Fréttablaðið - 18.03.2016, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 18.03.2016, Blaðsíða 24
„Það kom mörgum á óvart þegar ég ákvað að flytja til Dan­ merkur. Konan mín vildi fara til að klára ljósmyndanámið sitt en ég var búin að láta hana bíða lengi af því að ég var að gefa út plötu á sama tíma og var í raun sjálfselsk­ ur vitleysingur. Á endanum ákvað hún að fara hvað sem ég segði og ég fylgdi auðvitað á eftir,“ segir Bjössi og brosir. Við sitjum á Kjar­ valsstöðum yfir rjúkandi kaffi­ bolla, Bjössi er hlýlegur í fasi og brosmildur, allt öðruvísi en rokk­ trommarinn úr Mínus sem blaða­ maður var búinn að gera sér mynd af í kollinum. „Ég hafði lítið fyrir stafni fyrst um sinn, lenti í nokkurs konar „mid midlife crisis“,“ lýsir hann glettinn en segist þó smám saman hafa áttað sig á því hve frábært tækifæri væri að komast út fyrir sitt íslenska þægindasvæði og byrja upp á nýtt. „Ég vann á leik­ skóla í Helle rup um tíma og fór síðan í inntökupróf í leiklistar­ skóla og komst inn, sem ég bjóst alls ekki við.“ Darri vakti neistann Bjössi segir leiklistaráhugann hafa blundað með sér lengi. Hins vegar hafi hann aldrei látið hann uppi enda hafi rokkarar mjög skýra mynd af því hvað leikari er. „Það er manneskjan sem stendur uppi á borði í partíi og lætur eins og hálf­ viti,“ segir hann og skellir upp úr. Hann veit reyndar upp á hár hve­ nær neistinn kviknaði. „Það var þegar ég var fenginn til að tromma í sýningunni Jesus Christ Super­ star. Ég var niðri í hljómsveitar­ gryfju að stilla trommurnar þegar ég heyri allt í einu að ofan, kallað mjóróma röddu. „Hæææ!! Hvað ertu að gera?“ Þegar ég lít upp er þar Ólafur Darri með hönd á kinn eins og kötturinn í Lísu í Undra­ landi, að tala við mig. Ég hugsaði með mér, djöfull er þetta skemmti­ legt!“ krefjanDi nám Leiklistarnámið var þriggja ára krefjandi nám. „Ég efaðist oft um ákvörðun mína og spurði mig oft: hvað er ég að gera hérna?“ segir Bjössi sem var eini útlendingurinn í nemendahópnum og kunni auk þess litla dönsku. „Fyrsta árið var mjög erfitt en allir voru mjög um­ burðarlyndir og einn bekkjarfélagi minn tók að sér að kenna mér hár­ réttan framburð enda vildi ég ekki vera þessi þarna með hreiminn.“ fjölmörg verkefni Verkefnin létu ekki á sér standa þegar Bjössi lauk námi. „Bene­ dikt Erlingsson bauð mér að taka þátt í uppfærslu á Jeppa á Fjalli um það leyti sem ég útskrifaðist. Við urðum því að taka afar skjóta ákvörðun um hvort við vildum flytja aftur heim en þá vorum við búin að vera úti í fimm ár,“ segir Bjössi sem var stiginn um borð í flugvélina hálfum mánuði síðar. Verkefnið var enda spennandi þar sem það sameinaði áhugamál hans tvö. Hann spilaði á trommur milli þess sem hann stökk í að leika hin ýmsu hlutverk. Önnur hlutverk fylgdu í kjölfar­ ið. Bjössi lék til dæmis stórt hlut­ verk í Mávinum. „Sýningin gekk mjög vel og við erum á leið með hana til Póllands í maí,“ upplýsir hann. Auk þess hefur hann á þessu leikári leikið í Línu Langsokk, Billy Elliott og Njálu. „Þetta er búið að vera sturlað ár, ég hef eig­ inlega ekki gert neitt annað en að vera uppi í leikhúsi,“ segir Bjössi í Mínus en viðurnefnið fylgir honum enn í dag. Hann segist alveg sáttur við það. „Ég er oft kallaður þetta í leikhúsinu til að aðgreina mig frá hinum Bjössunum, Bjössa Thors og Bjössa ljósamanni.“ fyrirtaks vonDur karl Bjössi vakti óskipta athygli fyrir túlkun sína á hórmangaranum Þór í sjónvarpsþáttunum Rétti en Þór var vatnsgreiddur siðblindingi sem fékk hárin til að rísa. „Þessi karakter kom einhvern veginn bara til mín,“ segir Bjössi sem fannst skemmtileg áskorun að tak­ ast á við að skapa vonda karlinn. „Viðbrögðin voru ótrúleg og oft hitti ég fólk sem var hissa á því að ég væri ekki alger viðbjóður.“ Hommi í HryllingsmynD Nú þegar um hefur hægst í leik­ húsinu hefur Bjössi meiri tíma fyrir önnur verkefni. Það næsta eru tökur á kvikmynd sem fram fara í næstu viku. „Ég er að fara að leika samkynhneigðan mann í hryllingsmynd sem heitir Rökk­ ur. Leikstjórinn er Erlingur Óttar Thoroddsen.“ Hann er glaður að fá að takast á við nýja áskorun. „Ég er mjög spenntur fyrir þessu verk­ efni og í senn skíthræddur ein­ hvern veginn, en það heldur manni á tánum.“ Býr Hjá tengDó Bjössi býr ásamt eiginkonu sinni, ljósmyndaranum Írisi Dögg Ein­ arsdóttur, og börnum þeirra tveimur, Sölku tíu ára og Stormi fjögurra ára, heima hjá tengda­ foreldrum sínum. „Þegar við fluttum heim fyrir þremur árum vorum við með mikinn yfirdrátt og ástandið á húsnæðismarkaðn­ um eins og það er. Við vorum að leigja en svo var húsnæðið selt. Þá þurftum við að ákveða hvort við vildum leigja og eiga aldrei neinn pening, eða flytja í foreldrahús til að safna fyrir útborgun í íbúð. Við völdum seinni kostinn. Það er auðvitað ekki alltaf auðvelt en nú sjáum við fyrir endann á þessu.“ Bjössi segist mikill fjölskyldu­ maður og því hafi verið mjög erf­ itt að vinna svona mikið síðasta árið. „En ég var duglegur að taka dóttur mína með í leikhúsið. Það er svo fallegt hvað Borgarleikhús­ ið er barnvænn vinnustaður, þang­ að eru börnin alltaf velkomin.“ enn að spila Bjössi hefur ekki lagt kjuðana á hilluna þrátt fyrir nýjan og far­ sælan feril. „Ég er í hljómsveit sem heitir Skepna ásamt þeim Halli Ingólfssyni og Herði Stef­ ánssyni,“ segir Bjössi, sem upp­ götvaði snemma eftir útskrift að hann gæti alls ekki sleppt því að vera rokktrommuleikari. Reyndar sneri hann heim úr námi trommu­ laus og er sú saga sorgleg en með fallegum endi. grét nánast af gleði Bjössi átti tvö trommusett. „Eitt Premier­sett og svo Ludwig­sett í stíl Ringo Starr frá árinu 1967 sem ég erfði eftir föður minn og þótti afar vænt um. Premier­settið eyði­ lagðist árið 2010 þegar skemmti­ staðurinn Batteríið brann,“ rifjar Bjössi upp en gamla settið pabba síns fór hann með til Danmerk­ ur. „Ég var að dunda mér við að gera það upp og fékk að geyma það uppi í skóla á meðan ég skrapp til Íslands yfir sumartímann. Þegar ég kom heim úr sumarfríi komst ég að því að skólastjórinn hafði hent settinu í ógáti og sú uppgötv­ un var mjög tilfinningaþrungin.“ Íris Dögg huggaði manninn sinn eftir bestu getu. „Við höfum verið saman í fimmtán ár og gift í fimm. Hún hefur séð mínar bestu og verstu stundir,“ segir Bjössi og greinilegt að væntumþykj­ an er mikil á báða bóga. Það var svo í haust að hún bauð honum á stefnumót. „Ég fór í mitt fínasta, keypti blóm og gjöf handa henni. Ég fór að sækja hana á vinnu­ stofuna hennar og hún tók á móti mér gullfalleg að vanda. Hún fór með mig í stúdíóið sitt og þar beið mín uppsett silfurgljáandi Lud­ wig­trommusett af sömu týpu og pabbi átti, skreytt hvítum blöðr­ um,“ segir Bjössi og gleðin skín úr augunum. „Ég get varla lýst tilfinningunni en orðatiltækið að gráta af gleði hefur aðra þýðingu en áður.“ solveig@365.is Eiginkona Bjössa, Íris Dögg Einarsdóttir ljósmyndari, tók myndirnar af eiginmanni sínum. MynD/Íris Dögg EinarsDóttir mynDaalBúmið Bjössi með fjölskyldu sinni, eiginkonunni Írisi Dögg Einarsdóttur og börn- unum sölku og stormi. Bjössi fékk trommusett að gjöf. frá Írisi Dögg, en það er fal- legasta gjöf sem honum hefur hlotnast. fólk er kynningarBlað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: svanur Valgeirsson | Umsjónarmenn efnis: sólveig gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351, vera einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357 | Sölumenn: atli Bergmann, atlib@365.is, s. 512 2447, Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365. is, s. 512 5434, Jóhann Waage, johannwaage@365.is, s. 512 5439, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 Bjössi leikur í njálu þessa dagana. Hér er hann í gervinu ásamt dóttur sinni sölku. 1 8 . m a r s 2 0 1 6 F Ö s T U D a G U r2 F ó l k ∙ k y n n i n G a r b l a ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ i ∙ l í F s s T í l l 1 8 -0 3 -2 0 1 6 0 4 :5 4 F B 0 7 2 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 8 D 0 -B 8 7 8 1 8 D 0 -B 7 3 C 1 8 D 0 -B 6 0 0 1 8 D 0 -B 4 C 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 7 2 s _ 1 7 _ 3 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.