Gerðir kirkjuþings - 2001, Page 27
Tillaga til þingsályktunar um sögu biskupsstólanna (29. mál)
Greinargerð undirbúningsnefndar til Kirkjuþings 2001 liggur fyrir (sjá fylgiskjal nr.
20). Sótt hefur verið um fjárstyrk í Kristnihátíðarsjóð og er beðið úrlausnar
sjóðsstjómar.
Mál sem vísað var til biskupafundar.
Stefnumörkun um framtíðarskipan sókna, prestakalla og prófastsdæma (5. mál).
Kirkjuráð gaf út í tengslum við Kirkjudaga á Jónsmessu 2001, bækling um
stefnumörkun þessa, sem einnig var send út til prófasta. Um leið var hvatt til umræðu
um skipulagsmál í prófastsdæmunum. Sameining sókna og breytingar á skipan
prestakalla og prófastsdæma er verkefni sem á stöðugt að vera í þróun. Mikilvægt er
að sem víðtækust samstaða náist urn tillögur að breytingum.
Starfsreglur um breyting á starfsreglum um skipan sókna, prestakalla og
prófastsdæma (6. mál)
Biskupafundur hefur unnið að tillögum um breytingar á skipan sókna, prestakalla og
prófastsdæma og eru þær lagðar fram á Kirkjuþingi 2001 í 3. máli.
Starfsreglur um biskupafund (9. mál)
Málið varðar breytta tilhögun við val á prestum þannig að biskupafundur velji presta.
Málinu var vísað til biskupafundar og til nefndar um val á prestum (sbr. 33. mál).
Nefndin er að störfum.
Mál sem ekki hafa verið leidd til lykta
Starfsreglur um vígslubiskupa (10. mál)
a) Múla - og AustJJarðaprófastsdœmi tilheyri umdœmi vígslubiskups á Hólum.
Umsagnir héraðsfunda hafa ekki allar borist þegar þetta er ritað og er því ekki unnt að
ganga frá tillögu fyrr en síðar.
b) Kjalarnesprófastsdœmi, Reykjavíkurprófastsdæmi eystra og vestra lúti tilsjón
dómprófasts.
Tillagan hefur fengið dræmar viðtökur héraðsfunda og þykja því ekki efni til að vinna
frekari tillögur um þetta mál.
Pílagrímaprestur (30. mál)
Málið hefur verið til umfjöllunar á biskupafundi, sem óskað hefur eftir
fjárhagsstuðningi hjá Kirkjuráði. Málið er í vinnslu.
Mál sem vísað var til forseta Kirkjuþings
Seta Kirkjuþings í tvæimur lotum
Aður hefur verið vikið að álitsgerð um setu Kirkjuþings í tveimur lotum.
Tillögur um breyttan ræðutíma
Forseta var falið ásamt formönnum nefnda Kirkjuþings að gera tillögur um breyttan
ræðutíma. Forseti gerir grein fyrir niðurstöðum um það mál á Kirkjuþinginu.
III. Mál lögð fram á Kirkjuþingi 2001
Skýrsla Kirkjuráðs ásamt greinargerðum, skýrslum og öðrum íylgigögnum.
Lagt er fram yfirlit yfir sjóði og stofnanir kirkjunnar með skýrslunni.
23