Fréttablaðið - 03.03.2016, Blaðsíða 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —5 3 . t ö l u b l a ð 1 6 . á r g a n g u r F i M M t u d a g u r 3 . M a r s 2 0 1 6
Fréttablaðið í dag
skoðun Valgerður Bjarna-
dóttir alþingismaður skrifar um
búvörusamningana. 24-32
sport Gunnar Nelson mætir
aftur í búrið í maímánuði. 34
Menning Páll Baldvin Baldvins-
son hlaut í gær viðurkenningu
Hagþenkis fyrir rit
sitt Stríðsárin
1938-1945. 40-46
lÍFið Ófærð
2 gerist ekki í
Kötlugosi. 50-54
plús 2 sérblöð
l Fólk
l Íslenskur
iðnaður
*Samkvæmt prentmiðla-
könnun Gallup apríl-júní 2015
OPIÐ TIL
21
Í KVÖLD
ALLT FYRIR
FERMINGUNA
SKOÐAÐU TILBOÐIN
Á BLS. 14–17
OPIÐ TIL 23
KONU
KVÖLD
Tommies tómatatilboð gildir til 6. mars
30 %afsláttur
Útskipun áls hófst við höfnina í Straumsvík í gær og gengu tólf stjórnendur og stjórnarmenn í störfin. Á meðal
þeirra voru Katrín Pétursdóttir, Birna Pála Kristinsdóttir og Rannveig Rist, forstjóri ISAL. Fréttablaðið/anton
viðskipti Laun forstjóra félaga í
Kauphöll Íslands hækkuðu umfram
launavísitölu á síðasta ári. Greiðslur
launa og hlunninda til forstjóra
félaganna hækkuðu að meðal-
tali um 13,3% prósent milli ára en
meðal árshækkun launavísitölu
Hagstofu Íslands var 7,2 prósent
árið 2015. Mest hækkuðu laun Finns
Oddssonar, forstjóra Nýherja, eða
um 46 prósent milli ára, og námu 3,1
milljón króna á mánuði. Þá hækk-
uðu heildarlaunagreiðslur til Árna
Odds Þórðarsonar, forstjóra Marel,
um 34,3 prósent milli ára og námu
6,6 milljónum króna á mánuði. Þá
hækkuðu heildarlaunagreiðslur til
Björgólfs Jóhannssonar, forstjóra Ice-
landair Group og formanns Samtaka
atvinnulífsins, um 17 prósent milli
ára og námu 4,5 milljónum króna á
mánuði.
Samkvæmt tillögum stjórna fyrir
aðalfundi Kauphallarfélaganna er
lagt til að launahækkanir nemi að
meðaltali 8,6 prósentum milli ára.
Mest er lagt til að laun stjórnar-
manna í Fjarskiptum, móðurfélagi
Vodafone, hækki eða um 18,6 pró-
sent. Heiðar Guðjónsson, fjárfestir
og stjórnarformaður Fjarskipta,
segir stjórnarlaun Fjarskipta verða
áfram fremur lág miðað við önnur
félög á markaðnum. „Ef þeir ætluðu
að fá ráðgjafa úti í bæ, lögfræðinga
eða aðra sérfræðinga til að sinna
þessu, þá er ljóst að þessi stjórnar-
laun sem eru í dag myndu ekki duga
fyrir þessum reikningi,“ segir Heiðar.
Þá sé vinna við undirbúning hvers
stjórnarfundar milli tíu og tuttugu
klukkustundir. Er lagt til að laun
stjórnarmanna í bæði Nýherja og
Reitum hækki um 15,4 prósent. Til
samanburðar þá var almenn launa-
hækkun í Salek-samkomulaginu 6,2
prósent frá áramótum.
Þorsteinn Víglundsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífs-
ins, segir mikilvægt að stjórnendur
sýni gott fordæmi þegar kemur að
launahækkunum. „Við höfum sagt
að auðvitað eigi stjórnendur að
leiða með fordæmi og það er alveg
ljóst að þegar horft er á launaþróun
undangenginna ára, þá hafa þeir
gert það. Þeir hafa hækkað hlut-
fallslega minna en aðrir launahópar
í samfélaginu,“ segir Þorsteinn.
Almennt sé talið svigrúm til 3-4
prósenta launahækkunar á ári og
nýlega samþykktir kjarasamningar
feli í sér launahækkanir sem séu
umtalsvert umfram það.
Meðallaun forstjóra í Kauphöll-
inni voru 4,9 milljónir á mánuði á
síðasta ári og meðallaun stjórnar-
formanna verða 676 þúsund krónur
á mánuði verði tillögur samþykktar
á aðalfundum sem fram undan eru.
Hæst laun fær forstjóri Össurar, eða
19,2 milljónir króna á mánuði.
– ih, /sjá síðu 4
Forstjóralaun
hækka um allt
að 46 prósent
Laun forstjóra félaga í Kauphöllinni hækkuðu um-
fram launavísitölu á síðasta ári. Meðaltalshækkun
um 13,3 prósent. Framkvæmdastjóri SA segir stjórn-
endalaun hafa hækkað minna en laun annarra.
Við höfum sagt að
auðvitað eigi
stjórnendur að leiða með
fordæmi og það er alveg ljóst
að þegar horft
er á launaþró-
un undan-
genginna ára,
þá hafa þeir
gert það.
Þorsteinn Víglundsson, framkvæmda-
stjóri Samtaka atvinnulífsins
dægurMál Alls hefur 31 nýtt nafn
bæst við þá tónlistarflóru sem mun
taka yfir Laugardalinn 16.-19. júní
næstkomandi á tónlistarhátíðinni
Secret Solstice. Á meðal þeirra sem
bæst hafa í hópinn eru suður-afríska
rapptvíeykið Die Antwoord, banda-
ríski rappdúettinn M.O.P, franski
tónlistarmaðurinn St Germain og
bandaríska rapptríóið Flatbush
Zombies, svo nokkur nöfn séu nefnd.
Þá kemur íslenska rappsveitin XXX
Rottweiler hundar
saman á hátíðinni.
– glp / sjá síðu 54
Die Antwoord
og M.O.P. á
Secret Solstice
Die antwoord er
þekkt fyrir litríka
sviðsframkomu.
0
3
-0
3
-2
0
1
6
0
4
:2
4
F
B
0
8
0
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
8
A
6
-F
E
3
0
1
8
A
6
-F
C
F
4
1
8
A
6
-F
B
B
8
1
8
A
6
-F
A
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
8
0
s
_
2
_
3
_
2
0
1
6
C
M
Y
K