Gerðir kirkjuþings - 2001, Blaðsíða 16
Ég átti því láni að fagna nýverið að geta tekið á móti starfsbróður mínurn, Johannes
Lebech kirkjumálaráðherra frá Danmörku, og eiga við hann gagnlegar viðræður um
kirkjuleg málefni. Afskipti ríkisvaldsins í Danmörku af kirkjumálum eru langtum
meiri en hér á landi, eins og mörgum ykkar er kunnugt, og taldi Lebech að margt
athyglisvert væri í skipulagi íslensku Þjóðkirkjunnar. sem hann taldi að Danir gætu
sótt sér fyrirmynd til. Athyglisvert þótti mér að heyra hann lýsa forundirbúningi bama
að fermingu í Danmörku, en þar eru börn 9-10 ára vanin við kirkjusókn og látin taka
þátt í ýmiss konar kirkjustarfi fram að hinni venjulegu fermingu. Þjóðkirkjan ætti að
gaumgæfa, hafi hún ekki þegar gert það, hvort heppilegt gæti verið að taka upp svipað
fyrirkomulag hér á landi. Það vakti sérstaka athygli rnína í máli ráðherrans að í
Danmörku ijölgar stöðugt trúfélögmn vegna innstreymis af fólki frá öðrum
heimshlutum og þar eru nú til að mynda 18 trúfélög múslima. Við upplifum hér á
þessum tímum svipaða reynslu, þótt í minni mæli sé, sökum ijölgunar fólks sem
upprunnið er í öðrum samfélögum. Það reynir að sinna trúarþörf sinni með stofnun
trúfélaga í anda þeirrar trúarbragða sem fólkið er alið upp við. Nýjasta dæmið er til
dæmis trúfélag fólks sem alið er upp í rétttrúnaðarkirkjunni. Okkur ber að virða rétt
manna til þess að ástunda sín trúarbrögð og sýna þessari þróun umburðarlyndi.
Fjölmenningarsamfélög nútímans eru samfélög íjölbreyttra trúarbragða.
Þá þykir mér rétt að gera grein fyrir stöðunni á máli viðræðna sem staðið hafa vfir á
milli viðræðunefndar Þjóðkirkjunnar annars vegar og viðræðunefndar ríkisins hins
vegar um prestssetur og prestssetursjarðir. Nefndir beggja aðila hafa komið saman
reglubundið og unnið vel saman og farið yfir þau gögn sem fyrir liggja um
prestssetur. Mikil vinna var í því fólgin að fara yfir gögnin og ég er þakklát fyrir þá
miklu vinnu sem fulltrúar viðræðunefndar Þjóðkirkjunnar lögðu að mörkurn í því
sambandi. Heita má að tæknilegum þætti málsins sé lokið, og af ríkisins hálfu hafa
verið tekin saman drög að væntanlegu samkomulagi milli íslenska ríkisins og
Þjóðkirkjunnar um prestsetur og afhendingu þeirra til Þjóðkirkjunnar. Einungis er eftir
að ákveða hvaða ijárhæð skuli greidd til Kirkjumálasjóðs Þjóðkirkjunnar og með
hvaða hætti sú ijárhæð skuli greidd. Ég tel orðið skammt í að unnt verði að ljúka
málinu, og vona að svo geti orðið sem fyrst, því mér er ljóst að það þoli ekki mikla
bið að leyst verði úr fjárhagsvanda Prestssetrasjóðs.
Góðir þingfulltrúar, ég vil þakka biskupi Islands, Kirkjuþingi og kirkjunni allri fyrir
góða samvinnu á liðnum árum. Ég vil ljúka máli mínu með því að árna Kirkjuþingi
allra heilla og velfarnaðar við vandasöm störf og óska þess um leið að störf þess verði
kirkju og söfnuðum landsins til blessunar um ókomna tíð.
12