Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2008, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2008, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2008 Helgarblað DV „EG GLADDIST MJÖG ÞEGAR fl MÁGKONA MÍN TÓK ÍVAR í FANGIÐ OG SAGÐIHVERSU HANN VÆRI.HUr EÉAR SÚ FYRSTA Bem horfðitil IHANS í STAÐ DKKARJÓNS." iM Eg uppliíi þessa þró- un sem árás á barn- ið mitt og þá sem eru með Downs- heilkenni. Ég spyr mig hvort líf þeirra sé ekki eins mikil- vægt og annarra og ekki nógu inni- haldsríkt. Þarna er horft of mikið á hið læknisfræðilega í málinu. Það vantar að horft sé jákvæðum aug- um á það og að litið sé til þess hvað börnin geti en ekki hvað þau geti ekki. Foreldrum er engin vorkunn að eiga börnin og krökkunum er engin vorkunn að vera til. Ég tár- ast við tilhugsunina um að leitað sé sérstaklega að þessum börnum til að útrýma þeim og mér sárna rökin sem eru notuð, að krakkarn- ir kunni að vera álag á fjölskyld- urnar," segir Katrín Snjólaugs- dóttir, móðir fvars Hrafns, ellefu ára drengs með Downs-heilkenn- ið, um þá miklu fjölgun sem hef- ur orðið á eyðingu fóstra á fslandi sem greinast með litningagalla á meðgöngu. Gífurlegt áfall fyrir fjölskylduna Katrín átti fvar Hrafn árið 1997 með Jóni Guðmundssyni, en þá var hún 27 ára. Þá var fósturskim- un ekki komin til sögunnar á ís- landi. Katrín fór þó í reglubundnar mæðraskoðanir, þar á meðal són- arskoðun. ívar Hrafn er frumburð- ur Katrínar, en henni varð ekki ljóst að hann hefði Downs-heilkennið fyrr en læknar sögðu henni nokkr- um klukkustundum eftir fæðing- una að líkur væru á að svo væri. „Þetta var gífurlegt áfall þegar við Jón komumst að þessu. Ég var að læra hjúkrunarfræði á þessum tíma og því vissi ég strax um þau líkamlegu vandamál sem gætu fylgt í kjölfarið. Fljótlega kom í ljós að fvar hafði engan slíkan galla. Þegar maður eignast barn með Downs er einblínt á fötlun þess fyrstu dagana, en svo strax og heim er komið er þetta orðið barn- ið manns, sem þarf á sömu ást og umhyggju að halda og hvert ann- að," segir Katrín. Katrín segir nánustu ættingja þeirra Jóns hafa orðið miður sín þegar fréttist af því að fvar væri með Downs. Þeir hafi þá margir . R [mœ&GtSBBSite Katrín Snjólaugsdóttir og ívar Hrafn Ivar er frumburður Katrínar og Jóns Guðmundssonar. Þeim var ekki Ijós fötlun hans fyrr en eftir að hann fæddist. Þetta var áfall fyrir fjölskylduna fyrst um sinn. Hinir nýbökuðu foreldrar voru þó fljótir að aðlagast nýjum aðstæðum og segja fjölskylduna hafa orðið ríkari fyrir vikið. Katrín Snjólaugsdóttir. móðir ellefu ára drengs með Downs-heilkenn- ið, óttast þá þróun að æ fleiri konur kjósi að eyða fóstr- um sem greinast með iitningagalla. Hún segist tárast við tilhugsunina um að samfélagið útrými þessum börnum jafnt og þétt. Hún segir son sinn hafa orðið fjöl- skyldunni til mikill- ar gæfu, en erfiðast hafi verið að taka fordómum samfélags- ins gegn þessum þjóð- félagshópi. DV MYND SIGURÐUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.