Fréttablaðið - 18.03.2016, Blaðsíða 70
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hjördís
Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli
Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI:
Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson
vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Ég setti mÉr
markmið þegar Ég
byrjaði að rappa að Ég
ætlaði að spila á solstice
2015 og að spila í eyjum 2016
og það er að ganga upp
Herra Hnetusmjör
Nokkur af heitustu nöfnum hip hop-senunnar á Íslandi koma fram á Húkkaraballinu í Vest-
mannaeyjum í ár en það eru GKR,
Herra Hnetusmjör og Sturla Atlas sem
koma fram á ballinu.
„Þetta leggst mjög vel í mig, það
er geggjað að fá að spila á Þjóðhátíð
í Eyjum, ég hef aldrei farið þangað
áður,“ segir tónlistarmaðurinn og
leiklistarneminn Sigurbjartur Sturla
Atlason, betur þekktur sem Sturla
Atlas.
Gaukur Grétuson, betur þekktur sem
GKR, tekur í sama streng: „Ég hef aldr-
ei farið á Þjóðhátíð áður og ég hlakka
bara til að spila. Ég veit ekki hversu
spenntur ég er því ég var bara að fá að
vita að ég sé að fara að spila þarna,“
segir rapparinn GKR léttur í lundu.
Annar rappari, Árni Páll Árnason,
betur þekktur sem Herra Hnetu-
smjör, hefur einnig verið geysilega
vinsæll undanfarið ár en hann hefur
aldrei farið á Þjóðhátíð. „Mér líst bara
megavel á þetta, það er sturlað að vera
að fara að spila í Eyjum. Ég setti mér
markmið þegar ég byrjaði að rappa að
ég ætlaði að spila á Solstice 2015 og að
spila í Eyjum 2016 og það er að ganga
upp,“ segir Herra Hnetusmjör fullur
tilhlökkunar.
Í fyrra kom Páll Óskar fram á Húkk-
araballinu en ballið markar að nokkru
upphaf þeirrar tónlistarveislu sem
fram undan er á Þjóðhátíð um versl-
unarmannahelgina.
Allir listamennirnir sem fram koma
á Húkkaraballinu í ár hafa verið mjög
vinsælir undanfarið ár. Sturla Atlas
sló í gegn þegar hann sendi frá sér
lagið Over Here í maí á síðasta ári og
í kjölfarið fylgdu lög á borð við San
Francisco og Snowin. GKR sendi frá
sér lagið Morgunmatur í október á
síðasta ári og má segja að lagið hafi
skotið honum upp á stjörnuhimin-
inn því það varð mjög vinsælt. Þá
hefur Herra Hnetusmjör einnig verið
að gera það gott og voru lögin Selfie,
Hvítur bolur og Jámarh sem komu út
á síðasta ári mjög vinsæl.
Þó svo að þetta sé fyrsta Þjóðhátíð-
in hjá þeim félögum hafa þeir Sturla
Atlas og Herra Hnetusmjör í hyggju að
dvelja örlítið lengur á Heimaey eftir
Húkkaraballið. „Ég er mjög spenntur
og það kemur jafnvel til greina að
maður verði í Eyjum
yfir helgina, ég
væri geggjað til
í það. Ég hef
aldrei verið
í kreðsu sem
hefur ákveðið
að fara til Eyja um verslunarmanna-
helgina og svo hef ég líka svo oft verið
í útlöndum á þessum tíma,“ segir
Sturla Atlas.
„Það er allt krjúið að fara þannig að
ef það er eitthvað geðveikt veður þá
erum við ekkert að fara taka fyrstu vél
heim,“ bætir Herra Hnetusmjör við.
GKR er þó á öðru máli er varðar
staldur í Eyjum. „Ég held ég verði ekki
yfir helgina. Ég held ég spili og fari
svo aftur til baka,“ segir GKR léttur í
lundu.
Allir eru þeir að vinna í nýju efni og
má því vænta þess að helstu slagarar
verði fluttir á ballinu í bland við nýtt
efni.
Húkkaraballið fer fram fimmtu-
daginn 28. júlí en ekki liggur fyrir
hvar ballið fer fram, það hefur ýmist
farið fram Höllinni, Fiskiðjusundinu
eða Týsheimilinu. Miðasala fer fram
á dalurinn.is. gunnarleo@fretta bladid.is
Hip hop-senan
hertekur
Húkkaraballið
Listamennirnir GKR, Herra Hnetusmjör og Sturla Atlas leiða saman
hesta sína og koma fram á Húkkaraballinu í Vestmannaeyjum í ár.
Náði markmiðinu
Herra Hnetusmjör
hefur verið að gera
það gott að undan-
förnu.
Sturla
Atlas
GKR
FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARINÓ
1 8 . m a r s 2 0 1 6 F Ö s T U D a G U r42 L í F i ð ∙ F r É T T a B L a ð i ð
1
8
-0
3
-2
0
1
6
0
4
:5
4
F
B
0
7
2
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
8
D
0
-9
5
E
8
1
8
D
0
-9
4
A
C
1
8
D
0
-9
3
7
0
1
8
D
0
-9
2
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
7
2
s
_
1
7
_
3
_
2
0
1
6
C
M
Y
K