Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2008, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2008, Page 16
16 FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2008 Helgarblað PV Grétar Mar Jóns- son þingmaður Frjálslynda flokks- ins er léttari á sér eftir tvær skurðað- gerðir. Hann gekkst undir hjáveituað- gerð haustið 2005 og léttist mikið í kjöl- farið. Fyrir nokkr- um dögum lét hann svo fjarlægja slappa húð og spik og er nú óðum að jafna sig. „Ég var orðinn allt of þungur og var búinn að vera það allt of lengi," seg- ir frjálslyndi þingmaðurinn Grétar Mar Jónsson en hann gekkst í lok október árið 2005 undir svokallaða hjáveituaðgerð. „Ég kann ekki að skýra aðgerðina í smáatriðum en 90 prósent af maganum voru fjarlægð auk þess sem það var tengt framhjá honum að einhverju leyti. Ég nýti því ekki að fullu þá fæðu sem ég inn- byrði núna," segir hann. Áunnin sykursýki Grétar gekkst undir nokkuð strangan undirbúning fyrir aðgerð- ina. „Ég var orðinn 173 la'ló þegar ég fór inn á Reykjalund í undirbúning fyrir þessa aðgerð. Þar tóku við fimm vikur af ströngum æfingum og heil- brigðu mataræði," segir Grétar en bætir við að aðrar megrunaraðferð- ir hafi ekki gengið nógu vel. „Ég var búinn að reyna ýmislegt. Ég hafði til dæmis í tvígang farið í megrunar- kúra í Hveragerði. Þeir skiluðu mér ekki miklum árangri. Ég var kominn með áunna sykursýki og var þess utan alltaf að drepast í löppunum. Ég þurfti ekki annað en að stíga vit- laust fram úr kojunni á sjónum til að þurfa að styðja mig við staf eða hækjur í einhverja daga á eftir. Þær þoldu einfaldlega ekki þungann," segir Grétar Mar sem er laus við öllu sykursýkislyf í dag. Skipstjóri 22 ára Grétar segist aðspurður ekki hafa verið þéttur á yngri árum. „Ég var mikið í handbolta þegar ég var gutti og stundaði íþróttir af kappi. Þegar ég var 18 eða 19 ára fór ég að fitna svolítið en þó ekki af alvöru fyrr en ég byrjaði 22 ára sem skip- stjóri. Ég hafði alltaf verið duglegur að djöflast í vinnu og í nokkuð góðu formi. Þegar kyrrsetustarfið tók við og ég hélt áfram að borða mik- ið þá fitnaði ég hratt," segir Grétar sem hefur því lengi glímt við offitu. „Fyrst var þetta nokkuð saklaust en síðustu 15 eða 20 árin hefur ástand- ið verið mjög bagalegt þó ég hafi nú að mestu sloppið við of hátt kólest- erol og slíkt." Missti sextíu kíló Eftir aðgerðina grenntist Grétar hratt. „Vikurnar í kjölfar aðgerðar- innar gengu mjög vel enda fór ég í einu og öllu eftir því sem læknarnir sögðu við mig fyrstu sex mánuðina á eftir. Ég missti um sextíu kíló í kjöl- far aðgerðarinnar," segir Grétar og SEXTIU KIL0 Hver einasti borgarfulltrúi er íslenskri pólitík til skammar, segir Grétar Mar: Ólafur ekki á vegum Frjálslynda flokksins „Úlafur F. Magnússon er ekki á vegum Frjáls- lynda flokksins. Hann er algjörlega á eigin veg- um. Hann sveik okkur í Frjálslynda flokknum þegar hann gekk úr honum," segir Grétar Mar Jónsson, þingmaður frjálslyndra, þegar hann er spurður um hræringar undanfarinna vikna í borginni. „Flokkurinn lagði mikla peninga í kosninga- baráttu fýrir Ólaf á sínum tíma. Hann labbaði beint út án þess svo mikið sem þakka fyrir sig og kom afskaplega illa fram við það fólk sem lagði drög að hans kjöri og tryggði honum sæti í borg- arstjórn. Það voru margir sjálfboðaliðar og aðrir sem lögðu hönd á plóg til að tryggja 10 prósent at- kvæða og þar með sæti í borgarstjórn. Svo labbar hann út úr flokknum án nokkurs málefnaágrein- ings við einn eða neinn í flokknum," segir Grétar. Spurður um framgöngu annarra borgarfulltrúa í Reykjavík segir Grétar: „Þessir fimmtán kjörnu borgarfulltrúar í Reykjavík eru allir sem einn ís- lenskri pólitík til stórskammar. Þar er enginn und- anskilinn. Þeir hafa gengisfellt stjórnmálamenn í landinu og hafa rúið pólitíkina allri virðingu. Það hafa engir lagt sig meira fram en þessir menn til að rýra almennt álit almennings á stjórnmála- mönnum í landinu," segir Grétar. Hann telur að Vilhjálmur muni segja af sér. „ Ég held að Vilhjálmur hljóti að fara, eftir þau orð sem hann lét falla um Þórólf Árnason á sín- um tíma. Þótt hann þráist við nú í nokkra daga er hans tími í pólitík liðinn. Það hlýtur að vera dag- aspursmál hvenær hann lýsir því yfir að hann sé hættur öllum afskiptum af pólitík." Ekki á okkar vegum Grétar Mar segir Ólaf hafa gengið burt eftir að Frjálslyndi flokkurinn lagði í dýra kosningabaráttu fyrir hann. Grétar telur líka að tími Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar sé liðinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.