Gerðir kirkjuþings - 2001, Side 64
Ofanleitis, sem var lénsjörð prests, sem var undanskilin í sölu 1964 og hefðu átt að
fylgja sem hlunnindi prestsseturs í Vestmannaeyjum, en var ákveðið við sölu að
skyldu tilheyra Landakirkju.
Eins hafa jarðarspildur úr prestssetrum verið teknar án endurgjalds til
byggingarlóða, námutaka verið ffamkvæmd af vegagerð ofl. án þess að endurgjald
hafi komið fyrir eða sainkomulag verið gert um það. Þá eru víða óuppfylltar
skriflegar yfirlýsingar ráðherra eða ráðuneyta og einnig eru óleyst vandamál um
landamerki á nokkrum prestssetursjörðum. Að þessu er víða vikið í fsk. 7 við nánari
upptalningu um það sem prestssetrunum fylgir, þó þar sé ekki um tæmandi
upplýsingar að ræða. Slík vandamál fylgja viðkomandi prestssetrum áfram. hver svo
sem eignarréttarstaða þeirra er eða verður og kallar ekki á endanlega úrlausn samhliða
því samkomulagi, sem unnið er að ná fram nú við ríkið.
I lögum um kirkjuítök og sölu þeirra nr. 13/1956 er kveðið á um að ekki sé
hægt að selja ítak sem prestur nytjar nema með samþykki hans og biskups og að
andvirði ítaks eða landssvæða, svo sem varpeyja, engjateiga og afféttar- eða beitilands
renni til þeirrar kirkju / prestsseturs, sem ítakið á.
9. kafli. Prestsbústaðir, sem prestssetrasjóður hefur keypt eða byggt eftir
1.1.1994.
1) Ibúðarhúsið Hólagata 42, keyptur kjallari, sem viðbót við prestssetrið í
V estmannaeyjum.
2) Ibúðarhúsið Smáragata 6 í Vestmannaeyjum .
3) Nýja íbúðarhúsið Mosfelli, Mosfellssveit.
4) íbúðarhúsið Laufás2 á Hellissandi.
5) Ibúðarhúsið Völusteinsstræti 16 á Bolimgarvík
6) Ibúðarhúsið Hlíðarbraut 20 á Blönduósi.
7) Ibúðarhúsið Hólabraut 30 á Skagaströnd.
8) Ibúðarhúsið Kirkjugata 13 á Hofsósi.
9) íbúðarhúsið Hlíðarvegur 42 á Ólafsfirði.
10) íbúðarhúsið Dalbraut 2 á Dalvík.
11) Nýja íbúðarhúsið í Laufási.
12) íbúðarhúsið Ketilsbraut 20 á Húsavík.
13) Ibúðarhúsið Prestshús, Garði.
10. kafli. Sérstök umfjöllunarefni: Sala prestsbústaða samk\'æmt reglugerð nr.
104/1970; sbr og reglugerð nr. 334/1982.
Með reglugerð nr. 104/1970 og síðar breytingu á henni með reglugerð nr. 334/1982
voru lög nr. 27/1968 um sölu íbúðarhúsa í eigu ríkisins látin ná til prestssetursbústaða
á fyrsta bústaðarsvæði, sem náði yfir Reykjavík og nágrenni, Keflavík, Njarðvík,
Selfoss, Hveragerði og Akureyri. Þessari reglugerð var mótmælt af yfirstjóm
kirkjunnar og prestum og talið að hér væri um eignaupptöku að ræða, sem engar
bætur hefðu komið fyrir; en slíkt stæðist ekki stjómarskrárvarimi rétt.
Tólf prestsbústaðir/einbýlishús voru seld á þessu svæði, smátt og smátt allt til
19.., því sóknarprestar héldu prestsbústöðum sínum út starfstíma sinn. Þessir bústaðir
voru: I Reykjavík, (fasteignamat 2000 skráð innan sviga í þús. kr.): Sólheimar 17
(20.947 ), Kirkjuteigur 9 (22.676), Engihlíð 9 (22.627), Garðastræti 42 (24.213),
Ægisíða 94 (22.756), Auðarstræti 19 (17.435) og Drápuhlíð 4, effi hæð og ris
(12.756). Á Akureyri: Hamarsstígur 24 (15.486) og Eyrarlandsvegur 16 (14.706). í
Hafnarfirði: Brekkugata 18 (21.253). í Njarðvík: Hlíðarvegur 15 (10.951). í Keflavík:
Skólavegur 28 (8.604).
60