Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2008, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2008, Síða 14
14 FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2008 Helgarblaö DV „Það er ekki okkar keppikefli að fyrir- tæki fari af landi brott," sagði Davíð Oddsson seðlabankastjóri á blaða- mannafundi í gærmorgun þegar hann var spurður hvort það yrði ekki léttir fyrir Seðlabankann ef Kaupþing banki flytti úr landi. Hann sagði ennfremur að það hefði aldrei komið til tals inn- an Seðlabankans hver staðan yrði ef sú yrði raunin. Kaupþing tilkynnti í októberlok um þau áform sín að taka upp evru í stað krónu sem starfrækslumynt bankans. Einnig var ákveðið að hluta- félag bankans yrði skráð í evrum. Þessi skref voru lengi á dagskránni hjá Kaupþingi en eftir að ákveðið var að taka yfir hollenska bankann NIBC var ekki lengur eftir neinu að bíða enda er stærstur hluti starfsemi hans gerður upp í evrum. Evran skerðir þjónustu bankans Davíð Oddsson hefur verið lítt hrif- inn af því að ísienskir viðskiptabank- ar taki upp evru og lagðist eindreg- ið gegn slfkurn áformum þegar þau komu fýrst til tals. Fyrir rúmu ári tal- aði hann um að lagaheimildir fyrir- tækja til að gera upp í evrum hefðu ekki verið hugsaðar fyrir fjármálafyr- irtæki og taldi slíkt veikja íslenskan efnahag. Eftír það settí fjármálaráðu- neytíð reglugerð sem gerði fjármála- fyrirtækjum skylt að leita álits Seðla- bankans ef þau vilja skipta yflr í evru. Þegar Kaupþing síðan leitaði eftir álitinu var það óhliðhollt fyrirætlun- um bankans en Seðlabankinn taldi óæskilegt að fjármálafyrirtæki færðu sig á þennan hátt yfir í evrur þar sem notkun á krónunni minnkaði fyrir vik- ið og þar með þjónusta Seðlabankans, sem ekki gætí veitt sömu þjónustu í erlendum gjaldmiðli. Seðlabankinn hafi ekki áhrif á neitunina í Seðlabankanum í gær vildi Davíð Oddsson árétta að álitið hefði engin áhrif haft á niðurstöðu ársreikninga- skrá fjármálaráðuneytisins. Hann segir að fjölmiölaumfjöllun um málið í heild sinni hafi verið villandi vegna þess að álit ársreikningaskrárinnar hafi ekki verið birt opinberlega. Dav- íð finnst miður að gögnin séu ekki að- gengileg en álitið hafi aðeins byggt á því að gengið hefði verið frá yfirtöku Kaupþings á NIBC fyrir áramótin eins og gert var ráð fyrir. Sem kunnugt er var fallið frá yfirtökunni í janúar og uppgefin ástæða erfiðleikar á fjár- málamörkuðum. Fjölmiðlar fá ekki aðgang Davíð segir vissulega rétt að Seðla- bankinn hafi gefið út að það hefði lík- lega neikvæð áhrif á stjórnun pen- ingamála á íslandi að verða við óskum Kaupþings. Hins vegar hafi ársreikn- ingaskrá átt lokaorðið þar sem niður- staðan varð sú að Kaupþing uppfyllti ekki ákvæði laga tíl að gera upp í evr- um. Að mati Davíðs hefði átt að gera álitið opinbert tíl að fyrirbyggja mis- skilning. Niðurstaðan ársreikninga- skrár hafi verið tílkomin vegna þess að yfirtakan á NIBC gekk ekki eftír. Ekki virðist hins vegar á dagskrá að fjöl- miðlar fái aðgang að álitínu. Töldu sér ógnað Hörð samskiptí Kaupþings og Seðlabankans vegna málsins hafa orð- ið mörgum tilefni til vangaveltna og fannst ýmsum hart tengið gegn Kaup- þingi. Heimildarmenn DV í fjármála- heiminum segja hins vegar að Dav- íð hafi í gegnum tíðina látíð ýmis orð falla um aðstandendur Kaupþings. Gestir á ársfundi Alþjóðabankans sem haldinn var í Washington D.C. nokkr- um vikum fyrir jól skýra ff á að þar hafi Davíð og Sigurði Einarssyni, stjórnar- Seðlabankinn saklaus Davíð Oddson segir rangt að Seðlabank- inn hafi haft úrslitaáhrif þegar beiðni Kaupþings um uppgjör í evrum var hafnað. Sannanir þess efnis er að finna í skjölum ársreikningaskrár sem eru ekki aðgengilegar almenningi. m í B :v‘ T;ý; ,, 1 formanni Kaupþings, lent harkalega saman vegna vilja Kaupþings til að gera upp í evrum. Að sögn heimild- armanna blaðsins lét Davfð þar stór orð falla sem Kaupþingsmenn skildu sem ógnun. Forsvarsmenn Kaup- þings hafa ekki viljað staðfesta þetta. Hagkerfið kólnar Seðlabankinn kynntí í gærmorg- un þá ákvörðun að halda stýrivöxt- um óbreyttum í 13,75 prósentum. Þó margir hefðu vonast tíl að bankinn myndi lækka vextina höfðu grein- ingardeildir spáð því að þeir héldust óbreyttir. Mat þeirra byggðist einna helst á gengislækkun krónunnar undanfarna daga sem og ótta Seðla- bankans við að trúverðugleiki hans bíði hnekki við skarpa stefnubreyt- ingu í erfiðu fjármálaumhverfi. Hjá greiningardeild Kaupþings voru miklar vonir bundnar við vaxta- lækkun og áður en ákvörðun Seðla- bankans var gerð ljós gaf greiningar- deildin út að í kj ölfar mj ög neikvæðrar þróunar á fjármálmörkuðum hér- lendis og erlendis hlyti vaxtastefna Seðlabankans að hafa hliðrast til sök- um þess að kólnun í íslenska hagkerf- inu kemur nú hraðar og fyrr en áður. Ingólfur Bender, forstöðumaður Greiningar Glimis, segir Ijóst að hag- kerfið stefni hraðbyri niður í lítínn ef nokkurn hagvöxt á þessu ári. Með kólnandi hagkerfi skapast forsendur fyrir bankana til að lækka vextí: „Það er ekld spurning hvort heldur hve- nær,“ segir Ingólfur og telur þær að- stæður vera nú að skapast. Krónan lækkar enn Verðbólguspá Seðlabankans sem birtis í Peningamálum í nóvember fól í sér óbreytta stýri- vextí fram á mitt ár. Enn er verðbólgan töluvert meiri en það markmið sem bankanum er sett og því ekki ástæða tíl að lækka vextína að sinni að matí bankastjórnar Seðla- bankans. Rökstuðningur seðlabankastjóra fyrir ákvörðuninni felst meðal ann- ars í því að einkaneysla hafi vaxið hratt allt tíl loka síðasta árs. Enn gætír spennu á vinnumarkaði og kjaravið- ræðum er ekld lokið. Einnig er gengi krónunnar lægra en gert var ráð fyrir í nóvemberspánni og við síðustu stýri- vaxtaákvörðun. Aðspurður hvort Seðlabank- inn væri hreinlega ekld of lítill til að raunhæft væri að ætla að hann næði þeim settu markmiðum sínum að ná að halda verðbólgunni í skefjum sagði Davíð að þau tæki sem bankinn hefði, stýrivextímir þar á meðal, væru afar öflug og bitu vel. Hins vegar tæki það tíma fyrir áhrif þeirra að koma í ljós og sá tími færðist að vonum sífellt nær. Hann vildi ekki fullyrða að verð- bólguhorfur til lengri tíma hefðu breyst að marki frá því í nóvember. Óvissa er mun meiri en áður, ekki síst um áhrif versnandi fjármálaskilyrða. Verðbólguþróun til lengri ti'ma ráðist því einkum af samspili gengisþróun- ar og ffamleiðsluspennu, sem Seðla- bankinn muni fylgjast grannt með. Davíð sagði mikilvægt fyrir heim- ilin í landinu, ekki síður en fyrirtækin, að verðbólgudraugurinn yrði kveðinn niður og allar ákvarðanir Seðlabank- ans tækju mið af því. Við vinnslu fféttarinnar náðist ekld tal af Hreiðari Má Sigurðssyni, bankastjóra Kaupþings. SH ALIITl Al\ HMDIAN LUNCH 1ND1AN DINNER INDIAN - PAKISTANI CUISINE AUSTURSTRÆTI 4. Tel: 551 0292 , www.shalimar.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.