Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2008, Side 22
22 FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2008
Umræða DV
ÚTGÁFUFéLAG: Dagblaöiö-Visir útgáfufélag ehf.
STJÓRNARFORMAÐUR: Hreinn Loftsson
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Elín Ragnarsdóttir
RITSTJÓRAR:
JónTrausti Reynisson og ReynirTraustason
FULLTRÚI RITSTJÓRA: Janus Slgurjónsson
FRÉTTASTJÓRI: Brynjólfur Þór Guðmundsson
AUGLÝSINGASTJÓRI: Ásmundur Helgason
Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur.
DV áskilur sér rétt til aÖ birta aðsent efni blaösins á stafrænu
• formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
öll viötöl blaösins eru hljóörituö.
AÐALNÚMER 512 7000, RITSTJÓRN 512 7010,
ÁSKRIFTARSlMI 512 7080, AUGLÝSINGAR 512 70 40.
SAIVDKORIV
■ Gísli Marteinn Baldursson
borgarfulltrúi fór með sitt lið á
umhverfissviði til Seattle fyrir
100 daga
meirihlut-
ann. Þá
harðneit-
aði hann
að taka
áheyrnar-
fulltrúa
frjálslyndra
umhverf-
issinnann Ástu Þorleifsdótt-
ur, með í ferðina. Hermt er að
það hafi verið einföld andúð
sem réð því að hún fékk ekki
að fara f skemmtiferðina á
kostnað borgarbúa, enda
einsdæmi að gerður sé slíkur
mannamunur á fulltrúum. Nú
er hin frjálslynda Ásta að verða
varaformaður umhverfisráðs
við hlið Gísla Marteins sem
væntanlega leynir andúðinni
og mun leita allra leiða til að
verða borgarstjóri til að sleppa
frá umhverfissinannanum.
■ Gísli Marteinn Baldursson
borgarfulltrúi þykir ekki eiga
mikla möguleika á því að láta
drauminn um að verða borg-
arstjóri. Jafnvel þótt hann hafi
sýnt Vilhjálmi Þ. Vilhjálms-
syni mikinn stuðning í orði
treystir Villafólkið í borgar-
stjórn honum ekki og veðjar
á Kjartan Magnússon. Gísli
Marteinn skaust undan pils-
faldi Hannesar Hólmsteins
Gissurarsonar sem fullburða
pólitíkus en það er því allt eins
líklegt að hann verði að sætta
sig við að verða áfram númer
þrjú í borgarstjómarflokknum.
■ Samfylking geislar af gleði
og sjálfstrausti eftir að í ljós
kom að fylgi flokksins mælist
hjá Talnakönnun í tæplega
40 prósentum og hefur skot-
ið Sjálfstæðisflokknum langt
aftur fyrir
sig. Á með-
an ófrið-
ur geisar
á meðal
sjálfstæðis-
manna
ríkir friður
og ein-
dræghi hjá
samstarfsflokknum og össur
Skarphéðinsson og Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir ganga í
takt. En það kunna að vera
blikur á lofti í ríkisstjórnar-
samstarfinu því orkufrumvarp
Össurar þar sem gert er ráð
fyrir að orkulindir verði í al-
menningseign stendur í þing-
flokki Sjálfstæðisflokksins.
■ Margir í hópi auðmanna
eiga nú um sárt að binda
vegna hlutabréfakreppunnar.
Því hefur verið haldið fram að
Bjarni Benediktsson alþing-
ismaður og einn eigenda N-1
komi ágætlega undan vetri en
aðrar heimildir telja það vera
alrangt. Bjarni og félagar, sem
kenndir eru við kolkrabbann,
hafi keypt N-1 dýrt og skuld-
sett sig mikið til að standa
undir kaupunum. Nú sé komið
að skuldadögum og erfitt að
standa undir afborgunum.
iiidaiíi
Vítahringur Davíðs
JÓN TRAUSTI REYNISSON RITSTJÓRISKRIFAR. Efhann vteriknatlspyrnuþjálfari vœri búid ad reka Itann.
íðasta stýrivaxtabreyting í Svíþjóð kom eins og blaut
vatnsgusa í andlit sænsku þjóðarinnar á dögunum. Þar
voru stýrivextir hækkaðir um 25
punkta. Að vísu upp í 4,25%, en ekki
13,75% eins og hér.
Nýsjálendingar búa við mestu stýrivaxta-
áþján í hinum vestræna heimi, fyrir utan
ísland, eftir að stýrivaxtamet var slegið í
8,25%. Hér eru vextirnir 5,5 prósentustig-
um hærri.
í Finnlandi mælist nú mesta verðbólga í sjö
ár. Hún er 3,8%, en ekki 5,8% eins og hér,
eða yfir 7% eins og hún var hér í fyrra.
Seðlabankanum hefur gjörsamlega mis-
tekist ætlunarverk sitt. Verðbólga hefur nú
verið háttyfir verðbólgumarkmiði bankans
í tæp fjögur ár samfellt. Bankinn getur ekki
lækkað vexti, því þá fellur krónan og verð-
bólgan eykst að nýju. Það gerist þannig að
gríðarlegt fjármagn hefur streymt inn í landið undanfarin ár
vegna hárra vaxta Seðlabankans. Erlendir fjárfestar njóta þeirra
háu vaxta sem Seðlabankinn hefur komið á og þeir munu flýja
krónuna ef vextir lækka. Þá hækkar verðbólgan og Seðlabank-
inn hækkar vexti aftur. Við erum í vítahring hárra vaxta.
Háir vextir henta erlendum fjárfestum en koma niður á íslensk-
um almenningi. Þeim efnamestu hentar
vel að vextir séu háir, þar sem þeir fá betri
ávöxtun á skuldabréf sín. Hinir efnalitlu
tapa, enda eru vextirnir komnir út yfir all-
an þjófabálk. Fólk í fjárhagsvanda sekkur
sífellt dýpra í kviksyndið, þökk sé Seðla-
bankanum.
Davíð Oddssyni seðlabankastjóra hefur
mistekist ætlunarverk sitt. Ef hann væri
knattspyrnuþjálfari væri búið að reka
hann. En kannski er það ekki Davíð sjálfum
að kenna að hann hefur misst tökin á efna-
hagsmálunum, heldur verkfærinu. Seðla-
bankinn er verkfæri sem virkar ekki lengur
og hefur því ekki lengur tilgang.
Það er íslendingum keppikefli að losna
undan þessari vaxtaáþján. Eina leiðin til
þess er að kasta krónunni og svipta Seðlabankann stjórninni á
efnahagsmálunum. Það verður hins vegar afar erfitt, því stjórn-
málamenn vilja síður missa þann helga stein sem Seðlabankinn
hefur reynst þeim.
SVARTHÖFÐI
Svarthöfði mun seint teljast til
auðmanna þessa lands. Ef haim
fengi á sig mælistiku gæti hann í
besta falli orðið þriðji auðugasti mað-
ur götunnar sem hann býr við. Á með-
an áhyggjur auðmanna snúast um það
hvort þeir eigi milljarðinum minna
að morgni hefur Svarthöfði áhyggjur
af því hvort verð á bensíni og mjóík
hækki. Og hann hefúr áhyggjur af því
að hitta á bónusfargjald hjá flugfé-
lögunum fremur en lenda f efnhags-
legri lægð vegna þess að hann þarf að
greiða háfargjald. Það er sem sagt
þetta smáa í lífinu sem heldur
vöku fýrir Svarthöfða á meðan
milljarðarnir trufla mæringana.
Svarthöfði hefúr djúpa og
einlæga samúð með þeim sem
tapa stórt og verða að ferðast
með almenningi. Eitt það versta sem
auðjöfur lendir í er að hafa ekki efrú
á einkaþotunni sinni og þurfa
jafnvel að fljúga á almennings
farrými sem á meðal hinna
stöndugu er kallað „monk-
ey class" eða apafarrými.
Þar skilur á milli þeirra og
almúgans.
• * nnur brtingarmynd
þeirrar gjár sem skilur að
I I þá auðugu og hina sem miima
hafa milli handanna eru stræt-
isvagnarnir. Auðmaður lætur aldrei
sjá sig í strætó nema um sé að ræða
spuna í því skyni að markaðssetja
eitthvert fýrirbæri. Stöku sinnum stíga
hinir ríku niður úr himnasölum sínum
til að fara í súrætó undir vakandi aug-
um fjölmiðlanna. Svarthöfði
fer í strætó og nýtur þess en
hann fer aldrei með einkaþotu. í
vagninum gefst oft gott tóm til
að hugsa um það sem hvílir á
hinum rflcu. Og það er ekk-
ert smáræði.
Svarthöfði hefur fyr-
ir því heimildir að
ágætir menn sem
stjómuðu fjárfestingarfyrir-
tæki sem á síðasta ári fór með
himinskautum vegna vísitölu
sem var skýjum ofar séu komnir niður
á jörðina. Þetta voru sannir auðmenn
fslands og létu innrétta höfuðstöðv-
ar fýrir hundruð miiljóna. Um sama
leyti lögðu þeir inn pöntun fýrir nýrri
einkaþotu sem átti að leysa af aðra
eldri. Einn þeirra hafði átt stóran
hlut f olíufélagi en annar í útgerð á
landsbyggðinni. Eignir þeirra vom því
ekki reistar á pappímum einum. Um
það leyti sem Svarthöfði glímdi við
áhyggjur vegna þess að fargjald í
strætó hækkaði um 10 prósent
bytjaði vísitala hlutabréfa að
falla. Fjárfestingafélagið lenti
illa í kreppunni og hnípnir
auðmenn ákváðu að flytja
ekki í nýju höfuðstöðvamar.
Eitt herbergi fyrir bókhaldið
varð að duga. Næsta skelfing sem
dundi yfir auðmennina í herberginu
var að þeir neyddust til að afpanta
nýju einkaþotuna og selja þá gömlu.
Svarthöfði sárvorkenndi auðmönn-
unum sem skiptu á höfúðstöðvum og
herbergi. Þar sem strætis-
vagninn ók austur Miklu-
braut og stöðvaðist á rauðu
ljósi hugsaði harm með sér
að þetta hlyti að kalla yfir
mennina sálarháska. Þetta
væri næstum eins og strætó
væri lagður niður og Svart-
höfðiyrði að ferðast á reið-
hjóli borgarmarka á milli.
En það eru Iitlar líkur á
því að almenningssam-
göngur verði aflagðar og
Svarthöfði varpaði önd-
inni léttar. Hann komst
að þeirri niðurstöðu að
það væri ekki svo afleitt
að vera fátækur og þurfa
aðeins að hafa áhyggjur af
lidu í einu.
Þegar öllu er á botninn hvolft er
enginn munur á ríkum og fá-
tækum. Báðir fæðast og deyja.
Og þetta er aðeins spurnig um það
hvernig fólki líður á milli þeirra
tímapunkta sem marka upp-
haf og lok lífsleiðarinnar.
Raunverulega snýst þetta
um það hvort fólk skjót-
ist á milli áfangastaða í
þotu eða á reiðhjóli. Sú
vegalengd sem lögð er
að baki er ekki mælikvarði
á lífsgæði. Og það er hægt
að láta sér líða vel í strætó og á
almenningsfarrými flugvélanna. Ef
svo illa fer að flugvélin hrapar skiptir
minnstu hvar þú situr. Dauðinn ger-
ir engan mannamun, aðeins lífið.
„Ég get ekki svarað því. Þegar stórt er
spurt verður lítið um svör. Þetta er svo
flókið mál að ég treysti mér bara ekki
til að svara því. Fólk þarf að vera mjög
vel að sér í þessum málum til að hafa
skoðun á þeim. Þetta er það flókið og
ég hef ekki mikla innsýn (það.
Erna Sörensen, 71 árs útgefandi.
„Já, það finnst mér. Það er bara einfalt
svar við þessu og það er að augljóslega
þarf eitthvað að gerast og gott ef ríkið
kemur þar að. Það sem mér finnst að
þurfi að leggja áherslu á er að lækka
vextina og ríkið ræður þeim."
Björn Páll Angantýsson, 42 ára
bílstjóri
„Já. Ég veit þó ekki að hvaða leyti beint
en allavega þarf að koma að málum
skattalega séð, einnig hækka
persónuafsláttinn. Ég myndi vilja fá að
sjá breytingu á vöxtunum sem
Seðlabankinn ræður. Varðandi stóriðju,
það má alveg eins auka hana."
Benóný Þorkelsson, 63 ára smiður
„Já, mér finnst það. Þeir eiga hiklaust
að koma inn. Mér finnst að ríkið eigi að
koma til móts við og hjálpa verkalýðs-
félögunum. Auðvitað vil ég lægri
skatta og meiri persónuafslátt til
láglaunafólks og námsmanna en ekki
meira af stóriðju."
Haraldur Sæmundsson, 24 ára
matreiðslunemi
DÓMSTÓLL GÖTUNNAR
Á RÍKIÐ AÐ KOMA AÐ KIARASAMNINGUM?