Fréttablaðið - 03.03.2016, Blaðsíða 10
Risin úr
rústunum
Risaflóðbylgjan, sem skall á norðaustanverðu Japan
11. mars árið 2011, lagði meðal annars í rúst skelfisk-
veiðifyrirtæki Hatakeyama-fjölskyldunnar. Fimm
árum síðar er fyrirtækið komið á fullan skrið á ný.
Tetsu Hatekeyama, einn af eigendum fjölskyldufyrirtækisins í bænum Kesennuma, gengur frá skelfiski sem seldur verður á
markaði. Hatekeyama-fjölskyldan er þekkt í Japan fyrir áherslu á umhverfisvernd. FréTTablaðið/EPa
Verkafólk í vinnslufyrirtæki Hatekeyama-fjölskyldunnar í Kesennuma hreinsar ostruskeljar, fimm árum eftir að starfsemi
flestra sjávarútvegsfyrirtækja á þessum slóðum lagðist í rúst. FréTTablaðið/EPa
Ko Hatekeyama, einn af eigendum fiskvinnslufyrirtækis Hatekeyama-fjölskyldunnar, kíkir í gegnum glugga á flóðvarnarmúr
sem reistur hefur verið meðfram ströndinni í borginni Kesennuma í Miyagi-héraði, sem varð einna verst úti þegar náttúru-
hamfarirnar miklu urðu þar í mars árið 2011. FréTTablaðið/EPa
Sjómenn í Kessennuma uppskera skelfisk á ræktunarsvæði Hatekeyama-fyrir-
tækisins í Moune-flóa. FréTTablaðið/EPa
Japanski umhverfissinninn Shigeatsu Hatekeyama, aðaleigandi skelfiskveiðifyrir-
tækis Hatekeyama-fjölskyldunnar, hefur mikinn áhuga á skógrækt og stendur
þarna í skógi, sem hann hefur ræktað ásamt bændum og sjómönnum í fjöllunum
vestur af borginni Kesennuma. FréTTablaðið/EPa
Skelfisk- og ostruræktarsvæði í Moune-flóa, sem lagðist í rúst í hamförunum árið 2011. Starfsemin er komin á fullan skrið á
ný og framleiðslan hefur á þessu ári verið meiri en nokkru sinni. FréTTablaðið/EPa
3 . m a r s 2 0 1 6 F I m m T U D a G U r10 F r é T T I r ∙ F r é T T a B L a ð I ð
0
3
-0
3
-2
0
1
6
0
4
:2
4
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
A
7
-5
2
2
0
1
8
A
7
-5
0
E
4
1
8
A
7
-4
F
A
8
1
8
A
7
-4
E
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
9
B
F
B
0
8
0
s
_
2
_
3
_
2
0
1
6
C
M
Y
K