Fréttablaðið - 03.03.2016, Blaðsíða 6
Já nú er gaman...
Kringlukráin
Kringlunni 4-12
103 Reykjavík
Sími 568 0878
kringlukrain@kringlukrain.is
www.kringlukrain.is
4.-5.
MARS
Hlaut viðurkenningu Hagþenkis
„Nú stend ég hér eins og hver önnur fegurðardrottning og kvaka klisjuna: Ég átti ekki von á þessu,“ sagði Páll Baldvin Baldvinsson rithöfundur,
þegar hann tók við verðlaunum Hagþenkis. Viðurkenninguna fær hann fyrir ritverkið Stríðsárin 1938-1945. Fréttablaðið/SteFán
menningarmál Þróunar- og ferða-
málanefnd Mosfellsbæjar segir
bæinn styðja heilshugar við hug-
myndir um uppbyggingu menn-
ingarhúss að Gljúfrasteini. Kemur
þetta fram í umsögn vegna tillögu á
Alþingi um uppbyggingu Laxness-
seturs.
Ferðamálanefndin segir mikla
möguleika í uppbyggingu á Gljúfra-
steini, sem var sem kunnugt er heim-
ili Nóbelskáldsins Halldórs Laxness
og fjölskyldu hans en er nú safn í
eigu ríkisins.
„Ævistarf Halldórs Laxness er dýr-
mætur þjóðararfur og ber að standa
vörð um hann,“ segir nefndin sem
kveður Mosfellsbæ minnast skálds-
ins með margvíslegum hætti á hverju
ári.
Að þingsályktunartillögu um Lax-
nesssetur standa þingmenn úr öllum
flokkum. Fela á mennta- og menn-
ingarmálaráðherra í samvinnu við
bæjaryfirvöld í Mosfellsbæ og stjórn
Gljúfrasteins að hefja uppbyggingu
setursins. „Þar verði miðstöð allrar
þekkingar um Halldór Laxness.
Laxnesssetur verði jafnframt bók-
menntasetur þar sem aðstaða verði
til rannsókna og fræðistarfa,“ segir í
tillögunni.
Fram kemur í greinargerð með
þingsályktunartillögunni að þegar
sé búið að tryggja land til að byggja
Laxnesssetur með tengingu við
heimili skáldsins að Gljúfrasteini.
„Ljóst er að Gljúfrasteinn stendur
framarlega í flokki dýrmætra staða
í íslenskri menningarsögu. Sú upp-
bygging sem þegar hefur átt sér stað
er um margt til mikillar fyrirmyndar
og hefur starfsemin svo sannarlega
þegar sannað gildi sitt,“ segir í grein-
argerðinni þar sem minnt er á að
Gljúfrasteinn hafi verið friðaður árið
2010 og sé nú viðurkennt safn. Pláss-
leysi hái hins vegar starfseminni.
„Húsið sjálft er því í rauninni safn-
gripur og einstakt að innbúið allt sé
varðveitt óbreytt frá því að Halldór
Laxness og fjölskylda hans
bjuggu þar. Safnkosturinn
samanstendur af innbú-
inu öllu, listaverkum,
bókasafni, ljósmyndum
og skjölum. Möguleikar
til rannsókna og miðl-
unar eru óþrjótandi
en mikilvægt er að
hægt sé að tryggja
örugga varðveislu
safnkostsins til
framtíðar bæði í
húsinu sjálfu og
í geymslu,“ segir
áfram í greinar-
gerðinni.
Þróunar- og
f e r ð a m á l a -
nefndin segir
Mosfellsdalinn hafa sérstöðu í
sögulegu og menningarlegu tilliti.
Bærinn hvetji til þess að sú sérstaða
verði gerð aðgengileg og sýnileg
bæði heimamönnum og gestum.
„Alhliða menningarsetur þar sem
verður lögð áhersla á bókmenntir og
rannsóknir ásamt umgjörð um ævi
og starf Nóbelskáldsins stuðlar að
því og væri bæði jákvæð og æskileg
nálgun,“ segir ferðmálanefnd Mos-
fellsbæjar. gar@frettabladid.is
Þingmenn allra flokka
leggja til Laxnesssetur
Þingmenn úr öllum flokkum standa að ályktun um Laxnesssetur með tengingu
við Gljúfrastein. Ferðamálanefnd Mosfellsbæjar segist styðja að menningarhús
verði reist. Miklar möguleikar til uppbyggingar séu við heimili nóbelskáldsins.
Möguleikar
til rann-
sókna og miðlunar
eru óþrjótandi.
Úr greinargerð
þingsályktunartillögu
um Laxnesssetur
Gljúfrasteini, sem áður var heimili fjölskyldu Halldór laxness, er ætlað lykilhlut-
verk í nýju laxnesssetri. Fréttablaðið/VilHelm
sveitarstjórnir „Bæjarráð telur
þessar breytingar skref í rétta átt og
telur það mæta óskum sínum um
eflingu atvinnuþróunar og nýsköp-
un og því feli fyrirliggjandi hag-
kvæmniathugun ekki sér þörf fyrir
úrsögn að svo stöddu,“ segir bæjar-
ráð Vestmannaeyja um hugsanlega
úrsögn úr Samtökum sunnlenskra
sveitarfélaga, SASS.
Bæjarstjóranum var fyrir ári falið
að kanna hagkvæmni þess fyrir
Vestmannaeyjar að halda áfram
aðild að SASS miðað við að efla
atvinnuþróun og nýsköpun heima
fyrir. Á síðustu vikum hafi umtals-
verð breyting átt sér stað á starfsemi
SASS sem miði einmitt að því. „Til
marks um það hefur SASS nú gert
þjónustusamning við Þekkingar-
setur Vestmannaeyja sem gerir ráð
fyrir að atvinnu- og nýsköpunar-
fulltrúi verði ráðinn við stofnunina
með aðsetur og starfsemi í Vest-
mannaeyjum,“ segir bæjarráðið.
– gar
Eyjamenn halda
áfram í SASS
viðskipti Þriðji Dunkin' Donuts
staðurinn á Íslandi verður opn-
aður klukkan níu í dag í Hagasmára
í Kópavogi.
Staðurinn er inni í 10-11 verslun-
inni á Shellstöðinni við Smáralind.
Hann tekur um 25 manns í sæti
og eins geta viðskiptavinir keypt
veitingar í bílalúgu, en staðurinn
er sá fyrsti í Evrópu sem veitir slíka
þjónustu. Fyrstu 20 viðskiptavin-
irnir sem mæta í röðina í fyrramálið
fá ársbirgðir af kleinuhringjum og
geta því komið við á næsta stað einu
sinni í viku í 52 vikur og fengið 6
kleinuhringi í kassa.
Á næstu 4 fjórum árum stendur
til að opna 13 staði til viðbótar og
verða þeir bæði á höfuðborgar-
svæðinu og utan þess. Í frétta-
tilkynningu frá Dunkin' Donuts
segist Árni Pétur Jónsson eigandi
ekki vera á því að staðirnir verði of
margir. – jhh
Þriðji Dunkin'
staðurinn
opnaður
sjávarútvegur Nýr ísfisktogari,
Engey RE, sem verið er að smíða hjá
skipasmíðastöðunni Celiktrans í
Tyrklandi fyrir HB Granda, var sjó-
settur á þriðjudagsmorgun.
Engey er fyrst í röð þriggja ísfisk-
togara sem HB Grandi hefur samið
um smíði á í Tyrklandi. Verður
skipið afhent síðar á þessu ári.
Akurey AK verður afhent næsta
vor en þriðji og síðasti togarinn,
Viðey RE, verður afhentur á haust-
mánuðum 2017. – shá
Ný Engey sjósett
3 . m a r s 2 0 1 6 F i m m t u D a g u r6 F r é t t i r ∙ F r é t t a B l a ð i ð
0
3
-0
3
-2
0
1
6
0
4
:2
4
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
A
7
-2
A
A
0
1
8
A
7
-2
9
6
4
1
8
A
7
-2
8
2
8
1
8
A
7
-2
6
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
8
0
s
_
2
_
3
_
2
0
1
6
C
M
Y
K