Gerðir kirkjuþings - 2001, Síða 79
Tillaga að reglugerð um ábyrgðir Jöfnunarsjóðs sókna
15. mál, flutt af Kirkjuráði
1. gr.
í Jöfnunarsjóði sókna, sbr. lög nr. 91/1987, er starfrækt sérstök ábyrgðardeild. Heimilt
er að veita ábyrgðir öllum þeim aðiljum sem styrkhæfir eru skv. þeim lögum.
Yfirlýsing um ábyrgð sjóðsins skal vera undirrituð af öllum Kirkjuráðsmönnum.
2. gr.
Jöfnunarsjóður sókna getur veitt ábyrgðir í heild er nema allt að þriðjungi af árlegum
tekjum sjóðsins að viðbættum ferföldum varasjóði ábyrgðardeildar, þó aldrei rneira en
sem nemur 2,5 földum árstekjum sjóðsins.
3. gr.
Jöfnunarsjóður tekst einungis á hendur ábyrgð á skuldabréfum í íslenskum krónum
sem skráð eru á nafn viðurkenndrar lánastofnunar eða viðurkennds lánveitanda.
Skilmálum má ekki breyta nema með samþykki Kirkjuráðs.
4. gr.
Ábyrgð skal því aðeins veita, að sá er ábyrgðar óskar, þarfnist lánsíjár til
framkvæmda, endurbóta á mannvirkjum, til kaupa á búnaði í kirkju eða
safnaðarheimili þ.m.t hljóðfæri.
Ábyrgð má ekki veita nema eftirfarandi skilyrði séu uppfyllt:
1. Lánsþörfma er ekki hægt að uppfylla á almennum markaði án ábyrgðar eða
lánskjör eru sérlega óhagstæð. Þetta tekur einnig til skuldbreytinga.
2. Greiðslumat liggur fyrir um að lánþegi geti staðið í skilum með lán sem
ábyrgst er af sjóðnum.
3. Umsækjandi fer að starfsreglum Kirkjuþings í hvívetna við framkvæmd þess
verkefnis sem óskað er ábyrgðar fyrir.
5. gr.
Jöfnunarsjóði er heimilt að taka veð í fasteignum, svo og öðrum eignum, ef ástæða
þykir til, til tryggingar skuldar. Kirkjur verða þó eigi veðsettar skv. ákvæði þessu.
6. gr.
Ábyrgðarþegi skal við veitingu ábyrgðar greiða ábyrgðargjald í eitt skipti er nemur
0,5 % af höfuðstóli ábyrgðarskuldbindingar. Gjaldið rennur í ábyrgðardeild
Jöfnunarsjóðs sókna.
7. gr.
Umsókn um ábyrgð sjóðs skal send til Kirkjuráðs. Henni skal fylgja:
1. ítarleg greinargerð um til hvers lánsfénu skuli varið, ásamt rekstraráætlun þess
er ábyrgðar óskar.
2. Þinglýsingarvottorð um þær eignir er veðsetja skal, svo og önnur skjöl um
eignarheimildir.
3. Gögn um stöðu veðskulda og annarra skulda.
4. Ársreikningar fyrir að minnsta kosti tvö síðustu ár í því formi og með þeim
skýringum og gögnum er sjóðurinn kann að kreijast.
5. Gögn um vátryggingar eigna umsækjanda.
75