Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2008, Qupperneq 10
10 FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2008
Helgarblað DV
„EG GLADDIST
MJÖG ÞEGAR fl
MÁGKONA MÍN
TÓK ÍVAR í FANGIÐ
OG SAGÐIHVERSU
HANN VÆRI.HUr
EÉAR SÚ FYRSTA
Bem horfðitil
IHANS í STAÐ
DKKARJÓNS."
iM
Eg uppliíi þessa þró-
un sem árás á barn-
ið mitt og þá sem
eru með Downs-
heilkenni. Ég spyr
mig hvort líf þeirra
sé ekki eins mikil-
vægt og annarra og ekki nógu inni-
haldsríkt. Þarna er horft of mikið á
hið læknisfræðilega í málinu. Það
vantar að horft sé jákvæðum aug-
um á það og að litið sé til þess hvað
börnin geti en ekki hvað þau geti
ekki. Foreldrum er engin vorkunn
að eiga börnin og krökkunum er
engin vorkunn að vera til. Ég tár-
ast við tilhugsunina um að leitað
sé sérstaklega að þessum börnum
til að útrýma þeim og mér sárna
rökin sem eru notuð, að krakkarn-
ir kunni að vera álag á fjölskyld-
urnar," segir Katrín Snjólaugs-
dóttir, móðir fvars Hrafns, ellefu
ára drengs með Downs-heilkenn-
ið, um þá miklu fjölgun sem hef-
ur orðið á eyðingu fóstra á fslandi
sem greinast með litningagalla á
meðgöngu.
Gífurlegt áfall
fyrir fjölskylduna
Katrín átti fvar Hrafn árið 1997
með Jóni Guðmundssyni, en þá
var hún 27 ára. Þá var fósturskim-
un ekki komin til sögunnar á ís-
landi. Katrín fór þó í reglubundnar
mæðraskoðanir, þar á meðal són-
arskoðun. ívar Hrafn er frumburð-
ur Katrínar, en henni varð ekki ljóst
að hann hefði Downs-heilkennið
fyrr en læknar sögðu henni nokkr-
um klukkustundum eftir fæðing-
una að líkur væru á að svo væri.
„Þetta var gífurlegt áfall þegar
við Jón komumst að þessu. Ég var
að læra hjúkrunarfræði á þessum
tíma og því vissi ég strax um þau
líkamlegu vandamál sem gætu
fylgt í kjölfarið. Fljótlega kom í
ljós að fvar hafði engan slíkan
galla. Þegar maður eignast barn
með Downs er einblínt á fötlun
þess fyrstu dagana, en svo strax og
heim er komið er þetta orðið barn-
ið manns, sem þarf á sömu ást og
umhyggju að halda og hvert ann-
að," segir Katrín.
Katrín segir nánustu ættingja
þeirra Jóns hafa orðið miður sín
þegar fréttist af því að fvar væri
með Downs. Þeir hafi þá margir
. R
[mœ&GtSBBSite
Katrín Snjólaugsdóttir og ívar Hrafn Ivar er frumburður Katrínar og Jóns
Guðmundssonar. Þeim var ekki Ijós fötlun hans fyrr en eftir að hann fæddist. Þetta
var áfall fyrir fjölskylduna fyrst um sinn. Hinir nýbökuðu foreldrar voru þó fljótir að
aðlagast nýjum aðstæðum og segja fjölskylduna hafa orðið ríkari fyrir vikið.
Katrín Snjólaugsdóttir.
móðir ellefu ára drengs
með Downs-heilkenn-
ið, óttast þá þróun
að æ fleiri konur
kjósi að eyða fóstr-
um sem greinast
með iitningagalla.
Hún segist tárast
við tilhugsunina
um að samfélagið
útrými þessum
börnum jafnt og
þétt. Hún segir son
sinn hafa orðið fjöl-
skyldunni til mikill-
ar gæfu, en erfiðast
hafi verið að taka
fordómum samfélags-
ins gegn þessum þjóð-
félagshópi.
DV MYND SIGURÐUR