Gerðir kirkjuþings - 2001, Page 48
Þjóðkirkjan vill leitast við að búa starfsfólki sínu aðstæður til að samræma þær
skyldur sem starfið og fjölskyldan leggja þeim á herðar. Starfsmönnum skal gefnm
kostur á tímabundinni lækkun á starfshlutfalli og sveigjanlegum vinnutíma vegna
íjölskylduábyrgðar, eftir því sem kjarasamningar og aðstæður leyfa og án þess að það
hafi áhrif á starfsframa þeirra.
6. Ólaunaðir starfsmenn
Mikill hluti starfsmanna kirkjunnar gegnir ólaunuðu starfi, það á jafnt við í hinum
dreifðu byggðum landsins sem í þéttbýli. Þjóðkirkjan metur framlag þeiiTa mikils.
Búa þarf þeim góð starfsskilyrði eins og öðrum. Tilsjónarmenn með kirkjustarfi skulu
gæta þess að störf þeirra séu metin að verðleikum.
7. Ráðning og starfsmannaþörf
Þjóðkirkjan vill ráða til sín og hafa í þjónustu sinni hæft starfsfólk. Búið skal svo um
hnútana að það þyki eftirsóknarvert að starfa hjá Þjóðkirkjunni, vegna vinnubragða,
starfsaðstöðu og starfsanda sem þar er.
Allar ákvarðanir um ráðningu nýrra starfsmanna skulu vel ígrundaðar og rökstuddar
og fýlgja reglum sem þar um gilda. Liggja skal fyrir starfslýsing fyrir öll störf sem
ráða skal í. Ráðning til reynslu er æskileg þar sem því verður við komið.
Þegar launaður starfsmaður lætur af störfum skal eftir því sem við verður komið
starfið endurskoðað og metið hvort ráða eigi í það að nýju.
8. Starfsauglýsingar
Þjóðkirkjan telur mikilvægt að þeirri meginreglu sé fylgt að auglýsa laus störf til
umsóknar. Auglýsingar um laus störf eru birtar með a.m.k. hálfs mánaða
umsóknarfresti. Umsóknarffestur er þó a.m.k. mánuður þegar um er að ræða
prestsembætti.
9. Kynning og fræðsla nýrra starfsmanna
Nýir starfsmenn skulu ífæddir bæði um almenna starfsemi þeirrar stofnunar sem þeir
eru ráðnir til og almennt um Þjóðkirkjuna, sem og þann hluta starfseminnai- sem lýtur
sérstaklega að starfsviði þeirra og um réttindi þeirra og skyldur.
10. Starfsþjálfun, símenntun og handleiðsla.
Þjóðkirkjan vill veita starfsfólki sínu trausta og góða starfsþjálfun, viðhalda og auka
hana með endur- og símenntun og styrkja fólk í starfi með faghandleiðslu eftir því
sem kostur er.
11. Starfsmannaviðtöl
Stefnt skal að því að reglulega skuli fara fram starfsmannaviðtal við starfsfólk
Þjóðkirkjunnar. Tilgangur með starfsmannaviðtali er að vera vettvangur fyrir
gagnkvæmar upplýsingar til að styðja og styrkja starfsmann í starfi hans og skapa
ánægjulegra starfsumhverfi.
Hverfi starfsmaður frá starfi á vegum Þjóðkirkjunnar skal hann kvaddur og honum
þakkað fyrir starf hans í þágu kirkjunnar. Tekið skal starfslokaviðtal við launaðan
starfsmann þegar hann lætur af starfi.
44