Fréttablaðið - 03.03.2016, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 03.03.2016, Blaðsíða 25
Þorvaldur Gylfason prófessor Í dag Getur Alþingi skuldbundið skattgreiðendur fyrir hönd ríkissjóðs 10 ár fram í tímann til að standa straum af nýjum búvöru- samningi við bændur? Svarið við spurningunni blasir við ef við breytum henni lítillega: Getur Alþingi skuld- bundið skattgreiðendur 99 ár fram í tímann til að standa straum af nýjum búvörusamningi? Allir sjá í hendi sér að svo er ekki. Lögin leyfa það ekki. Stjórnarskráin leyfir það ekki heldur því þar stendur: „Ekkert gjald má greiða af hendi, nema heimild sé til þess í fjárlögum eða fjáraukalögum.“ Alþingi getur ekki skuldbundið skatt- greiðendur lengur en eitt ár í senn þar eð fjárlög eru afgreidd á Alþingi til eins árs í senn. Ríkisstjórnin getur ekki gert búvöru- samning við bændur til 99 ára þar eð slíkur samningur fæli í sér umboðssvik í skilningi laga. Umboðssvik heitir það þegar einn leggur skuldbindingu á annan án þess að sá sem skuldbind- ingin er lögð á fái rönd við reist eða sé hafður með í ráðum. Því er aðeins stigsmunur og enginn eðlismunur á búvörusamningi til 10 ára og til 99 ára. Hæstiréttur hefur að undanförnu fellt marga sektardóma í umboðssvika- málum. Kjarni umboðssvikaákvæðisins er að menn geta aðeins skuldbundið sjálfa sig eða umbjóðendur sína, en ekki aðra. Alþingi getur því aðeins skuld- bundið ríkissjóð, þ.e. skattgreiðendur, til eins árs í senn eða í lengsta lagi fram að næstu kosningum, en ekki lengur. Nýtt þing getur ævinlega snúið við ákvörðunum fyrra þings og hnekkt lögum þaðan. Þetta á einnig við um búvörusamninga langt fram í tímann. Alþingi getur einnig rift samningi sem það hefur gert innan kjörtíma- bils, en þá bakar það skattgreiðendum bótaskyldu líkt og við samningsrof milli einkaaðila. Þannig myndu dóm- stólar væntanlega líta á málið, a.m.k. Hæstiréttur sem hefur nýlega snúið við sýknudómi undirréttar í umboðssvika- máli. Bindandi? Stjórnmálamenn hafa sumir haldið því að kjósendum að hægt sé að gera bindandi samninga til langs tíma líkt og búvörusamninginn. Hugsun þeirra virðist vera að slíkur samningur sé bindandi í þeim skilningi að riftun hans af hálfu nýs Alþingis myndi baka ríkinu bótaskyldu. Svo er þó ekki. Bótaskylda getur ekki verið yfirfæran- leg. Einn getur ekki samið við annan upp á þau býti að samningsrof leggi bótaskyldu á þriðja aðila, þ.e. skatt- greiðendur framtíðarinnar fyrir hönd ríkissjóðs. Vitað er að stjórnmálamenn hafa haft í hyggju að úthluta aflaheimildum til útvegsfyrirtækja til langs tíma í senn og reyna með því móti að binda hendur Alþingis langt fram í tímann. Frumvarp í þessa veru hefur verið kynnt á Alþingi. Sama hugsun virðist búa að baki þessum fyrirætlunum og að baki búvörusamningsins. Hug- myndin er að binda hendur löggjafans með því að baka skattgreiðendum bótaskyldu ef löggjafanum snýst hugur. Alþingi hlýtur þó ævinlega að áskilja sér rétt fyrir hönd kjósenda til að setja landinu lög og gera samninga innan þeirra marka sem stjórnarskráin setur. Þannig gæti Alþingi t.d. ekki gert samning um aðild Íslands að alþjóða- samtökum sem Ísland ætti ekki aftur- kvæmt úr. Hér mætti e.t.v. líta svo á að um umboðssvik væri að tefla í skilningi laga þar eð umboðssvik eru ekki bundin við yfirfærslu fjárskuldbind- inga. Hugsunin er í öllu falli hin sama í báðum dæmum. Löggjöf annarra landa rímar við þessa hugsun. Grænland gekk úr ESB 1985. Bretar munu greiða atkvæði í júní um hvort þeir ætla sér að vera áfram í ESB eða ganga út. Grugg eða gegnsæi? Láti Alþingi af því verða að staðfesta nýjan búvörusamning til 10 ára þarf að láta reyna á lögmæti hans fyrir dómstólum í ljósi þeirra sjónarmiða sem lýst er að framan. Neytendasam- tökin eða Samtök skattgreiðenda gætu höfðað slíkt dómsmál sem aðilar máls. Með líku lagi hlýtur að koma til álita að endurskoða t.d. fyrri ákvörðun Alþingis um að leyna áratugi fram í tímann gögnum um hrunið sem rann- sóknarnefnd Alþingis aflaði og kaus að birta ekki í skýrslu sinni 2010. Þessi gögn kunna samt að eiga erindi við almenning, t.d. upplýsingar um lán föllnu bankanna til stjórnmálamanna og annarra. Nýtt Alþingi getur snúið við fyrri ákvörðun Alþingis um með- ferð þessara upplýsinga í samræmi við þau sjónarmið sem lýst er að framan. Lýðræðisríki leyfist ekki að leggja fjár- skuldbindingar og aðrar kvaðir, t.d. óhóflega upplýsingaleynd, á fólk sem fær ekki rönd við reist. Almannahagur hlýtur að koma til álita ásamt persónu- verndarsjónarmiðum. Samningar til 99 ára? Láti Alþingi af því verða að staðfesta nýjan búvöru- samning til 10 ára þarf að láta reyna á lögmæti hans fyrir dóm- stólum. Ármúla 31 - við hliðina á innréttingar og tæki Verksmiðju útsala afsláttur 40-70% Verksmiðjuútsala verður hjá Varma Dagana 3-5 mars Opið: Fimmtud. og Föstud. kl. 17-19 Laugard. kl. 12-15 lítið útlitsgallaðar vörur ásamt vörum sem hættar eru í framleiðsu. Einnig rennilásar, efnisbútar og tvinnar. Ríkið styrkir einkum sauðfjárrækt og mjólkuriðnað með beinum fjárframlögum. FRéttaBlaðið/PjetuR s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 25F i M M T u d a g u R 3 . M a R s 2 0 1 6 0 3 -0 3 -2 0 1 6 0 4 :2 4 F B 0 8 0 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 8 A 7 -2 F 9 0 1 8 A 7 -2 E 5 4 1 8 A 7 -2 D 1 8 1 8 A 7 -2 B D C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 8 0 s _ 2 _ 3 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.