Fréttablaðið - 03.03.2016, Blaðsíða 20
Á þriðjudaginn birti The
Times yfirlýsingu sem
þriðjungur hundrað stærstu
fyrirtækja Bretlands, svo-
kölluð FTSE 100 fyrirtæki,
studdi um áframhaldandi
veru í Evrópusambandinu.
Úrslit ofurþriðjudagskosninganna
svokölluðu í Bandaríkjunum eru nú
ljós, og allt stefnir í forsetaslag milli
Hillary Clinton og Donalds Trump í
nóvember. Þau hafa eytt samanlagt
sem nemur tæpum tuttugu millj-
örðum króna til að tryggja sér forystu.
Forsetakosningar í Bandaríkjunum
og himinháar fjárhæðir hafa verið
óaðskiljanlegar undanfarna áratugi.
Þó er áhugavert að í þessari kosninga-
baráttu hefur langt í frá verið sama-
semmerki milli þess að safna hæstu
fjárhæð og velgengni.
Trump hefur safnað langminnst
meðal þeirra sem eru með forystu um
þessar mundir. Jeb Bush sem hafði
safnað næsthæstri upphæð á eftir
Clinton og eytt mestu í sitt framboð
hætti í kosningabaráttunni þann 20.
febrúar síðastliðinn.
Hillary Clinton er nú með forystu
meðal demókrata, en Donald Trump
meðal repúblíkana. Þau hafa eytt 17,9
milljörðum króna í framboð sín, sam-
kvæmt nýjustu tölum frá 22. febrúar,
en áætla má að talsvert hafi bæst við
upphæðina milli 22. febrúar og 1.
mars.
Clinton hafði þá safnað 24,3
milljörðum króna og eytt 14,3 millj-
örðum króna, til að tryggja sér for-
ystu. Trump hafði þó einungis eytt
fimmtungi af fjárhæð Clinton, eða 3,3
milljörðum íslenskra króna.
Höfðu safnað 40 milljörðum
Það er ekki einungis þeir sem eru í
lokaslagnum sem hafa safnað og eytt
miklu fé. Center for Responsive Politics
áætlar að frambjóðendur sem nú hafa
hætt kosningabaráttu hafi safnað sam-
tals 314 milljónum dollara, rúmum 40
milljörðum króna, í kosningabarátt-
unni.
Bush safnaði 20 milljörðum
Þar fremstur í flokki er Jeb Bush. Þegar
hann hætti kosningabaráttu þann 20.
febrúar hafði hann safnað næstmestu
allra frambjóðenda eða 157,6 millj-
ónum dollara, rúmum 20 milljörðum
króna. Þar af varði hann 17 milljörð-
um króna í framboðið. Það er hærri
fjárhæð en Hillary Clinton og Trump
höfðu varið þann 22. febrúar.
Aðrir vongóðir repúblíkanar, Scott
Walker, Chris Christie og Carly Fiorina,
söfnuðu milli 24 og 32 milljóna dollara
fyrir framboðin sín. Martin O’Malley,
þriðji frambjóðandi demókrata sem
var lítið áberandi í kosningabarátt-
unni, náði hins vegar einungis að safna
tæpum sex milljónum dollara.
Áhugavert er að beina sjónum að
því hvaðan fjármagn frambjóðendana
kemur. Ef litið er á landið í heild sinni
sést að þær 500 milljónir dollara sem
frambjóðendur höfðu safnað í lok
janúar koma að mestu leyti frá Kali-
forníu, New York, Texas og Flórída,
samkvæmt Federal Election Comssion.
Flokkarnir söfnuðu mest tæpum 30
milljónum dollara í fylki, repúblíkanar
söfnuðu fénu í Texas en demókratar í
Kaliforníu.
Hillary Clinton safnaði mestu fé
í Kaliforníu og svo New York. Lang-
stærsti hluti fjármagns hennar kemur
frá norðausturströnd Bandaríkjanna.
Fjármagn Trumps kemur úr mun fleiri
áttum. Mestu safnaði hann í Texas.
Sömu sögu er að segja um fjármagn
Cruz, tæplega þrjátíu prósent þess
koma frá Texas.
Tugir milljarða til að ná forystu
Dýrkeypt getur verið að komast langt í forsetakosningum í Bandaríkjunum. Clinton og Trump höfðu í lok febrúar varið 17,9 milljörðum
króna í sín framboð. Trump varði þó einungis fimmtungi af fjárhæð Clinton. Frambjóðendur sem hættir eru söfnuðu 40 milljörðum.
Vörðu þremur milljörðum
í sjónvarpsauglýsingar fyrir ofurþriðjudaginn
Frambjóðendur verja miklu fé í
sjónvarpsauglýsingar í aðdraganda
kosninga. NBC News greinir frá því
að frambjóðendurnir hafi varið
samtals 23 milljónum dollara,
jafnvirði þriggja milljarða íslenskra
króna, í sjónvarpsauglýsingar í að-
draganda ofurþriðjudags.
Clinton varði mestu, eða 6,4
milljónum dollara, jafnvirði 830
milljóna íslenskra króna, Sanders
varði aðeins minni fjárhæð eða
5,2 milljónum dollara, tæpum 700
milljónum króna.
Ted Cruz og hans kosningateymi
vörðu næstmestu, og mestu meðal
repúblíkana, eða 6,2 milljónum
dollara, rúmlega 800 milljónum
króna, að mestu leyti í Suðurríkj-
unum. Rubio varði 3,5 milljónum
dollara samtals, jafnvirði 455 millj-
óna króna. Kosningateymi Trumps
varði langminnstu, tæplega einum
sjötta af því sem Cruz varði, eða
1,1 milljón dollara, 143 milljónum
króna.
Wang Jianlin, ríkasti maður Kína,
hefur hvatt Breta til þess að yfirgefa
ekki Evrópusambandið þegar kosið
verður um það 23. júní næstkom-
andi. Hann telur að fjöldi kínverskra
fyrirtækja muni flytja starfsemi sína
frá Bretlandi ef af því verður.
Í frétt The Sunday Times um
málið kemur fram að Wang Jian-
lin, stofnandi Dalian Wanda sem
rekur meðal annars skútur og er að
byggja fimm stjörnu hótel í London,
telji að úrsögn úr ESB væri ekki rétt
ákvörðun fyrir Bretland. Hann
bendir á að það myndi skapa erfið-
leika og hindranir fyrir fjárfesta, auk
vegabréfsáritunarvandamála fyrir
ferðamenn.
Eftir að tilkynnt var um kosn-
ingarnar í síðustu viku hrundi
gengi pundsins á móti dollara um
3,8 prósent, sem er mesta lækkun
síðan í efnahagskreppunni 2008. Á
þriðjudaginn birti The Times yfir-
lýsingu sem þriðjungur hundrað
stærstu fyrirtækja Bretlands, svo-
kölluð FTSE 100 fyrirtæki, studdi
um áframhaldandi veru í Evrópu-
sambandinu.
Skiptar skoðanir eru á útgöngu
Breta úr ESB. Boris Johnson, borgar-
stjóri London, lýsti því yfir að hann
styddi þá stefnu, en margir aðrir
stjórnmálamenn, meðal annars
David Cameron, forsætisráðherra
Bretlands, vilja ekki úrsögn. – sg
Ríkasti maður Kína varar við úrsögn Breta úr Evrópusambandinu
Wang Jianlin er ríkasti maður Kína.
FréttaBlaðið/Getty
Sæunn
Gísladóttir
saeunn@frettabladid.is
Safnað
84,6 milljónir USD**
11 milljarðar ISK
Eytt
61,1 milljón USD
8 milljarðar ISK
Eytt í sjónvarps-
auglýsingar
3,5 milljónir USD
455 milljónir ISK
Safnað
96,3milljónir USD**
12,5 milljarðar ISK
Eytt
81,7 milljónir USD
10,6 milljarðar ISK
Eytt í sjónvarpsaug-
lýsingar
5,2 milljónir USD
700 milljónir ISK
Safnað
104,2 milljónir USD**
13,6 milljarðar ISK
Eytt
73,3 milljónir USD
9,5 milljarðar ISK
Eytt í sjónvarpsaug-
lýsingar
6,2 milljónir USD
800 milljónir ISK
Bernie Sanders
Ted Cruz
Marco Rubio
✿ Fjármögnun forsetaframbjóðenda í Bandaríkjunum*
Safnað
27,3 milljónir USD**
3,6 milljarðar iSK
Eytt
25,5 milljónir USD
3,3 milljarðar iSK
Eytt í sjónvarps-
auglýsingar
1,1 milljón USD
143 milljónir iSK
Safnað
188 milljónir USD**
24,5 milljarðar iSK
Eytt
110 milljónir USD
14,3 milljarðar iSK
Eytt í sjónvarps-
auglýsingar
6,4 milljónir USD
830 milljónir iSK
Heimildir: *Federal Election Comssion, miðað við fjármagn sem safnast hafði 31. janúar 2016. **New York Times 22. febrúar. GraFíK/inGo
Skipting fjármögnunar
Trumps eftir fylkjum
Skipting fjámögnunar
Clinton eftir fylkjum
Donald Trump Hillary Clinton
alls safnað
188 milljónir dollara
alls safnað
27,3 milljónir dollara
FLÓRÍDA
$6.351.486
NEW YORK
$17.006.346
KALIFORNíA
$208.891
TEXAS
$211.596
FLÓRÍDA
$202.389
NEW YORK
$126.184
TEXAS
$5.887.674
KALIFORNÍA
$21.899.489
ViðSkipTi
3 . M a R S 2 0 1 6 F I M M T U D a G U R20 F R é T T I R ∙ F R é T T a B L a ð I ð
0
3
-0
3
-2
0
1
6
0
4
:2
4
F
B
0
8
0
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
A
6
-F
E
3
0
1
8
A
6
-F
C
F
4
1
8
A
6
-F
B
B
8
1
8
A
6
-F
A
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
8
0
s
_
2
_
3
_
2
0
1
6
C
M
Y
K