Fréttablaðið - 03.03.2016, Blaðsíða 30
Tískuáhugi Ívars Vincents
Smárasonar hófst á mennta-
skólaárunum og jókst jafnt og þétt
næstu árin. Fyrir sex árum hóf
hann störf í herrafataverslun sam-
hliða námi en hann segir fatastíl
sinn eiga rætur að rekja til klass-
ískrar karlmannstísku og hann
hafi um leið mikið dálæti á bresk-
um klassískum herrafatastíl. „Mér
finnst miklu máli skipta að fötin
sem ég geng í séu úr gæðaefnum
og ég reyni að forðast öll efni sem
hnökra. Ég vil frekar kaupa klass-
ískar og endingargóðar flíkur í stað
þeirra sem eru ódýrar, endast stutt
og detta úr tísku á örskotsstundu.“
Ívar er á þriðja ári í stjórnmála-
fræði við Háskóla Íslands auk þess
að sitja í stúdentaráði fyrir hönd
Röskvu. „Kærastan mín, María
Árnadóttir, stundar nám í fatahönn-
un í LHÍ og því eru föt oftar en ekki
í umræðunni á milli okkar.“
Gæðin skipta öllu
Eitt sem einkennir tískuáhuga
Ívars er mikill áhugi á skóm sem
hann notar við ýmis tækifæri.
„Það er betra að kaupa eitt par af
dýrum skóm sem endast lengur en
tvö pör af lélegum skóm. Sjálfur á
ég rúmlega tíu pör en hugsa þó mun
fremur um gæði en fjöldann. Ég er
nær eingöngu í leðursólaskóm við
jakkaföt og hef þá vel pússaða. Sé
rigning úti þegar ég er í jakkaföt-
um smeygi ég skóhlífum yfir skóna
til þess að sólinn blotni ekki. Við
gallabuxur og við hversdagslegri
tilefni er ég iðulega í brúnum leð-
urskóm, sér í lagi uppháum þegar
illa viðrar og snjór er úti.“
Uppáhaldsflík Ívars þessa stund-
ina er einmitt eitt af skópörum
hans. „Þetta er virkilega fallegt par
af dökkbrúnum Barker-skóm með
leðursóla sem ganga við öll sett af
fötum. Skórnir eru handsmíðaðir
í Northampton í Englandi og eru
hrikalega þægilegir. Engu skiptir
hvort ég er í jakkafötum eða hvers-
dagslegri klæðnaði, þeir fullkomna
alltaf lúkkið. Miklu máli skiptir svo
að vera með dökkbrúnt belti í stíl.“
Vasaklútar oG reGnhlíf
Það er ekki bara tískan sem heillar
Ívar, tónlistin skipar veglegan sess
í lífi hans. „Ég hef sjálfur verið í
hljómsveitum og hef síðustu ár sung-
ið í kór Langholtskirkju. Undanfarin
ár hef ég sankað að mér ótal geisla-
diskum og vínylplötum sem ég nýt
þess að hlusta á við ólík tækifæri.
Jakkafötin og bindið eru frá Polo Ralph Lauren og skyrtan frá Stenströms. Vasaklúturinn kemur frá Hugo Boss. MYNDiR/ERNiR
Ívar elska vandaða skó og á mörg falleg pör sem sjást hér. Uppáhaldið eru Barker-
skórnir, fyrir miðju í neðri röð, en þeir voru handsmíðaðir í Englandi.
Þegar ég bursta skóna mína set ég
t.d. oft plötu á fóninn og raula með.“
Réttu fylgihlutirnir skipta líka
máli. „Ég fer ekki í jakkaföt án
þess að setja vasaklút í vasann,
það setur einfaldlega punktinn
yfir i-ið. Að sama skapi er ég oft
í skyrtum með tvöföldum mans-
éttum fyrir ermahnappa þegar
ég er í jakkafötum. Þegar rignir
dreg ég einnig fram regnhlíf sem
ég keypti í London fyrir nokkr-
um árum en hún hefur lifað af ís-
lenska veðráttu hingað til.“
Ívar stefnir á framhaldsnám í
stjórnmálafræði erlendis í nán-
ustu framtíð og vonast til þess að
ferðast um heiminn í framhaldinu
af því. „Fyrst og fremst vona ég
þó að ég geti orðið að liði og haft
áhrif, hvar svo sem ég verð niður-
kominn í náinni framtíð.“
fólk er kynninGarblað sem
býður auglýsendum að kynna vörur og
þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í
blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson | Umsjónarmenn
efnis: sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351, Vera einarsdóttir,
vera@365.is, s. 512 5357 | Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.is, s. 512 2447,
Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434, Jóhann Waage,
johannwaage@365.is, s. 512 5439, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook
Str. 40 - 56
Fleiri litir í boði
Túnikur og Poncho á
10.900kr.-
Ný sending frá
3 . m a r s 2 0 1 6 F I m m T U D a G U r2 F ó l k ∙ k y n n I n G a r b l a ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ k y n I n G a r b l a ð ∙ T í s k a
0
3
-0
3
-2
0
1
6
0
4
:2
4
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
1
K
_
N
Y
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
0
K
_
N
Y
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
A
7
-5
C
0
0
1
8
A
7
-5
A
C
4
1
8
A
7
-5
9
8
8
1
8
A
7
-5
8
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
8
0
s
_
2
_
3
_
2
0
1
6
C
M
Y
K