Gerðir kirkjuþings - 2001, Side 44
Hverfi fastráðinn starfsmaður frá starfi á vegum Þjóðkirkjunnar skal hann kvaddur og
honum þakkað fyrir starf hans í þágu kirkjunnar. Tekið skal starfslokaviðtal við
fastráðinn starfsmann þegar hann lætur af starfi. Slíkt viðtal gefur tækifæri til að draga
lærdóm af ábendingum starfsmannsins um það sem betur má fara í starfstilhögun.
stjómun, o.fl.
12. Launamál og orlof
Þjóðkirkjan vill búa starfsfólki sínu góð launakjör, starfsskilyrði svo að hún geti ráðið
til sín og haldið hæfu starfsfólki.
Stefnt verði að því launakerfið sé hvetjandi fyrir starfsmenn Þjóðkirkjunnar. Laun
starfsmanna skulu vera í samræmi við hæfni, ábyrgð og frammistöðu.
Starfsfólk skal skipuleggja orlof sitt í samráði við yfírmann og/eða nánustu
samstarfsmenn, helst eigi síðar en fyrir lok mars ár hvert.
13. Siðareglur og starfsagi
Þjóðkirkjan ætlast til að starfsfólk hennar sýni kirkjunni fulla virðingu og gæti þess að
orð og athæfi samrýmist starfinu sem það gegnir.
Starfsfólki ber að hlíta lögmætum fyrirmælum yfirboðara síns, sýna heiðarleik,
trúmennsku og vandvirkni og gæta þagmælsku um hvað eina sem það verður áskynja
í starfi.
Starfsfólki ber að fara eftir stjórnsýslulögum og sérstökum siðareglum eins og þær eru
hverju sinni.
Starfsfólki er óheimilt að þiggja greiðslur eða annan viðurgjöming sem túlka má sem
greiðslur fyrir greiða.
Starfsfólki ber að fá leyfi yfrrmanns til að stunda launuð aukastörf.
Þjóðkirkjan vill veita starfsfólki leiðbeiningar og aðstoð við að vinna úr vandamálum
sem hamlað geta því í starfi svo sem þeim er tengjast misnotkun áfengis og vímuefna.
Ef misbrestur verður á að því, að starfsmaður Þjóðkirkjunnar uppfylli þau skilyrði
sem lög og reglur setja honum, þarf starfsmaður að vera reiðubúinn til að bæta ráð
sitt.
14. Starfsaðstaða og starfsumhverfi
Þjóðkirkjan leitast við að tryggja starfsmönnum sínum gott starfsumhverfi sem
fullnægir ströngustu kröfum um öryggi og hollustu.
Hverjum starfsmanni skal látin í té aðstaða sem gerir honum kleift að sinna starfi sínu
sem best og skal næsti yfirmaður meta þörf hvers starfsmanns fyrir starfsaðstöðu, s.s.
húsrými, tækjakost o.s.frv. Taka skal sérstakt tillit til fatlaðra starfsmanna svo og
þeirra sem eiga við sjúkleika að stríða.
Starfsmenn bera sjálfir ábyrgð á að fylgja þeim kröfum sem gerðar eru til þeirra um
aðgætni í starfi og leggja þannig fram mikilvægan skerf til aukins starfsöryggis.
40