Fréttablaðið - 03.03.2016, Blaðsíða 42
Þrátt fyrir smæð landsins hafa ís-
lensk iðnfyrirtæki náð ótrúleg-
um árangri í nýsköpun þótt við
eigum vissulega styttri iðnaðar-
sögu en flest nágrannalönd okkar.
Vegna smæðar hafa fyrirtæki hér
á landi almennt ekki haft efni á að
eyða miklum fjármunum í grunn-
rannsóknir og þurft að einbeita
sér frekar að nýsköpunarstarfi
með verðmætasköpun að leiðar-
ljósi, að sögn Davíðs Lúðvíksson-
ar, forstöðumanns stefnumótunar
og nýsköpunar hjá Samtökum iðn-
aðarins (SI).
En þrátt fyrir smæðina eru ís-
lensk iðn- og nýsköpunarfyrirtæki
að ná ótrúlegum árangri og fram-
kvæma „mission impossible“ á
hverjum degi, að sögn Davíðs. „Það
gera sér t.d. ekki allir grein fyrir
þeim miklu breytingum sem hafa
átt sér stað á stuttum tíma á skipt-
ingu gjaldeyristekna þjóðarinn-
ar. Margir halda að við lifum enn
bara á fiski en staðreyndin er sú að
hlutfall hefðbundinna sjávarafurða
í heildargjaldeyristekjum okkar á
síðasta ári, skv. bráðbirgðatölum
frá Hagstofu Íslands, er tæp 24%
meðan gjaldeyristekjur af ýmsum
iðnaði, sérfræðiþjónustu og hug-
verki er komin fram úr þeirri tölu.
Að viðbættri stóriðju stendur iðn-
aðurinn fyrir um 44% af heildar-
gjaldeyrisstekjum landsins.“ Vöxt-
ur í ferðaþjónustu hefur líka verið
mikið ævintýri, að sögn Davíðs,
en það kemur kannski mörgum á
óvart að útflutningur og umsvif í
tækni- og hugverkagreinum, þ.m.t.
tölvu- og leikjaiðnaði, líftækni- og
heilbrigðisiðnaði og kvikmynda-
gerð vaxi enn hraðar. „Ég er ekki
að kasta rýrð á mikilvægi ann-
arra greina með þessu, heldur að
benda á þá jákvæðu staðreynd að
við höfum mun fleiri stoðir til að
standa undir okkar lífskjörum í
dag, en áður.“
Fjölmörg tækifæri
En hvað er helst hægt að gera til að
hvetja til enn frekari nýsköpunar?
„Í fyrsta lagi er ljóst að nýsköpunin
verður fyrst og fremst til í höndum
fyrirtækjanna sjálfra og við hjá SI
hvetjum fyrirtæki í öllum greinum
í þeim efnum. Það þarf ekki mikið
trúboð af okkar hálfu því langflest-
ir stjórnendur gera sér vel grein
fyrir mikilvægi nýsköpunar. Okkar
hlutverk er hins vegar að byggja
meira í haginn fyrir fyrirtækin
og skapa þeim rétt starfsskilyrði í
samstarfi við stjórnvöld. Verkefnið
snýst um að auka nýsköpunarhrað-
ann, verðmætasköpun og um leið
efla samkeppnisstöðu Íslands í al-
þjóðlegu samhengi.“
Skattalegir hvatar til eflingar
rannsóknar- og þróunarstarfs vega
hér þungt, að sögn Davíðs. „Kerf-
ið sem okkur tókst að koma á 2009
í kjölfar hrunsins hefur skipt mjög
miklu máli fyrir nýsköpun innan
fyrirtækja. Þetta kerfi þarf að
þróa áfram, m.a. með því að aflétta
þökum af umfanginu, því ríkissjóði
eru í raun tryggðar meiri tekjur
eftir því sem fyrirtækin stunda
meiri rannsóknir og þróunarstarf.
Þá hafa fjárframlög til Tækniþró-
unarsjóðs verið aukin myndarlega
á þessu ári. Það sem helst vantar
núna er að að auka fjárfestingar
einstaklinga og starfsmanna í ný-
sköpunarfyrirtækjum, m.a. gegn-
um skattalega hvata. Ef framan-
greint væri gert ásamt umbótum
til að auðvelda fyrirtækjum að laða
sérfræðinga til landsins, værum
við langt komin með að skapa
mjög samkeppnishæft og aðlaðandi
starfsumhverfi fyrir fólk og fyrir-
tæki í nýsköpun.“
Tækifærin til nýsköpunar hafa
í raun aldrei verið meiri en í dag
að sögn Davíðs og vaxtarbroddarn-
ir í iðnaðinum aldrei verið fleiri.
„En við stöndum líka frammi fyrir
ögrandi viðfangsefnum á mörgum
sviðum, bæði í fyrirtækjum og hjá
stjórnvöldum. Þar má nefna lofts-
lagsmálin, heilbrigðis- og mennta-
málin, byggðaþróun, samgöngu-
málin, öryggismálin og ekki síst
upplýsingasamfélagið sem snertir
okkur öll. En þarna eru líka óþrjót-
andi tækifæri til að þróa betri og
hagkvæmari lausnir sem koma
okkur öllum til góða. Iðnaðurinn
mun ekki sitja hjá við lausn slíkra
verkefna.“
Ótrúlega góður árangur í nýsköpun
Nýsköpun í iðnaði hefur gengið ótrúlega vel miðað við smæð markaðarins og stutta sögu iðnaðar hér á landi. Hún skiptir miklu máli því
iðnaður, ásamt stóriðju, stendur samtals fyrir um 44% af heildargjaldeyristekjum landsins. Fjölmörg tækifæri eru fram undan.
„Verkefnið snýst um að auka nýsköpunarhraðann, verðmætasköpun og um leið
efla samkeppnisstöðu Íslands í alþjóðlegu samhengi,“ segir Davíð Lúðvíksson, for-
stöðumaður stefnumótunar og nýsköpunar hjá Samtökum iðnaðarins. MYND/ERNIR
Vinnuvélaleiga Vélavits tekur til starfa með vorinu
Allar nánari upplýsingar í s: 527-2600
S: 5272600 - www.velavit.is
Varahlutir - Viðgerðir
Vélavit
Sala Þjónusta
ÍSLENSkuR IðNaðuR kynningarblað
3. mars 20168
0
3
-0
3
-2
0
1
6
0
4
:2
4
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
8
A
7
-0
D
0
0
1
8
A
7
-0
B
C
4
1
8
A
7
-0
A
8
8
1
8
A
7
-0
9
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
8
0
s
_
2
_
3
_
2
0
1
6
C
M
Y
K