Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2008, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2008, Blaðsíða 28
28 FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2008 Helgarblað DV Yrsa Sigurðardóttir, byggingarverkfræðingur og rithöfundur, var fyrsta konan sem hóf störf á Kárahnjúkum. Fyrst um sinn bjó Yrsa við frumstæðar aðstæður á Kárahnjúkum og gisti meðal annars undir sama þaki og allir karlmennirnir á svæðinu. í dag, fimm árum síðar, er staðurinn orðinn fjölskylduvænn mjög og eru dæmi þess að eiginkonur starfsmanna hafi varið fæðingarorlofi sínu á Kárahnjúkum. r. AUKIÐ HLUTFALL KVENNA „Við náðum að auki að koma hlutfalli kvenna hjá okkur upp í ^ nokkurn veginn það sama og gengurog gerist á verkfræðistofum í Reykjavík sem var smáafrek út af fyrir sig." TAKNRÆNMYND Á myndinni eru fimm ungar snótir og einn drengur sem komu í heimsókn á Kárahnjúka. Takið eftir að drengurinn er með skóflu í hendi á meðan stúlkurnar eru allar uppstilltarogfínar. VlLSJADQimMjtjA VERDASKIPSTJORA Ytsa Sigurðardótt- ir byggingarverk- fræðingur hafði unnið mikið við framkvæmdaeftirlit og þegar til stóð að senda inn tilboð í eft- irlit með Kárahnjúkavirkjun var hún spurð hvort hún hefði áhuga á að vera með og hún sló til. „Þegar það svo kom á daginn að verkið var okk- ar, var ekki annað hægt en að standa við orð sín enda verkefnið þar að auki mjög spennandi, bæði hvað varð- ar stærð þess sem og verkfræðilega þætti," segirYrsa. Langar vaktir Yrsa byrjaði Kárahnjúkaverkefn- ið vorið 2003 og er enn að en þó við breyttar aðstæður. Yrsa vann vakta- vinnu sem gerði það að verkum að hún gat hitt fjölskyldu sína reglulega en heima fyrir var eiginmaður henn- ar og tvö börn. „Hjá okkur var vökt- unum þannig háttað að íslending- arnir unnu 10 daga og fengu 4 daga frí en útíendingar eða þeir sem áttu lengra ferðalag heim en flugferð til Reykjavíkur unnu í 4 vikur og fóru svo heim í eina viku. Þeir voru að auki yf- irleitt í fríi á sunnudögum." Mikið nágvígi „Það var vægast sagt mjög und- arleg tilfinning þegar ég kom fyrst til Kárahnjúka, við bjuggum í bráða- birgðabúðum til að byrja með og þar gistum við öll undir sama þaki, ég og allir karlmennirnir og notuðumst við sameiginlega baðherbergisað- stöðu. Ég var ekki vön svona miklu návígi við vinnufélaga og það tók tíma að venjast því." Yrsa segist ekki hafa upplifað neina fordóma frá ís- lensku karlmönnunum í hennar garð þar sem hún var eina konan á svæð- inu ásamt því að vera yfirmaður. Það sama átti hins vegar ekki alveg við þá erlendu. Fordómar „Það eimdi fyrir örlitíum fordóm- um hjá nokkrum af þeim erlendu mönnum sem voru í okkar hópi. Þeir voru bæði vanari stéttskiptari umgjörð en hér ríkir sem og því að byggingariðnaðurinn og vinnustaðir í líkingu við virkjanasvæðið væru að mestu mannaðir körlum. Þeir höfðu ekki reynslu af konum í stjórnunar- stöðum og það tók smátíma fyrir þá að venjast því. Maður þurfti nokkrum sinnum að byrsta sig eða vera óhemju leiðinlegur til að þvinga þá inn í ís- lenska taktinn," segir Yrsa sem sinnti starfl tæknistjóra og er enn fremur ffamkvæmdastjóri Káraborgar ehf. sem er rekstrareiningin sem stofnuð var til að halda utan um þennan hóp og vinnu hans. Mörg afrek Nú eru fimm ár síðan Yrsa hóf störf við Kárahnjúka og er óhætt að segja að það hafi mikið vatn runn- ið til sjávar síðan. Yrsa hefur náð að áorka miklu, meðal annars að fjölga konum á svæðinu. „Stærsti áfang- inn í þessu öllu saman var auðvitað gangsetning virkjunarinnar í haust sem leið þó svo að minni sigrar hafi að sjálfsögu unnist á leiðinni. Hvað okkar hóp sem slíkan varðar held ég að við getum horft yftr farinn veg og verið stolt af því hvernig okkur tókst að búa til vistíegan og skemmtilegan vinnustað fjarri öllu því sem maður á að venjast. Við náðum að auki að koma hlutfalli kvenna hjá okkur upp í nokkurn veginn það sama og gengur og gerist á verkfræðistofum í Reykja- vík sem var smáafrek út af fyrir sig." Góð fjölskylda Til þess að láta vinnu sem þessa ganga upp þurfti Yrsa eðlilega á stuðningi fjölskyldu sinnar að halda. „Þetta var mildð púsl en gekk ótrú- lega vel. Maðurinn minn skellti sér í nám til að geta hagrætt tíma sínum í takt við breyttar aðstæður og tók við heimilishaldinu og uppeldi dóttur okkar sem var ekki nema 6 ára þeg- ar verkefnið fór af stað. Hann stóð sig eins og hetja og hún líka. Þau voru dugleg að koma upp eftir og vera þar yflr helgar og önnur tilfallandi frí svo að fjarvistirnar voru í eins miklu lágmarki og hægt var undir þessum kringumstæðum." Konur í iðnaði Þegar talið berst að konum í iðnaði spyr blaðamaður Yrsu hvernig standi á því að svo fáar konur starfi í iðn- aði eins og raun ber vitni. „Ætli þær vantí ekki bara fyrirmyndir, það er á vissan hátt fráhrindandi að hugsa sér að vera eina konan á vinnustað eða ein af fáum og kannski virðast þessi störf því ekki eins áhugaverð og þau í raun eru. Það er urmull af konum að vinna í iðnaðargreinum sem maður tengir ekki í fyrstu við konur en þær eru kannsld ekkert endilega svo sýni- legar. Mörg störf í iðnaði hvarfla ein- faldlega ekki að ungum konum þeg- ar þær velta framtíðinni fyrir sér, ekki vegna ótta heldur bara vegna þess að ímyndunaraflið nær skiljanlega ekki yfir víðari völl en raun er á." Kraftur kvenna Virkjum kraft kvenna í iðnaði var fyrirskrift fundar sem Samtök iðnað- arins héldu á dögunum á Hótel Borg. Fundurinn var liður í starfi Samtaka iðnaðarins við að skoða hlut kvenna í starfi og stjórn aðildarfyrirtækja sinna. Það vantar fólk í iðnfyrirtæki og gríðarlegan mannauð er að finna hjá konum sem fyrirtæki ættu að geta sótt í. En þegar hlutföll karla og kvenna meðal framkvæmdastjóra, ijármálastjóra og starfsmannastjóra í fyrirtækjum Samtaka iðnaðarins eru skoðuð kemur t' ljós að karlmenn eru í miklum meirihluta í stjórnenda- stöðum, sérstaklega t' stærstu fyrir- tækjunum. Samtök iðnaðarins Yrsa deildi reynslu sinni á Kára- hnjúkum á fundinum við góðar undirtektir, og er greinilegt að mik- ill áhugi er til staðar fyrir málefn- unum því fundarsalurinn var fullur út úr dyrum. „Ég er svo sem enginn sérstakur sérfræðingur r' málefn- um iðnaðarins en get vel t'myndað mér að það væri mörgum greinum hans til framdráttar að konur tækju aukinn þátt. Á sama hátt væri mjög æskilegt að sjá aukningu á karl- mönnum r' þeim stéttum sem eru að mestu mannaðar konum. Mt'n skoðun er sú að það sé vinnustöð- um tii framdráttar að hafa nokkuð jafnt kynjahlutfall sem og góða ald- urdreifingu." Samtök iðnaðarins vinna nú markvisst í því að virkja kraft kvenna t' iðnaði og telur Yrsa samtökin standa sig afar vel. Rithöfundurinn Yrsa Sigurðardóttur er þó þekkt fyrir fleira en að hafa unnið á Kár- hnjúkum eins og margur veit. Hún er einn þekktasti rithöfundur þjóð- arinnar. Hún hefur gefið út nokkrar bækur og selt útgáfurétt margra þeirra til útíanda. Þessa dagana er Þóra að að fara af stað með bók númer fjög- ur um lögfræðinginn Þóru. Blaða- maður hafði heyrt því fleygt að Yrsa skrifaði bækur sínar í excel-skjali. „Ég held utan um framvinduna og upp- lýsingar um persónur í slíku skjali en skrifa sjálfan textann á venjulegan hátt í Word." Af öllum þeim bókum sem Yrsa hefur skrifað í hjáverkum á hún sér eina uppáhalds. „Bókin, Við viljum jólin í júlí - barnabók er uppáhaldsbókin mín. Þessa dagana er einmitt verið að vinna handrit að kvikmynd upp úr henni á vegum Júlí- usar Kemp og Ingvars Þórðarsonar." Bjartsýn í dag starfar Yrsa enn hjá Fjarhitun undir merkjum VIJV við frágangs- vinnu tengda Kárahnjúkavirkjun en er nú í Reykjavík. Yrsa segist bjartsýn á framtíð kvennaogvonasttílaðþærsækimeira í það að vinna utan hins opinbera kerfis. „Mér skilst að mikill meirihluti starfsmanna sé konur. f nútímanum hlýtur það að teljast ffemur óeðlilegt ástand að það myndist hópar innan atvinnulífsins sem byggjast á kyni. Á persónulegri nótum vildi ég sjá dótt- ur mína verða skipstjóra þegar hún eldist þótt hún sé langt í frá sammála mér í því og muni berjast um á hæl og hnakka tíl að koma í veg fyrir þá draumsýn mína," segir Yrsa. Valhöll Háaleitisbraut 1 105 Reykjavik simi 515 1700 www.xd.is Um hvað snúast stjórnmál? Kynntu þér málið í Sfjórnmálaskóla Sjálfstæðisflokksins í Valhöll sem er frá 18. feb. til 13. mars. Námskeiðið stendur yfir í fjórar vikur og fer fram á mánudags-, þriðjudags- og fimmtudagskvöldum. Fyrirlestrar og umræbur um • borgarmálin • utanríkismál • listina ab hafa áhrif • flokksstarfið • menntun og menningarmál • velferbarmál • ferða- og samgöngumál • efnahagsmál • umhverfismál • sjávarútvegsmál • landbúnaðarmál • stjórnskipan og stjómsýslu • greina- og fréttaskrif • Sjálfstæbisflokkinn • starfshættir Alþingis Dagskráin er á heimasí&u Sjálfstæðisflokksins, www.xd.is undir hnappi Stjórnmálaskólans. Skráning og nánari upplýsingar í síma 515 1777/515 1700, einnig á netfangi disa@xd.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.