Gerðir kirkjuþings - 2001, Side 29

Gerðir kirkjuþings - 2001, Side 29
Þingmannamál Þá er ljóst að þingmannamál verða lögð fyrir Kirkjuþing eins og fram kemur í málaskrá þingsins. IV. Stofnanir á vegum Kirkjuráðs Skálholt og Skálhoitsskóli Kirkjuráð samþykkti að ráðast í viðbyggingu við Skálholtsskóla með 8 herbergjum. Framkvæmdastjóri Kirkjuráðs, ásamt vígslubiskupi og rektor mynda bygginganefnd. Undirbúningur að verklegum ffamkvæmdum stendur yfir og er lagt allt kapp á að vanda hann sem best. Framkvæmdasýsla ríkisins mun annast um verklega framkvæmd og verður verkið boðið út. Nú er gert ráð fyrir að framkvæmdir geti hafist á vormánuðum 2002. Rektor Skálholtsskóla sr. Kristján Valur Ingólfsson sagði starfi sínu lausu þegar leyfi hans frá skólanum lauk. Dr. Pétur Pétursson sem leysti Kristján af lét af starfi rektors frá sama tíma. Kirkjuráð réð sr. Bernharð Guðmundsson sem rektor Skálholtsskóla frá og með 1. ágúst 2001. Við rektorsskiptin var ákveðið að taka skólann út þ.e. fjármál, verkefnastöðu o. fl. í ljós kom að í rúml. 4 millj. kr. halla stefndi og hefur verið brugðist við því. Að öðru leyti vísast í skýrslur í fskj. um málefni Skálholtsstaðar og Skálholtsskóla. Löngumýri Lengi hefur staðið til að rífa gamla skólahúsið á Löngumýri. Um árabil hefur fé verið lagt til hliðar í væntanlega nýbyggingu í stað hins eldra. Kirkjuráð og Löngumýrarnefnd hafa rætt um hvernig best sé að standa að nýbyggingu í stað hins eldra. Fjármagn til framkvæmdanna er um 32 millj. kr., þ.e. annars vegar byggingarsjóður skv. framansögðu sem er um 22 millj. kr. og hins vegar vilyrði um framlag úr Jöfnunarsjóði sókna að fjárhæð 10 millj. kr. Lögð var veruleg vinna í greiningu þarfa og samráð haft við bygginga -og listanefnd. Fengnir voru arkitektar til að teikna nýja tengibyggingu. Vinna við hönnun stendur enn yfir og verður verkið boðið út skv. reglum um opinberar framkvæmdir. Nýjar stjórnir stofnana skv. nýjum starfsreglum og nýir forstöðumenn Kirkjuráð hefur skipað stjórnir Leikmannaskólans, Tónskólans og Fjölskylduþjónustu kirkjunnar, sbr. starfsreglur sem settar voru á síðasta Kirkjuþingi. Haukur Guðlaugsson söngmálastjóri lét at störfum á árinu, eins og kunnugt er, eftir áratuga farsælt starf. Stjórn Tónskólans ákvað að ráða Kristin Örn Kristinsson tónlistarkennara sem forstöðumann Tónskólans og framkvæmdastjóra stjómar til eins árs, meðan stefnumótun fer fram. Þorvaldur Karl Helgason biskupsritari lét af störfum sem forstöðumaður Fjölskylduþjónustu kirkjunnar. Starfsfólk stofnunarinnar skiptist nú á um að sinna daglegri stjórn stofnunarinnar til tveggja ára í senn. Skýrslur stofnana og önnur gögn eru lögð fram sem fylgiskjöl með skýrslu þessari en í í 5. gr. starfsreglna um Kirkjuráð nr. 817/2000 segir: "Kirkjuráð skal gera grein fyrir helstu ákvörðunum sínum og starfsemi frá síðasta Kirkjuþingi hverju sinni, sbr. starfsreglur um Kirkjuþing. Með skýrslu Kirkjuráðs skulu fýlgja skýrslur kirkjulegra stofnana og stjórna sem heyra undir ráðið eða Kirkjuþing óskar eftir. Einnig skal leggja fram heildaryfírlit yfir íjármál Þjóðkirkjunnar og fjárhagsstöðu sjóða og verkefna. Skylt er að leggja fram í þingnefndum hverjar þær upplýsingar sem óskað er eftir á þingfundi eða í nefndum, 25
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Gerðir kirkjuþings

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.