Fréttablaðið - 03.03.2016, Blaðsíða 78
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Alls hefur 31 nýtt nafn bæst við þá tónlistarflóru sem mun taka yfir Laugardalinn 16.-19. júní
næstkomandi á tónlistarhátíðinni
Secret Solstice. Á meðal þeirra sem
bæst hafa í hópinn er suður-afríska
rapptvíeykið Die Antwoord, banda-
ríski rappdúettinn M.O.P, franski tón-
listarmaðurinn St Germain og banda-
ríska rapptríóið Flatbush Zombies, svo
nokkur nöfn séu nefnd.
Þá kemur íslenska rappsveitin XXX
Rottweiler hundar saman á hátíðinni
í ár og Stuðmaðurinn Jakob Frímann
Magnússon ætlar að leiða djassbræð-
ingssveitina sína Jack Magnet kvintett
á hátíðinni.
Að öðrum ólöstuðum er Die
Antwoord líklega þekktasta nafnið í
nýju tilkynningunni frá Secret Solstice.
Það eru þau Ninja, Yolandi Visser og
DJ Hi-Tek sem mynda sveitina sem
stofnuð var í Höfðaborg í Suður-Afríku
árið 2008. Sveitin er þekkt fyrir djarfa
og litríka sviðsframkomu og þá eru
myndbönd sveitarinnar einkar áhuga-
verð og litskrúðug en mörg þeirra eru
með tugi milljóna áhorfa á Youtube.
Sveitin gaf út sína fyrstu plötu, $O$
árið 2009 og fékk um leið mikla athygli
og þá sérstaklega fyrir myndböndin
sín en Die Antwoord hefur síðan
gefið út plöturnar Ten$Ion árið 2012
og Donker Mag árið 2014.
Það má segja að bandarískt hip hop
sé í eldlínunni í nýju tilkynningunni
en rappdúettinn M.O.P. sem er á leið-
inni í Laugardalinn hefur átt farsælan
feril og gefið út fjölda platna. Þekkt-
asta lag M.O.P. er án efa lagið Ante
Up sem kom út á plötunni Warriorz
árið 2000. Billy Danze og Lil' Fame
sem mynda M.O.P. gáfu síðast út EP
plötuna Street Certified árið 2014 og
nutu þar meðal annars liðsinnis rapp-
ara á borð við Mobb Deep and Busta
Rhymes.
Aðstandendur Secret Solstice,
sem bættu við heilum aukadegi fyrir
skömmu, leggja mikið upp úr fjöl-
breytni á hátíðinni og ætla sér að
bjóða hátíðargestum upp á sem flestar
tegundir tónlistar.
„Við erum hvergi nærri hætt og
munum bæta við fleiri nöfnum þegar
nær drengur og halda í hefð hátíðar-
innar í tengslum við leynigest eða
„secret act“. Það er gríðarlega gaman
að koma tónleikagestum á óvart eins
og við gerðum á síðasta ári með Busta
Rhymes,“ segir Ósk Gunnarsdóttir,
kynningarfulltrúi Secret Solstice.
Aðstandendur hátíðarinnar vinna
ekki eingöngu hörðum höndum við
að smíða góða tónleikadagskrá. „Við
erum með teymi eingöngu í svokall-
aðri hliðardagskrá sem eru viðburðir
í kringum hátíðina en þar ber hæst að
nefna Into The Glacier, sem er eina
partíið innan í jökli í heiminum. Við
verðum ekki bara með eina tónleika
þar eins og í fyrra heldur verðum þrjá
daga og getur fólk valið á milli þess
að að njóta raftónlistar og svo óraf-
magnaðra tónleika,“ segir Ósk.
Þá verður einnig svokallað Mid-
night Sun Boat Party þar sem farið
verður frá hátíðarsvæði Secret Sol-
stice að Reykjavíkurhöfn þar sem siglt
verður frá Reykjavík út á Norður-Atl-
antshafið á slaginu 12 á miðnætti í átt
að sjóndeildarhringnum. Fram koma
heimsklassaplötusnúðar sem halda
partíinu gangandi langt fram undir
morgun. Einnig fer fram sundlaugar-
partí í Secret lagoon, í gömlu lauginni
við Flúðir sem er meira en 120 ára
gömul og elsta sundlaug á Íslandi.
Fyrir var búið að boða komu hljóm-
sveita á borð við Radiohead, Deftones
og Of Monsters and Men á hátíðina.
Die Antwoord og M.O.P.
ásamt fleirum á
Secret Solstice
Die Antwoord er þekkt fyrir djarfa og litríka sviðsframkomu og þá eru myndbönd
sveitarinnar með tugi milljónir áhorfa á Youtube. NORDIc phOTO/GETTY
Die Antwoord [ZA]
Flatbush Zombies [US]
Art Department [CA]
St Germain [FR]
General Levy [UK]
Slow Magic [US]
M.O.P [US]
Hjaltalín [IS]
Stacey Pullen [US]
Troyboi [UK]
Paranoid London [UK]
Gísli Pálmi [IS]
Novelist [UK]
XXX Rottweiler [IS]
Robert Owens [US]
Maher Daniel [CA]
Reykjavíkurdætur [IS]
Jack Magnet [IS]
Nitin [CA]
Lord Pusswhip &
Svarti Laxness [IS]
KSF [IS]
Alexander Jarl [IS]
Fox Train Safari [IS]
Geimfarar [IS]
Marteinn [IS]
ILO [IS]
Sonur Sæll [IS]
Brother Big [IS]
Rob Shields [UK]
Balcony Boyz [IS]
Will Mills [UK]
Þau nöfn sem bæst hafa við
Bernhard ehf • Vatnagörðum 24 - 26 • Sími 520 1100
Umboðsaðilar: Reykjanesbæ, Bernhard, sími 421 7800 • Akranesi, Bílver, sími 431 1985
Akureyri, Höldur, sími 461 6020 • Vestmannaeyjum, Bragginn, sími 481 1535
PEUGEOT 308
kostar frá kr. 3.190.000
Þó Peugeot 308 hafi hlotið fjölda verðlauna út um allan heim þá
eru það ekki bara verðlaunin sem skera hann frá samkeppninni.
Ómótstæðilegir aksturseiginleikar, gott rými fyrir bæði farþega
og farangur, eyðslugrannar og endingargóðar vélar*, hvort sem
er dísil eða bensín, með eldsneytiseyðslu frá 3,1L/100km og CO2
útblástur frá 82g/km, þá eru þetta eiginleikar sem einfaldlega
er erfitt og nær ómögulegt að keppa við.
Komdu og prófaðu Peugeot 308 hjá okkur í Vatnagörðunum,
bíl sem á sér ekki jafningja.
PEUGEOT 308
SPARNEYTIÐ
LJÓN Á VEGINUM
CO2 82g - ELDSNEYTISEYÐSLA 3,1L/100km
*
Endalaust
ENDALAUST
NET
1817 365.is
31 nýtt nafn hefur
bæst í hóp þeirra
listamanna sem
fram koma á Secret
Solstice-hátíðinni í
sumar. Suður-afríska
rapptvíeykið Die
Antwoord, banda-
ríski rappdúettinn
M.O.P og franski
tónlistarmaðurinn St
Germain eru á meðal
þeirra sem bæst hafa
í hópinn.
Þekktasta
lag M.O.p. er
án efa lagið
Ante Up sem
kom út árið
2000.
ÞAð er gríðArlegA
gAMAn Að kOMA
tónleikAgeStuM á óvArt
einS Og við gerðuM á SíðAStA
ári Með BuStA rhyMeS.
Gunnar Leó
Pálsson
gunnarleo@frettabladid.is
Þekktasta lag
M.O.P. er án efa
lagið Ante Up
sem kom út árið
2000.
3 . m a r s 2 0 1 6 F I m m T U D a G U r54 L í F I ð ∙ F r É T T a B L a ð I ð
0
3
-0
3
-2
0
1
6
0
4
:2
4
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
8
A
7
-1
1
F
0
1
8
A
7
-1
0
B
4
1
8
A
7
-0
F
7
8
1
8
A
7
-0
E
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
8
0
s
_
2
_
3
_
2
0
1
6
C
M
Y
K