þjóðkirkjunnar svo
sem sumarbúðir ungmenna, mót, námskeið og orlofsdvalir.
Stofnunin yfirtók og eignaðist eignir ÆSK við Vestmannsvatn samkvæmt gjafaafsali
dagsett 23. mars 1992.
Eignir þessar voru afhentar skuldlausar og án allra kvaða.
Stofnfé stofnunarinnar var það húsnæði sem eigninni fylgdu.
2. gr.
Starfsemi Kirkjumiðstöðvarinnar miðar að eflingu kirkjulegs starfs og aukinni
samvinnu safnaðanna, þannig að þeir fái betur rækt hlutverk sitt við boðun
fagnaðarerindisins og þjónustu við samfélagið.
Markmiði þessu hyggst stofnunin ná með því að starfrækja kirkjumiðstöð.
3. gr.
Tekjur Kirkjumiðstöðvarinnar eru framlög einstaklinga, héraðssjóða, félaga og stofnana,
svo og tekjur af eigin starfsemi.
4. gr.
I stjórn stofnunarinnar eru 3 menn og 3 til vara.
Héraðsfundur Þingeyjarprófastsdæmis kýs einn stjórnarmann og einn til vara.
Héraðsfundur Eyjafjarðarprófastsdæmis kýs einn stjórnarmann og einn til vara.
Kirkjuráð skipar einn stjórnarmann og einn til vara.
Héraðsfundur Þingeyjarprófastsdæmis kýs einn skoðunarmann reikninga og einn til
vara.
Héraðsfundur Eyjaíjarðarprófastsdæmis. kýs einn skoðunarmann reikninga og einn til
vara.
Kjörtímabil stjórnar og skoðunarmanna eru tvö ár, og heimilt er að endurkjósa sama
einstaklinginn eins oft og vilji er til.
Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum.
Eftir fyrsta árið skal einn stjórnarmaður dreginn úr á fyrsta fundi nýbyrjaðs árs, og
skal þá viðkomandi héraðsfundur eða Kirkjuráð kjósa sér stjórnarmann og varamann
hans til setu næstu tvö ár. Þannig er kosið um einn stjórnarmann og varamann hans
annað hvort ár og tvo stjórnarmenn og varamenn þeirra hitt árið.
5. gr.
Stjórnin annast rekstur og uppbyggingu Kirkjumiðstöðvarinnar.
Heimilt er stjórninni að ráða sér framkvæmdarstjóra, ef þurfa þykir, og starfar hann þá
undir stjórn og á ábyrgð hennar.
Stjórnin skal árlega skila ársskýrslu, sem lögð skal fyrir héraðsfundi Þingeyjar- og
Eyjafjarðarprófastsdæma, svo og fyrir Kirkjuráð.
Með ársskýrslunni skulu fylgja skoðaðir og áritaðir ársreikningar, svo og rekstrar- og
framkvæmdaráætlun.
Reikningsár stofnunarinnar er almanaksárið.
71