Fréttablaðið - 18.03.2016, Blaðsíða 68
Kíktu á úrvalið
í vefversluninni á
michelsen.is/fermingar
Laugavegi 15 og Kringlunni
Sími 511 1900 - www.michelsen.is
Casio Retro
11.900 kr.
Michelsen Tradition
73.000 kr.
Armani Classic
40.200 kr.
Jacques Lemans
Liverpool
25.700 kr.
Fossil Grant
21.100 kr.
Fallegar
fermingar-
gjafir
– fyrir stráka
Hljómsveitirnar Ensími og 200.000
Naglbítar ætla að sameina krafta
sína og halda sameiginlega tón-
leika í Reykjavík og á Akureyri um
miðjan apríl næstkomandi. Það
þarf vart að kynna þessar sveitir
enda landskunnar en báðar voru
þær stofnaðar á tíunda áratug síð-
ustu aldar.
Holl samkeppni
„Þetta hefur meira verið svona holl
samkeppni, það vilja auðvitað allir
vera aðal, með flottustu lögin og
flottastir á sviðinu. En þetta hefur
ekkert verið svona Oasis-Blur met-
ingur,“ segir Vilhelm Anton Jóns-
son, söngvari og gítarleikari hljóm-
sveitarinnar 200.000 Naglbítar,
léttur í lundu, spurður út í hvort
rígur sé á milli hljómsveitanna.
„Mér finnst Ensími vera ótrúlega
flott hljómsveit og við værum
örugglega ekki að þessu nema
hljómsveitirnar fíluðu hvor aðra,“
bætir hann við.
Franz Gunnarsson, gítarleikari
Ensími, tekur í sama streng. „Það
hefur ekki verið mikill
rígur, áður fyrr var dálít-
ill samgangur og við
spiluðum nokkrum
sinnum saman á síð-
ustu öld. Það hefur
lítið farið fyrir því
að undanförnu en
auðvitað höfum
við verið að hitt-
ast eitthvað á
förnum vegi og
þessari pæl-
ingu hefur
verið hent
eitthvað
f r a m
en nú var ákveðið að það væri
kominn tími á þetta,“ segir Franz.
Gæta hófs í tónleikahaldi
Ensími hefur gefið út fimm breið-
skífur og Naglbítarnir þrjár en
báðar eiga sveitirnar það sam-
eiginlegt að hafa gætt hófs í tón-
leikahaldi á ferli sínum. „Við höfum
aldrei farið í það að vera að spila
um hverja helgi. Við vorum að spila
meira en við gerum í dag en höfum
aldrei verið að spila á fullu úti um
allt,“ segir Villi.
Eins og margir vita eru meðlimir
Ensími flestir í fleiri hljómsveitum
eins og Dr. Spock og að spila með
Mugison og fleirum og því hefur
oft gengið illa að ná mönnum
saman til tónleikahalds. „Við erum
voða mikið úti um allar trissur að
spila með hinum og þessum þann-
ig að tónleikahald hefur aðallega
verið í gangi þegar við höfum verið
að gefa eitthvað út,“ útskýrir Franz.
Ensími gaf síðast út breiðskífuna
Herðubreið á síðasta ári og Naglbít-
arnir gáfu síðast út breiðskífu árið
2003 sem ber titilinn Hjartagull en
sveitin gaf þó út plötu með Lúðra-
sveit verkalýðsins árið 2007.
Nýtt efni væntanlegt
Bæði Franz og Villi gera allt eins
ráð fyrir því að nýtt efni gæti litið
dagsins ljós á tónleikunum. „Við
erum að semja fullt af nýju efni og
munum örugglega spila eitthvað af
því. Við höfum samið fullt af flottu
og skrítnu stöffi og erum að velta
fyrir okkur hvað við viljum gera við
það,“ segir Villi fullur tilhlökkunar.
Franz segir Ensími eiga gommu
af efni sem sé óútgefið og þegar
síðasta plata kom út átti Ensími
efni í aðra heila plötu. „Það er mikil
gróska innan bandsins í að semja
nýtt efni þannig að ég á alveg von
á því að við gerum eitthvað nýtt og
ferskt á næstunni,“ segir Franz.
Kasta upp á hvor byrjar
Ekki liggur fyrir hvor hljómsveitin
byrjar tónleikana og ætla sveitirnar
að láta það ráðast í hljóðprufunni
fyrir tónleikana. „Það verður kast-
að upp á hvor sveitin byrjar í hljóð-
prufunni. Það verður ekkert gefið út
um það hvor byrjar fyrr en tónleik-
arnir hefjast,“ segir Villi.
„Við látum örlögin ráða því hvor
byrjar og það sýnir það einmitt að
það er enginn rígur á milli hljóm-
sveitanna og það er enginn að berj-
ast um að fá að vera „headliner“ og
þess háttar,“ segir Franz.
Þá er einnig hugmyndin að sam-
starf sveitanna haldi áfram og gæti
farið svo að tónleikarnir yrðu fleiri.
„Það er svo aldrei að vita hvað gerist
á þessum tónleikum, það gæti alveg
farið svo að við tækjum Naglbítalag
og þeir tækju Ensímilag eða að við
búum jafnvel saman til nýtt lag,”
bætir Franz við léttur í lundu.
Tónleikarnir fara fram þann 14.
apríl á Gauknum í Reykjavík og
þann 15. apríl á Græna hattinum á
Akureyri. Forsala er hafin á tix.is og
midi.is. gunnarleo@frettabladid.is
Kasta upp á
hvor byrjar tónleikana
Hljómsveitirnar Ensími og 200.000 Naglbítar koma fram á sameiginlegum tónleikum í apríl.
Það hefur enginn „Oasis- og Blur-rígur“ verið á milli sveitanna í gegnum tíðina, heldur ein-
ungis holl samkeppni. Tónleikarnir fara fram á Gauknum og á Græna hattinum.
Hljómsveitin Ensími var stofnuð í
Reykjavík árið 1996.
Breiðskífur sveitarinnar eru:
Kafbátamúsík – 1998
BMX – 1999
Ensími – 2002
Gæludýr – 2010
Herðubreið - 2015
200.000 Naglbítar var stofnuð
á Akureyri árið 1993. Breiðskífur
sveitarinnar eru:
Neóndýrin - 1998
Vögguvísur fyrir skuggaprins -
2000
Hjartagull – 2003
BreiðsKífur hljóm-
sveitanna
Þetta hefur meira
verið svona holl
samKeppni, Það vilja
auðvitað allir vera
aðal, með flott-
ustu lögin og
flottastir á
sviðinu. en
Þetta hefur
eKKert verið
svona oasis -
Blur-rival.
Vilhelm Anton
Jónsson
Hljómsveitirnar Ensími og 200.000 Naglbítar eru vinasveitir miklar og ætla sameina krafta sína á tvennum tónleikum í apríl. fréttaBlaðið/ErNir
1 8 . m a r s 2 0 1 6 F Ö s T U D a G U r40 L í F i ð ∙ F r É T T a B L a ð i ð
1
8
-0
3
-2
0
1
6
0
4
:5
4
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
8
K
_
N
Y
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
8
D
0
-A
9
A
8
1
8
D
0
-A
8
6
C
1
8
D
0
-A
7
3
0
1
8
D
0
-A
5
F
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
7
2
s
_
1
7
_
3
_
2
0
1
6
C
M
Y
K