Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2008, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2008, Page 8
8 FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2008 Fréttir DV Ólympíuleikarnir 2008 Undirbúningur vegna leikanna er vel á veg kominn. Darfúr al annars fyrir stuðning sinn við ríkisstjórn Súdan. Ríkistjórn Súd- an hefur af mörgum verið sökuð um aðild að þjóðarmorði í Darfúr- héraði. Umsvif Kínverja í Súdan og öðrum Afríkuríkjum hafa aukist mjög hin síðari ár. Sextíu prósent af olíu Súdan eru flutt út til Kína og talið er að Kínverjar útvegi Súd- önum stærstan hluta vopnabúrs landsins. íuleikunum. Kínverski leikstjórinn Zhang Yimou er nú þegar kominn vel á veg með undirbúning opn- unaratriðis leikanna, sem hefjast 8. ágúst. Engu að síður er ákvörð- un Spielbergs talin mjög táknræn og að sögn Miu Farrow kveikir hún veikan vonarneista í málefnum Darfúr. Fjölmargir frægir einstaklingar hafa lagt lóð sín á vogarskálarnar í gagnrýni á samskipti kínverskra stjórnvalda við yfirvöld í Súdan. Þar á meðal eru George Clooney, Don Cheadle, sem lék aðalhlut- verkið í kvikmyndinni Rúanda, Angelína Jolie og Brad Pitt. Einnig hefur hópur nóbelsverðlaunahafa og íþróttamanna sem keppt hafa á ólympíuleikunum sent forseta Kína, Hu Jintao, bréf þar sem þætti kínverskra stjórnvalda í málefn- um Darfúr var harðlega mótmælt. Liu Jianchao, talsmaður kínverska utanríkisráðuneytisins, sagði að Kínverjar bæru þá von í brjósti Ástandið í Darfúr er ein ástæðan fyrir þeim þrýstingi og gagnrýni sem kínversk stjórnvöld verða fyrir í aðdraganda ólympíuleikanna. Erfitt er um vik að nefna nákvæman fjölda þeirra sem látið hafa lífið í Darfúr, að hluta til er þar um að kenna stjórnvöld- um í Súdan, en þau hafa gert fréttamönnum ókleift að fjalla um ástandið þar. (september árið 2006 áætluðu Sameinuðu þjóðirnar að um fjögur hundruð þúsund manns hefðu dáið í Darfúr og um tvær milljónir manna væru á vergangi. Stjórnvöld í Súdan hafa verið Sameinuðu þjóðunum þungur Ijár í þúfu í tilraun stofnunar- innartil að taka á mannréttindamálum í Darfúr og veita neyðaraðstoð. msmmamaamm e? BCínversk stjórnvöld fengu í vik- unni forsmekkinn að þeirri gagn- rýni sem þau geta vænst á ólymp- íuleikunum í sumar. Bandaríski leikstjórinn Steven Spielberg sem hafði tekið að sér hlutverk listræns ráðgjafa á leikunum ákvað fyrr í vikunni, við mikinn fögnuð mann- réttindasamtaka, að gefa stöðuna frá sér. Ástæðan var að hans sögn stuðningur kínverskra stjórnvalda við ríkisstjórn Afríkuríkisins Súd- an. Þrýst á styrktaraðila Ákvörðun Stevens Spielbergs fylgir í kjölfar harðrar gagnrýni mannréttindahópa vegna stöðu mannréttindamála í Kína og vegna ástandsins í Tíbet. Ekld er hægt að útiloka að ákvörðun Spielbergs verði vatn á myllu þeirra sem vilja nota leikana til að þrýsta á kínversk stjórnvöld með tilliti til mannrétt- inda. Þær áhyggjur hafa vaknað að kínversk stjórnvöld reyni nú með öllum ráðum að kæfa gagnrýnar raddir til að tryggja að óæskileg málefni komist ekki í hámæli á ól- ympíuleikunum. Mannréttindahópar hafa heit- ið því að beina spjótum sínum að styrktaraðilum leikanna og segja að þeim sé skylt að beita sér fýrir því að kínversk stjórnvöld standi við þau heit að virða mannréttindi, en þau heit áttu stóran þátt í að ól- ympíuleikarnir féllu Kína í skaut. Á meðal styrktaraðila eru Coca Cola, McDonalds ogKodakogtelja mannréttindasamtök að lóð þess- ara fýrirtækja myndu vega þungt á lóðarskálum mannréttinda í Kína. Leikkona gagnrýnir leikstjóra Forsögu málsins má rekja til mars á síðasta ári, en þá skrifaði leikkonan Mia Farrow grein í Wall Street Journal og gagnrýndi Ste- ven Spielberg harðlega fyrir vænt- anlegt hlutverk hans á ólympíu- leikunum, en hann ætlaði að sjá um listræna útfærslu á opnunar- og lokaviðhöfn leikanna. Mia Far- row kallaði leikana „þjóðarmorð- sleikana" og varaði Spielberg við því að hann ætti á hættu að verða Leni Riefenstahl leikanna. Hún var kvikmyndagerðarmaður í Þriðja ríki Hitlers og kvikmyndaði með- al annars Ólympíuleikana í Berlín 1936. Að mati Farrow var glæpur Spi- elbergs sá að fá greitt fýrir sinn þátt í ólympíuleikum sem báru yfirskriftina „Einn heimur, einn draumur" og með því eiga þátt í að „hvítþvo ímynd Peking" sem hef- ur verið harðlega gagnrýnd, með- Darfúr í Súdan Mia Farrow kallar ólympíuleikana„þjóðarmorðsleikana". vens Spielberg komi til með að hafa afgerandi áhrif á undirbúning kínverskra stjórnvalda að ólymp- að jafnstórkostlegur viðburður og leikarnir eru félli ekki í skuggann af pólitískum deilumálum. „Það er ekki í anda ólympíuleikanna," sagði hann. Breskum íþróttamönnu sem taka munu þátt (Ólympíu- leikunum í Kína I sumar verðurgert að skrifa undir samkomulag sem bannar þeim að gagnrýna gestgjafana, það er að segja Klnverja. Ný klásúla (var sett í samning breska ólymplusambandsins þar sem kveðið er á um að íþróttamenn skuli ekki tjá sig„um pólitískt viðkvæm málefni. Klásúlan sklrskotartil reglna Alþjóða ólympíusambands- ins en sakvæmt þeim er óleyfilegt að nýta vettvang leikanna til aö standa aö aðgerðum af stjórnmála-, trúarlegum eða kynþáttalegum toga. Þessar reglur hafa verið í gildi síðan á Ólympíuleikunum (Sól, höfuðborg Suður-Kóreu og eru taldar sérstaklega mikilvægar núna vegna ástands í mannréttindamálum (Klna og hersetu Klnverja ÍTÍbet. Karl Bretaprins er einlægur stuðningsmaður Dala( Lama, hins útlæga leíötoga Tíbeta, og hefur þegar lýst yfir að hann muni ekki verða viðstaddur leikana. Tjáningarfrelsið sem iþróttamönnum ergert að skuldbinda sig til mun gilda frá júll þegar keppendur eru valdirtil loka leikanna tuttugusta og fjórða ágúst. Þeir íþróttamenn sem neita að skrifa undir samkomulagið missa umsvifalaust möguleikann á að verða valinn í lið bresku keppendanna. Þeir (þróttamenn sem virða samkomulagið að vettugi eftir að Ólympíuleikarnir hafi hafist eiga á hættu að verða sendir heim. Þessar skorður á tjáningarfrelsi breskra íþróttamanna hafa verið gagnrýndar og talið að með þeim sé taumur Kínverja dreginn. Graham Newsome, höfuð samskiptadeildar breska ólympíusambandsins, vísar gagnrýninni á bug.„Við erum ekki að reyna að kefla (þróttamenn, eingöngu að undirstrika ábyrgðina sem þeir bera. Ef þeir eru spurðir einhvers er þeim ekki bannað að svara. Það er munur á því að gefa ærlegt svar og koma með pólitíska yfirlýsingu. Breytir litlu Ekki er talið að brotthvarf Ste Mannréttindahópar hafa heitið því að beina spjótum sínum að styrktaraðil- um leikanna og segja að þeim sé skylt að beita sér fyrir því að kínversk stjórn- völd standi við þau heit að virða mann- réttindi, en þau heit áttu stóran þátt í að ólympíuleikarnir féllu Kína í skaut. Ólympíuleikarnir verða haldnir i Kina og hefjast i ágúst. Mannrétt- indasamtök víða um heim beina spjótum sínum í sífellt meira mæli að kínverskum stjórnvöldum og styrktaraðilum leikanna. Fjöldi heimsfrægra kvikmynda- stjarna leggur sitt lóð á Æ vogarskálarnar. í vikunni m ákvað hinn kunni leikstjóri Steven Spielberg að segja lausri stöðu sinni sem list- rænn ráðunautur ólympíuleikanna KOLBEINN ÞORSTEINSSON blaðamadur skrifar: kolbeinn@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.