Gerðir kirkjuþings - 2001, Page 57

Gerðir kirkjuþings - 2001, Page 57
1. kafli. Prestssetur Við gerð samnings milli ríkis og kirkju um réttar- og eignarstöðu prestssetra eru eftirfarandi áhersluatriði sett fram, sem væntanlegt samkomulag þarf að ná til: 1. Viðurkenning á eignar- og réttarstöðu prestssetra eins og lagður er grunnur að í álitsgerð kirkjueignanefndar frá 1984 og staðfest var með kirkjujarða- samkomulaginu 1997 og samþykkt var á Kirkjuþingi og Alþingi sama ár. í ijórðu grein þess samkomulags segir: " Aðilar líta á samkomulagþetta um eignaafhendingu og skuldbindingu sem fullnaðar uppgjör þeirra vegna þeirra verðmæta sem ríkissjóður tók við árið 1907. " Þá voru ríkinu afhentar til eignar á móti ákveðinni skuldbindingu "kirkjujarðir og aðrar kirkjueignir sem þeim fylgja, að frátöldum prestssetrum ogþvísemþeim fylgir." (l.gr.) I lögum um prestssetur nr. 137/1993 og í athugasemdum með því frumvarpi til laga er ekki kveðið á um eignarhald prestssetranna. Þau lög geta því ekki breytt eignarstöðu prestssetra miðað við lögin 1907, enda sérstaklega tekið fram í kirkjujarðasamkomulaginu 1997, sem var gert fjórum árum síðar, að það væri fullnaðar uppgjör vegna verðmæta sem ríkissjóður tók við 1907, að frátöldum prestssetrum og því sem þeim fylgir. Um prestssetrin og það sem þeim fylgdi, þ.e.a.s. ítök, hlunnindi, hjáleigur, nýbýli og önnur réttindi þeirra hefur Þjóðkirkjan ekki enn gert neitt samkomulag við íslenska ríkið. Hljóta þau því að vera enn eign Þjóðkirkjunnar með því sem þeim fylgdi og taka mið af árinu 1907 eins og kirkjujarðasamkomulagið gerði, nema þær hafi verið seldar eða afhentar í samræmi við ákvæði laga hverju sinni. Kemur þá til uppgjörs vegna þessara seldu prestssetra eða hluta þeirra, þegar gengið verður frá samkomulagi milli íslenska ríkisins og Þjóðkirkjunnar vegna þeirra.. Með lögum nr. 46/1907 og 50/ 1907 tók ríkissjóður ábyrgð á þeim hluta eignasamsteypu kirkjunnar, sem kölluðust kirkjujarðir og voru óskoruð eign einstakra lénskirkna og bændakirkna. Af arði og afgjaldi þessara jarða höfðu prestsembættin um aldir haft framfærslu sína að stærstu leyti. Undanskildar í þessum lögum voru m.a. prestssetursjarðirnar. Þær voru í sameiginlegri umsjón kirkjumálaráðuneytis, biskups og viðkomandi prófasts og sóknarprests. Þær gegndu skýrt afmörkuðu hlutverki sem hluti af embættishlunnindum prestsins og voru sem slíkar "heimatekjur" prestsins. Breyting á því var ekki framkvæmd nema með sérstakri löggjöf í samkomulagi við Þjóðkirkjuna. Þegar prestssetursjarðir voru seldar var það gert með lögum og í samkomulagi við biskup og voru rökin alltaf þau, að um flutning prestsseturs væri að ræða vegna breyttra aðstæðna og var þá söluverðið nýtt til að kaupa aðra prestssetursjörð eða til þess að reisa prestsseturshús á nýjum stað. 2. I 7. grein laga nr. 137/1993 er tekið fram í 4. tölulið, að einn af tekjuliðum prestssetrasjóðs sé söluandvirði prestssetra. Ljóst er því, að löggjafmn lítur svo á, að prestssetrasjóður eignist fýrrverandi prestssetur með sölu þeirra. Til þess að sala sé heimil þarf hverju sinni samþykki frá Alþingi og Kirkjuþingi. Þegar ný prestssetur eru keypt í stað eldri prestssetra, þá verða þau þar af leiðandi eign prestssetrasjóðs. I athugasemdum með frumvarpinu að þessum lögum er vitnað orðrétt í álitsgerð kirkjueignanefndar frá 1984 um prestssetrin, þar sem sagði: "Prestsseturshúsin voru óumdeilanleg eign prestakallanna (embættanna) og hlutverk þeirra var að gera starf kirkjunnar mögulegt á viðkomandi stað. Húsin voru hluti af þeirri heild, sem embœttunum tilheyrði ogþeirri grundvallarstöðu hefur aldrei verið breytt með lögmœtum hætti. Samhliða nytjarétti báru þeir (prestar) fulla ábyrgð á þeim ogfjárhagsskyldur, en var líka gert að tryggja stöðu þeirra eins og annarra 53
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.