Gerðir kirkjuþings - 2001, Blaðsíða 28
Fjármál Þjóðkirkjunnar
Að venju er gerð grein fyrir fjármálum Þjóðkirkjunnar. Þau nýmæli eru tekin hér upp
að dreifa öllum ársreikningum stofnana og sjóða til Kirkjuþingsfulltrúa en hluti þeirra
hefur einungis legið ffamrni á Kirkjuþingi.
Tillaga að starfsreglum um breyting á starfsreglum um rekstrarkostnað
prestsembætta og prófasta nr. 819/1999
Um er að ræða endurskoðun á akstursgreiðslum og ferðakostnaði. Er leitast við að
mæta raunverulegum aðstæðum hvers prestakalls í stað þess að allir fái sömu
greiðslur óháð aðstæðum í prestakallinu.
Tillaga að starfsmannastefnu Þjóðkirkjunnar
Starfshópur á vegum Kirkjuráðs hefur unnið að málinu. Er mótun stefnu af þessu tagi
grundvöllur þess að unnt sé að setja starfsreglur um starfsmenn Þjóðkirkjunnar. Um er
að ræða heildarstefnu fyrir stofnanir Þjóðkirkjunnar, en síðan er gert ráð fyrir að hver
stofnun setji sér starfsmannastefnu í samræmi við starfsemina.
Tillaga að starfsreglum um breyting á starfsreglum um sóknarnefndir nr.
732/1998
Kirkjuráð leggur til að við kaup á dýrari hljóðfærum svo sem orgelum sé það kynnt
ráðinu með sama hætti og þegar um meiriháttar framkvæmdir er að ræða. Væntanlega
mun orgelnefnd fá skýrara hlutverk ráðgjafa og umsagnaraðila um slík kaup, en ekki
þykja efni til að setja sérstakar starfsreglur um nefndina í heild sinni.
Tillaga að reglugerð frá Kirkjuráði um ábyrgðardeild Jöfnunarsjóðs sókna og
Lagafrumvarp frá Kirkjuráði um sameiningu kirkjubyggingasjóðs sbr. 1. nr.
21/1981, við Jöfnunarsjóð sókna sbr. 1. nr. 91/1987 (vegna myndunar
ábyrgðardeildar í Jöfnunarsjóði)
Mál þessi varða stofnun ábyrgðardeildar í Jöfnunarsjóði sókna. Lagt er til að sett verði
reglugerð um málsmeðferð og skilyrði ábyrgða, svo og að Kirkjubyggingasjóður falli
niður og eignir hans renni til ábyrgðardeildarinnar.
Onnur þingmál
Frumvarp til laga um breytingu á skipun sóknarpresta
Dóms - og kirkjumálaráðherra leggur fram frumvarp til laga um breyting á lögum um
stöðu, stjórn og starfshætti Þjóðkirkjunnar nr. 78/1997 (skipun.sóknarpresta). Málið
var til umljöllunar á síðasta Kirkjuþingi og hefur verið kynnt og umsagna aflað skv.
ákvörðun Kirkjuþings. Umsagnirnar fylgja.
Frumvarp um breyting á lögum um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu nr.
37/1993
Ráðherra hefur boðað að frumvarp þetta verði lagt fram til umfjöllunar á Kirkjuþingi.
Tillaga að starfsreglum um breyting á starfsreglum um skipan sókna,
prestakalla og prófastsdæma nr. 731/1998
Biskupafundur leggur mál þetta fram. Um er að ræða stofnun Lindasóknar og
Lindaprestakalls í Reykjavíkurprófastsdæmi eystra, myndun Vestfjarðaprófastsdæmis
með sameiningu Barðastrandar - og Isafjarðarprófastsdæma, sameiningu
Arnesprestakalls og Hólmavíkurprestakalls, Húnavatnsprófastsdæmi o. fl.
Prestssetranefnd
Prestssetranefnd leggur fram skýrslu um stöðu mála og vísast til þess máls.
24