Fréttablaðið - 18.03.2016, Blaðsíða 4
H V Í T T S Ú K K U L A Ð I E G G
Stjórnmál „Mér finnst að forsætis-
ráðherra verði sjálfur að greina frá
því hvernig þessu máli var fyrir-
komið,“ sagði Bjarni Benediktsson
fjármálaráðherra á Alþingi í gær
við fyrirspurn Óttars Proppé um
eignir Önnu Sigurlaugar Pálsdóttur
á Bresku Jómfrúareyjum.
„Við hljótum að mæla þau mál
út frá þeim lögum og reglum sem
gilda,“ sagði Bjarni. „Ég hef ekki séð
neitt annað sem er fram komið í
þessu máli en að lögum og reglum
hafi verið fylgt og að því leytinu til
er ég ekki í nokkurri stöðu til að
segja að nokkuð óeðlilegt hafi verið
á ferðinni.“
Þá sagði Bjarni það vera fagnaðar-
efni að Alþingi hafi í fyrradag sam-
þykkt nýjar siðareglur þingmanna.
Óttarr tók undir með Bjarna um
ágæti siðareglnanna en þær undir-
striki að þingmenn fylgi ekki bara
ýtrasta lagabókstaf heldur að allt sé
uppi á borðinu.
Þá kom það fram í fyrirspurnar-
tímanum að Bjarni hefði ekki upp-
lýsingar um eignir annarra ráðherra
á Bresku Jómfrúareyjum.
Árni Páll Árnason, formaður Sam-
fylkingarinnar, vék í fyrirspurnar-
tímanum að eignum í skattaskjólum
án þess að snerta beint á tilfelli
Önnu Sigurlaugar.
„Það er fullkomlega óeðlilegt að
tekjur sem verða til á Íslandi í við-
skiptum milli innlendra aðila þegar
einn aðili selur öðrum einhverja
hluti, þjónustu eða vörur, flytjist
í erlend skattaskjól og þar með
undan innlendri skattlagningu,“
sagði Árni Páll og beindi fyrirspurn
sinni til Bjarna um með hvaða hætti
mætti koma í veg fyrir skattaundan-
skot með þessum hætti.
Bjarni sagðist hafa beitt sér fyrir
því að Íslendingar gerðust aðilar
að alþjóðlegum samningum um
upplýsingaskipti um viðskipti ein-
staklinga sem yrðu gerð skattayfir-
völdum aðgengileg.
„Fyrir efnahags- og viðskipta-
nefnd liggja tillögur starfshóps um
hvort við getum stigið frekara skref
í þessum efnum. En alþjóðleg sam-
vinna tel ég að sé langöflugasta
vopnið sem við getum bætt í vopna-
búr okkar,“ sagði Bjarni. – srs
Svarar ekki fyrir forsætisráðherra
manSal Innanríkisráðuneytið ætlar
að taka mið af ábendingum sem
gerðar hafa verið vegna verklags
í mansalsmálum. Meðal annars
vegna nýlegs máls er varðar meint
vinnumansal í Vík í Mýrdal. Þetta
kemur fram í svari til fréttastofu
365 við spurningum um verklag í
meintu mansali í Vík í Mýrdal. Helst
hefur verið gagnrýnd meðferð þol-
enda, tveggja systra frá Srí Lanka.
Þær fengu litla fjárhagsaðstoð og
var boðin sjálfboðaliðavinna við að
flokka föt. Þær báðu um flutning úr
landi og Reykjavíkurborg greiddi
flugferð þeirra samkvæmt reglum
um fjárhagsaðstoð og neyð erlendra
borgara.
Svarið er birt í heild sinni á vef
innanríkisráðuneytisins. Í svari
ráðuneytisins er áætlun um aðgerð-
ir vegna mansalsmála sögð vera í
endur skoðun. Bæði vegna ábendinga
sem gerðar hafa verið á alþjóða-
vettvangi og hér á landi en einnig
breyttra áherslna í málaflokknum,
m.a. vinnumansals. Vinnumansals-
málum hefur fjölgað ört að mati lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Réttargæslumaður systranna gagn-
rýnir helst að þær hafi ekki fengið
að vinna. Þær hefðu átt meiri mögu-
leika á að komast úr viðjum mansals
hefðu þær fengið tækifæri til vinnu
á Íslandi við öruggar aðstæður.
Innanríkisráðuneytið segir að
vegna umfjöllunar um dvalar- og
atvinnuleyfi vilji það að taka fram að
ráðuneytið hafi ekki heimild í
lögum til að beita sér í einstökum
málum en úrlausn umsókna um
slík leyfi séu á forræði annars
vegar Útlendingastofnunar og
hins vegar Vinnumálastofnunar.
Fyrirkomulag dvalar- og atvinnu-
leyfa fórnarlamba mansals er lög-
bundið og verður því ekki breytt
nema með aðkomu Alþingis. – kbg
Taka mið af ábendingum vegna systranna í Vík
reykjavík Áslaug Friðriksdóttir,
borgarfulltrú Sjálfstæðisflokksins,
vill að Reykjavíkurborg efli for-
varnarstarf sitt. Hún lagði tillögu
þessa efnis fram á fundi velferðar-
ráðs Reykjavíkurborgar í gær.
„Meginreglan hefur verið að sinna
þeim sem oft á tíðum eru komin í
mikinn vanda og taka á móti fólki
sem leitar sér aðstoðar en minni
áhersla hefur verið lögð á að vinna
að forvörnum og leiðbeina foreldr-
um og fjölskyldum með almennari
leiðum, s.s. í gegnum fjölmiðla með
skrifum og myndskeiðum til dreif-
ingar á netmiðlum,“ segir Áslaug.
Áslaug segir vel þess virði að
reyna nýstárlegri en áfram fag-
legar leiðir til að ná til fjölskyldna
og leiðbeina þeim. Velferðarsviði
verði falið að útfæra hvernig draga
má fram slíkan fróðleik og kynna
með nýstárlegri hætti en gert hefur
verið. – jhh
Vill aukna
áherslu á
forvarnir
leiðrétt
Í upptalningu á fram komnum
forsetaframbjóðendum í frétt á síðu
2 í gær láðist að geta um bæði Heimi
Örn Hólmarsson og Ara Jósepsson.
Þá var með Árni Björn Guðjónsson,
en hann hefur dregið framboð sitt til
baka. Bryndísi Hlöðversdóttur og
Sigrúnu Stefánsdóttur vantaði í hóp
þeirra sem íhuga framboð.
Bjarni sagðist ekki geta svarað til um
eignir annarra ráðherra erlendis.
FréttaBlaðið/Valli
innanríkisráðuneytið telur lærdóm felast í meintu mansali í Vík í Mýrdal og ætlar
að taka mið af ábendingum. FréttaBlaðið/Stöð2
efnahagSmál Vaxtasparnaður
í tengslum við uppgjör slitabúa
föllnu bankanna með stöðugleika-
framlögunum mun standa undir
fjármögnun nýs Landspítala og
hækka framkvæmdastig hins opin-
bera. Þetta sagði Bjarni Benedikts-
son fjármálaráðherra á ársfundi
Seðlabankans í gær. Þá standi til að
afnema gjaldeyrishöft á þessu ári.
„Ef áfram heldur sem horfir þá
erum við að ná fram á örfáum árum
allt að 25 milljarða árlegum vaxta-
sparnaði og það munar um minna í
þessu samhengi,“ sagði Bjarni. Gert
var ráð fyrir að vaxtagreiðslur ríkis-
ins næmu 75 milljörðum króna árið
2016 í fjárlagafrumvarpi ársins.
Már Guðmundsson seðlabanka-
stjóri sagði á fundinum að til stæði
að halda útboð á aflandskrónum
á fyrri hluta ársins. Í framhaldinu
væri hægt að fara tiltölulega hratt
í afnám gjaldeyrishafta á innlenda
aðila. Hins vegar væri heppilegt að
stjórntæki sem takmarka svokölluð
vaxtamunarviðskipti væru tilbúin
þegar útboðið færi fram. Helst væri
horft til skatts eða bindiskyldu í
þeim efnum en til þess þyrfti laga-
breytingu. Erlendir aðilar hafa
aukið eignarhlut sinn í ríkisskulda-
bréfum um 64 milljarða króna frá
upphafi síðasta árs.
Bjarni sagði að stefnt væri að því
að leggja fram frumvarp sem taka
ætti á þessu á vorþingi, áður en
frestur til lagningar nýrra þingmála
rennur út en ekki lægi fyrir hvor
leiðin yrði farin.
Seðlabankastjóri sagði stöðu
efnahagsmála í landinu góða. Hins
vegar gæti sú staða breyst hratt.
„Okkur hættir til að gera mistök í
hagstjórn í uppsveiflum og túlka
tímabundna búhnykki sem varan-
lega. Ef sú saga endurtekur sig gæti
innlend eftirspurn og verðbólga
risið hærra en hér er gert ráð fyrir,“
sagði Már.
Bjarni taldi ekki óheppilegt að
auka ætti framkvæmdir hins opin-
bera þegar útlit er fyrir vaxandi
spennu hagkerfinu. „Það er lykil-
atriði í því sambandi að það hefur
aldrei staðið til að reisa spítalann
að nýju á einu ári, þetta eru fram-
kvæmdir sem taka langan tíma og
það eru ytri mörk á því hversu mikið
er hægt að gera í senn,“ sagði Bjarni.
Bjarni tók engu að síður undir orð
Más um að ekki mætti fara of geyst í
hagstjórninni. „Það sem við þurfum
er hugarfarsbreyting hjá öllu stjórn-
kerfinu til að laga sig að meiri aga
og minni skammtímareddingum,“
sagði Bjarni. „Nú reynir á það á
næstu misserum og árum hversu
mikið við erum tilbúin að leggja á
okkur til að ná langtímaárangri.“
ingvar@frettabladid.is
Lægri vaxtagreiðslur standi
undir byggingu nýs spítala
Fjármálaráðherra segir stöðugleikaframlög geta sparað ríkinu 25 milljarða í vexti á ári. Hann boðar afnám
hafta á árinu. Frumvarp sem tekur á vaxtamunarviðskiptum væntanlegt á vorþingi, fyrir aflandskrónuútboð.
Það sem við þurfum
er hugarfarsbreyting
hjá öllu stjórnkerfinu til að
laga sig að meiri aga og
minni skammtímaredd-
ingum.
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra
Bankastjórar gæslu-
menn almannagæða
Már Guðmundsson seðlabanka-
stjóri sagði í ávarpi sínu brýnt að sú
menning og siðferði sem var við
lýði í fjármálakerfinu sneri ekki aftur.
„Mér sýnist að umtalsverð bragarbót
hafi þegar átt sér stað hér á landi. En
það má gera betur og þetta er lang-
tímaverkefni. Það þarf líka að festa
í sessi þann skilning að stjórnendur
innlánsstofnana hafa ekki einungis
það hlutverk að hámarka hagnað til
skamms tíma heldur eru þeir, eins
og kerfið er nú byggt upp, gæslu-
menn almannagæða sem eru þeir
sameiginlegu innviðir sem fólgnir
eru í kerfinu,“ sagði Már.
Már Guðmundsson og Bjarni Benediktsson voru sammála um að aðstæður í efnahagslífinu væru góðar þó áfram þyrfti að vera
á varðbergi. Við hlið Bjarna sat Guðmundur Árnason, ráðuneytisstóri í fjármálaráðuneytinu. FréttaBlaðið/SteFÁn
Meginreglan hefur
verið að sinna þeim
sem oft á tíðum eru komin í
mikinn vanda.
Áslaug Friðriksdóttir
borgarfulltrúi
1 8 . m a r S 2 0 1 6 f Ö S t U D a g U r4 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
1
8
-0
3
-2
0
1
6
0
4
:5
4
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
D
0
-9
A
D
8
1
8
D
0
-9
9
9
C
1
8
D
0
-9
8
6
0
1
8
D
0
-9
7
2
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
7
2
s
_
1
7
_
3
_
2
0
1
6
C
M
Y
K