Fréttablaðið - 03.03.2016, Blaðsíða 4
Ef fólk skoðar hvað
er á bak við þessa
vinnu, hvers konar sérfræði-
kunnátta það er. Ef þeir
ætluðu að fá ráðgjafa úti í bæ,
lögfræðinga eða aðra sér-
fræðinga, til að sinna þessu,
þá er ljóst að þessi stjórnar-
laun sem eru í dag myndu
ekki duga fyrir þessum
reikningi.
Heiðar Guðjónsson,
fjárfestir og stjórnar-
formaður Fjarskipta
Forstjóri Mánaðarlaun* Hækkun í % Laun stjórnar- Laun stjórnar- Hækkun í %
milli ára formanns** manna** milli ára
Össur Jón 19,2 1,7% 963 386 4,1%
Sigurðsson
Marel Árni Oddur 6,6 34,3% 1.169 390 0,0%
Þórðarson
Eimskip Gylfi 6,1*** 10,4% 575 290 4,5%
Sigfússon
Icelandair Björgólfur 4,5 17,0% 600 300 9,1%
Jóhannsson
Fjarskipti Stefán 4,2 Hóf störf í 500 250 18,6%
Sigurðsson maí 2014
N1 Eggert Þór 3,7 Hóf störf í 630 315 8,6%
Kristófersson febrúar 2015
TM Sigurður 3,6 0,0% 770 385 10,0%
Viðarsson
HB Grandi Vilhjálmur 3,5 18,5% Liggur ekki fyrir Liggur ekki fyrir Liggur ekki fyrir
Vilhjálmsson
Sjóvá Hermann 3,4 3,4% 600 300 9,1%
Björnsson
Síminn Orri 3,4 2,1% 650 325 8,3%
Hauksson
VÍS Sigrún Ragna 3,3 8,3% 600 350 0,0%
Ólafsdóttir
Nýherji Finnur 3,1 46,0% 450 150 15,4%
Oddsson
Reitir Guðjón 3,0 13,7% 600 300 15,4%
Auðunsson
Eik Garðar Hannes 2,8 17,9% Liggur ekki fyrir Liggur ekki fyrir Liggur ekki fyrir
Friðjónsson
Reginn Helgi S. 2,6 0,0% Liggur ekki fyrir Liggur ekki fyrir Liggur ekki fyrir
Gunnarsson
*Meðalgreiðslur og hlunnindi á mánuði í milljónum króna árið 2015 . **Laun stjórnarformanna og stjórnarmanna í þúsundum króna
verði tillögur um launakjör þeirra samþykktar á aðalfundum. ***Upphæð inniheldur lífeyrissjóðsgreiðslur
✿ Laun forstjóra og stjórnarmanna í Kauphöll Íslands
ViðSKipti Meðallaun forstjóra í
Kauphöllinni voru 4,9 milljónir á
mánuði á síðasta ári og hækkuðu
um 13,3 prósent milli ára. Meðal-
árshækkun launavísitölu Hagstofu
Íslands var nær helmingi lægri, eða
7,2 prósent árið 2015.
Samkvæmt tillögum stjórna fyrir
aðalfundi Kauphallarfélaganna er
lagt til að launahækkanir nemi að
meðaltali 8,6 prósentum milli ára.
Mest er lagt til að laun stjórnar-
manna í Fjarskiptum, móðurfélagi
Vodafone, hækki eða um 18,6 pró-
sent. Almenn launahækkun sam-
kvæmt Salek-samkomulaginu er
6,2 prósent frá áramótum.
Mikil vinna í hvern stjórnarfund
Heiðar segir að mikil vinna fari í
hvern stjórnarfund, sem sé að jafn-
aði einn á mánuði. „Undirbúningur
fyrir stjórnarfund er á bilinu tíu til
tuttugu tímar eftir því hvenær árs-
ins þetta er og hvers konar fundur
þetta er,“ segir Heiðar. Við þetta
bætist svo tíminn sem fari í fund-
inn sjálfan.
„Ef fólk skoðar hvað er á bak við
þessa vinnu, hvers konar sérfræði-
kunnátta það er. Ef þeir ætluðu að
fá ráðgjafa úti í bæ, lögfræðinga
eða aðra sérfræðinga, til að sinna
þessu, þá er ljóst að þessi stjórnar-
laun sem eru í dag myndu ekki duga
fyrir þessum reikningi,“ segir hann.
Heiðar segir að stjórnarlaun Fjar-
skipta verði áfram fremur lág miðað
við önnur félög á markaðnum og
mun lægri en hjá Símanum, sam-
anburðarfélaginu í Kauphöllinni.
Verði hækkanirnar samþykktar
verða mánaðarlaun stjórnarfor-
manns Fjarskipta 500 þúsund krón-
ur á mánuði og stjórnarmanna 250
þúsund krónur á mánuði en sam-
Forstjóralaun
hækkað vel
umfram
launavísitölu
Meðallaun forstjóra í Kauphöll Íslands voru 4,9
milljónir á síðasta ári og hækkuðu umfram launa-
vísitölu. Forstjóri Össurar fékk 19,2 milljónir á mán-
uði á síðasta ári. Stjórnarformaður Fjarskipta segir
stjórnarlaun lægri en sérfræðiráðgjöf myndi kosta.
bærilegar greiðslur hjá Símanum
eru 650 og 325 þúsund krónur á
mánuði.
Meðallaun stjórnarformanna
verða 676 þúsund krónur á mánuði
verði tillögur samþykktar á aðal-
fundum sem fram undan eru. Hæst
laun fær stjórnarformaður Marel
eða 1.169 þúsund krónur á mánuði
en ekki er lagt til að þau hækki milli
ára.
Formaður SA hækkar um 17%
Hæst laun fær forstjóri Össurar, eða
19,2 milljónir króna á mánuði. Þar á
eftir kemur Árni Oddur Þórðarson,
forstjóri Marel, með 6,6 milljónir í
laun á mánuði. Forstjórar fasteigna-
félaganna þriggja Regins, Reita
og Eikar reka lestina með 2,6-3,0
milljónir á mánuði. Heildarlauna-
greiðslur til Björgólfs Jóhanns-
sonar, forstjóra Icelandair Group
og formanns Samtaka atvinnulífs-
ins, hækkuðu um 17 prósent milli
ára og námu 4,5 milljónum króna
á mánuði.
Ingvar
Haraldsson
ingvar@frettabladid.is
MAnnRéttindi Visar, elsti sonur
hjónanna Skënder og Nazmie Dega,
var lagður inn á geðgjörgæsludeild
um síðustu helgi vegna sjálfsmorðs-
hugsana.
Nýverið var Dega-fjölskyldunni
kynnt niðurstaða kærunefndar útlend-
ingamála um að henni verði vísað úr
landi á meðan mál hennar er fyrir
dómstólum. Að öllu óbreyttu þann
16. mars næstkomandi.
Visar glímir við alvarleg geðræn
veikindi og hefur sótt meðferð við
þeim á Laugarási með góðum árangri
hingað til.
Í læknisvottorði umönnunaraðila er
mælt með því að hann sé ekki fluttur
á milli meðferðaraðila og hvað þá úr
landi á meðan á meðferð hans stendur
vegna álags sem því fylgir. Í sama vott-
orði er mælt með tveggja ára samfelldri
meðferð til að ná tökum á sjúkdómi
hans. Sams konar meðferð er ekki að
fá í Albaníu.
„Starfsmenn á Laugarási hafa stutt
dyggilega við bakið á honum og mættu
til að mynda þó nokkrir þeirra á lög-
reglustöðina á Hverfisgötu þegar fjöl-
skyldunni var kynntur úrskurðurinn
því þeir vissu hvaða áhrif neikvæður
úrskurður myndi hafa á hann,“ segir
Björg Valgeirsdóttir, lögfræðingur
fjölskyldunnar, sem ætlar sér að óska
eftir endurskoðun ákvörðunar um að
vísa þeim úr landi á meðan mál þeirra
er fyrir dómi í ljósi breyttra aðstæðna.
Dega-fjölskyldan leitaði hælis hér á
landi í lok júlí í fyrra. Þau hjónin eiga
þrjú börn, Visar, Vikar og Joniöndu,
og hafa undanfarna mánuði búið í
Hafnarfirði þar sem yngri systkinin
ganga í skóla. – kbg
Á geðgjörgæslu eftir niðurstöðuna
Dega-fjölskyldan fer til Albaníu þann 16. mars að öllu óbreyttu. Visar liggur á geðgjör-
gæsludeild 32A á Landspítala vegna sjálfsmorðshugsana. FréttAbLAðið/Anton
3 . M A R S 2 0 1 6 F i M M t U d A G U R4 F R é t t i R ∙ F R é t t A B L A ð i ð
0
3
-0
3
-2
0
1
6
0
4
:2
4
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
A
7
-1
6
E
0
1
8
A
7
-1
5
A
4
1
8
A
7
-1
4
6
8
1
8
A
7
-1
3
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
8
0
s
_
2
_
3
_
2
0
1
6
C
M
Y
K