Fréttablaðið - 03.03.2016, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 03.03.2016, Blaðsíða 20
Á þriðjudaginn birti The Times yfirlýsingu sem þriðjungur hundrað stærstu fyrirtækja Bretlands, svo- kölluð FTSE 100 fyrirtæki, studdi um áframhaldandi veru í Evrópusambandinu. Úrslit ofurþriðjudagskosninganna svokölluðu í Bandaríkjunum eru nú ljós, og allt stefnir í forsetaslag milli Hillary Clinton og Donalds Trump í nóvember. Þau hafa eytt samanlagt sem nemur tæpum tuttugu millj- örðum króna til að tryggja sér forystu. Forsetakosningar í Bandaríkjunum og himinháar fjárhæðir hafa verið óaðskiljanlegar undanfarna áratugi. Þó er áhugavert að í þessari kosninga- baráttu hefur langt í frá verið sama- semmerki milli þess að safna hæstu fjárhæð og velgengni. Trump hefur safnað langminnst meðal þeirra sem eru með forystu um þessar mundir. Jeb Bush sem hafði safnað næsthæstri upphæð á eftir Clinton og eytt mestu í sitt framboð hætti í kosningabaráttunni þann 20. febrúar síðastliðinn. Hillary Clinton er nú með forystu meðal demókrata, en Donald Trump meðal repúblíkana. Þau hafa eytt 17,9 milljörðum króna í framboð sín, sam- kvæmt nýjustu tölum frá 22. febrúar, en áætla má að talsvert hafi bæst við upphæðina milli 22. febrúar og 1. mars. Clinton hafði þá safnað 24,3 milljörðum króna og eytt 14,3 millj- örðum  króna, til að tryggja sér for- ystu. Trump hafði þó  einungis eytt fimmtungi af fjárhæð Clinton, eða 3,3 milljörðum íslenskra króna. Höfðu safnað 40 milljörðum Það er ekki einungis þeir sem eru í lokaslagnum sem hafa safnað og eytt miklu fé. Center for Responsive Politics áætlar að frambjóðendur sem nú hafa hætt kosningabaráttu hafi safnað sam- tals 314 milljónum dollara, rúmum 40 milljörðum króna, í kosningabarátt- unni. Bush safnaði 20 milljörðum Þar fremstur í flokki er Jeb Bush. Þegar hann hætti kosningabaráttu þann 20. febrúar hafði hann safnað næstmestu allra frambjóðenda eða 157,6 millj- ónum dollara, rúmum 20 milljörðum króna. Þar af varði hann 17 milljörð- um króna í framboðið. Það er hærri fjárhæð en Hillary Clinton og Trump höfðu varið þann 22. febrúar. Aðrir vongóðir repúblíkanar, Scott Walker, Chris Christie og Carly Fiorina, söfnuðu milli 24 og 32 milljóna dollara fyrir framboðin sín. Martin O’Malley, þriðji frambjóðandi demókrata sem var lítið áberandi í kosningabarátt- unni, náði hins vegar einungis að safna tæpum sex milljónum dollara. Áhugavert er að beina sjónum að því hvaðan fjármagn frambjóðendana kemur. Ef litið er á landið í heild sinni sést að þær 500 milljónir dollara sem frambjóðendur höfðu safnað í lok janúar koma að mestu leyti frá Kali- forníu, New York, Texas og Flórída, samkvæmt Federal Election Comssion. Flokkarnir söfnuðu mest tæpum 30 milljónum dollara í fylki, repúblíkanar söfnuðu fénu í Texas en demókratar í Kaliforníu. Hillary Clinton safnaði mestu fé í Kaliforníu og svo New York. Lang- stærsti hluti fjármagns hennar kemur frá norðausturströnd Bandaríkjanna. Fjármagn Trumps kemur úr mun fleiri áttum. Mestu safnaði hann í Texas. Sömu sögu er að segja um fjármagn Cruz, tæplega þrjátíu prósent þess koma frá Texas. Tugir milljarða til að ná forystu Dýrkeypt getur verið að komast langt í forsetakosningum í Bandaríkjunum. Clinton og Trump höfðu í lok febrúar varið 17,9 milljörðum króna í sín framboð. Trump varði þó einungis fimmtungi af fjárhæð Clinton. Frambjóðendur sem hættir eru söfnuðu 40 milljörðum. Vörðu þremur milljörðum í sjónvarpsauglýsingar fyrir ofurþriðjudaginn Frambjóðendur verja miklu fé í sjónvarpsauglýsingar í aðdraganda kosninga. NBC News greinir frá því að frambjóðendurnir hafi varið samtals 23 milljónum dollara, jafnvirði þriggja milljarða íslenskra króna, í sjónvarpsauglýsingar í að- draganda ofurþriðjudags. Clinton varði mestu, eða 6,4 milljónum dollara, jafnvirði 830 milljóna íslenskra króna, Sanders varði aðeins minni fjárhæð eða 5,2 milljónum dollara, tæpum 700 milljónum króna. Ted Cruz og hans kosningateymi vörðu næstmestu, og mestu meðal repúblíkana, eða 6,2 milljónum dollara, rúmlega 800 milljónum króna, að mestu leyti í Suðurríkj- unum. Rubio varði 3,5 milljónum dollara samtals, jafnvirði 455 millj- óna króna. Kosningateymi Trumps varði langminnstu, tæplega einum sjötta af því sem Cruz varði, eða 1,1 milljón dollara, 143 milljónum króna. Wang Jianlin, ríkasti maður Kína, hefur hvatt Breta til þess að yfirgefa ekki Evrópusambandið þegar kosið verður um það 23. júní næstkom- andi. Hann telur að fjöldi kínverskra fyrirtækja muni flytja starfsemi sína frá Bretlandi ef af því verður. Í frétt The Sunday Times um málið kemur fram að Wang Jian- lin, stofnandi Dalian Wanda sem rekur meðal annars skútur og er að byggja fimm stjörnu hótel í London, telji að úrsögn úr ESB væri ekki rétt ákvörðun fyrir Bretland. Hann bendir á að það myndi skapa erfið- leika og hindranir fyrir fjárfesta, auk vegabréfsáritunarvandamála fyrir ferðamenn. Eftir að tilkynnt var um kosn- ingarnar í síðustu viku  hrundi gengi pundsins á móti dollara um 3,8 prósent, sem er mesta lækkun síðan í efnahagskreppunni 2008. Á þriðjudaginn birti The Times yfir- lýsingu sem þriðjungur hundrað stærstu fyrirtækja Bretlands, svo- kölluð FTSE 100 fyrirtæki, studdi um áframhaldandi veru í Evrópu- sambandinu. Skiptar skoðanir eru á útgöngu Breta úr ESB. Boris Johnson, borgar- stjóri London, lýsti því yfir að hann styddi þá stefnu, en margir aðrir stjórnmálamenn, meðal annars David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, vilja ekki úrsögn. – sg Ríkasti maður Kína varar við úrsögn Breta úr Evrópusambandinu Wang Jianlin er ríkasti maður Kína. FréttaBlaðið/Getty Sæunn Gísladóttir saeunn@frettabladid.is Safnað 84,6 milljónir USD** 11 milljarðar ISK Eytt 61,1 milljón USD 8 milljarðar ISK Eytt í sjónvarps- auglýsingar 3,5 milljónir USD 455 milljónir ISK Safnað 96,3milljónir USD** 12,5 milljarðar ISK Eytt 81,7 milljónir USD 10,6 milljarðar ISK Eytt í sjónvarpsaug- lýsingar 5,2 milljónir USD 700 milljónir ISK Safnað 104,2 milljónir USD** 13,6 milljarðar ISK Eytt 73,3 milljónir USD 9,5 milljarðar ISK Eytt í sjónvarpsaug- lýsingar 6,2 milljónir USD 800 milljónir ISK Bernie Sanders Ted Cruz Marco Rubio ✿ Fjármögnun forsetaframbjóðenda í Bandaríkjunum* Safnað 27,3 milljónir USD** 3,6 milljarðar iSK Eytt 25,5 milljónir USD 3,3 milljarðar iSK Eytt í sjónvarps- auglýsingar 1,1 milljón USD 143 milljónir iSK Safnað 188 milljónir USD** 24,5 milljarðar iSK Eytt 110 milljónir USD 14,3 milljarðar iSK Eytt í sjónvarps- auglýsingar 6,4 milljónir USD 830 milljónir iSK Heimildir: *Federal Election Comssion, miðað við fjármagn sem safnast hafði 31. janúar 2016. **New York Times 22. febrúar. GraFíK/inGo Skipting fjármögnunar Trumps eftir fylkjum Skipting fjámögnunar Clinton eftir fylkjum Donald Trump Hillary Clinton alls safnað 188 milljónir dollara alls safnað 27,3 milljónir dollara FLÓRÍDA $6.351.486 NEW YORK $17.006.346 KALIFORNíA $208.891 TEXAS $211.596 FLÓRÍDA $202.389 NEW YORK $126.184 TEXAS $5.887.674 KALIFORNÍA $21.899.489 ViðSkipTi 3 . M a R S 2 0 1 6 F I M M T U D a G U R20 F R é T T I R ∙ F R é T T a B L a ð I ð 0 3 -0 3 -2 0 1 6 0 4 :2 4 F B 0 8 0 s _ P 0 8 0 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 8 A 6 -F E 3 0 1 8 A 6 -F C F 4 1 8 A 6 -F B B 8 1 8 A 6 -F A 7 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 8 0 s _ 2 _ 3 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.