Gerðir kirkjuþings - 2001, Blaðsíða 26
Þingvellir (19. mál)
Kirkjuráð sendi Þingvallanefhd samþykkt Kirkjuþings um að á Þingvöllum verði
áfram prestssetur. Enn fremur var dóms -og kirkjumálaráðherra kynnt samþykkt
Kirkjuþings vegna brottfalls 51. gr. laga nr. 78/1997 (skipun Þingvallaprests).
Prestssetranefnd hefur haft málefni Þingvalla til umfjöllunar að öðru leyti og vísast til
þess máls hér á Kirkjuþingi.
Ábyrgðir á vegum Jöfnunarsjóðs sókna (35. mál Kirkjuþings 1999) (20. mál)
Kirkjuráð hefur undirbúið formlega stofnun ábyrgðardeildar í Jöfnunarsjóði sókna og
verða drög að reglugerð um ábyrgðardeildina lögð fram sem sér mál (15. mál). Liður í
stofnun ábyrgðardeildar er að leggja niður Kirkjubyggingasjóð sem starfar skv. lögum
nr. 21/1981 og ráðstafa eignum hans til ábyrgðardeildarinnar. Frumvarp um
niðurlagningu sjóðsins er jafnffamt lagt fram á þinginu (16. mál).
Starfsreglur um breyting og viðbót við starfsreglur um Kirkjuþing nr. 729/1998.
(22. mál)
Breytingartillaga þessi fjallar m.a. um kosti og galla þess að Kirkjuþing starfi í
tveimur lotum. Forseti Kirkjuþings og Kirkjuráð hafa tekið saman álitsgerð um málið
sem fylgir skýrslu þessari. Varðandi seinni ályktunina í 22. máli, um þingsköp, vísast
til umfjöllunar um mál þau er vísað var til forseta Kirkjuþings (sjá síðar).
Þingályktun um kosningu starfsnefndar til að gera tillögu til Kirkjuþings 2001
um skipurit fyrir störf á skrifstofu Þjóðkirkjunnar. (25. mál)
Það athugist að í Gerðurn Kirkjuþings, ályktun 25. máls, er villa. Rétt ályktun hljóðar
svo: “Kirkjuþing samþykkir að Kirkjuráð leggi fyrir Kirkjuþing 2001 skipurit fyrir
skrifstofu Kirkjuráðs/Kirkjuþings og biskups með hliðsjón af hver séu stjórnvöld
kirkjunnar og hver sé ábyrgð þeirra í nýrri stjórnskipan Þjóðkirkjumiar."
Kirkjuráð hefur fjallað um málið og samþykkti fyrir sitt leyti nýtt skipurit fyrir
Biskupsstofu sem tók gildi 1. mars s.l. Skipuritið var unnið af biskupi og stjórnendmn
á Biskupsstofu og í samráði við Kirkjuráðsmenn. Skv. því skiptist Biskupsstofa í
skrifstofu Biskups íslands annars vegar og skrifstofu Kirkjuráðs hins vegar. Heitið
Biskupsstofa er notað sem heildarheiti enda bundið í lögum.
Auk Þjóðkirkjulöggjafar, starfsreglna Kirkjuþings og markaðrar stefnu þingsins hefur
verið litið til skipurita norrænna kirkna og ýmissa opinberra stofnana hérlendis. Lögð
er áhersla á að hér er um skipurit verkefna og ábyrgðarsviða að ræða - ekki
einstaklinga eða starfa.
Kirkjuráð hefur leitað álits dr. Runólfs Smára Steinþórssonar, dósents í viðskipta- og
hagfræðideild Háskóla íslands, á þessum skipulagsmálum. Að fengnu áliti dr. Runólfs
Smára munu biskup og Kirkjuráð meta hvort skipuritið þarfnist endurskoðunar.
TiIIaga að starfsreglum um breyting á starfsreglum um presta nr. 735/1998 og
ályktun. (26. mál)
Málið varðar ályktun um viðbótarþóknun eða laun til sóknarpresta við sameiningu
prestakalla. Kirkjuráð sendi bréf til kjaranefndar um það efni og lagði til við nefndina
að 20% álag bætist ofan á grunnlaun sóknarprests sem tekur við þjónustu í sameinuðu
prestakalli 1. janúar 2000 eða síðar. Kjaranefnd úrskurðaði að greiða skyldi
sóknarprestum skv. framanskráðu 20% viðbótarlaun frá 1. janúar 2000 sem miðast við
grunnlaunin og jafngildir það 12 einingum. Ákvörðun þessi hefur þegar komið til
framkvæmda. Þessar viðbótargreiðslur falla niður við lok skipunartíma hlutaðeigandi
sóknarprests.
22