Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2008, Page 4
4 FÖSTUDAGUR 23. MAl 2008
Fréttir DV
SANDKORN
■ Hans Steinar Bjarnason,
íþróttafréttamaður Stöðvar 2, á
sína spretti eins og aðrir. Hann
glímir hins vegar við þann
óþægilega sið að segja en og og
eins og hann
fái 50 krónur
fyrir orðið.
Hann gæti
sem sagt
verið á góðri
leið með að
verðamillj-
arðamær-
ingur. miðað
við hversu duglegur hann er að
segja þessi tvö orð. Þannig bauð
hann upp á einhverja iengstu
semingu st'ðari ára þegar hann
var að sýna frá leik Þróttar og
FH í Landsbankadeildinni.
Leikurinn fór 4-4 og sagði Hansi
frá leiknum í einni setningu
í hádegisfréttum Stöðvar 2. í
þeirri einu semingu bauð hann
upp á 16 og og 5 en í mjög svo
óformlegri talningu.
■ Séð og heyrt skemmtir fs-
lendingum nú sem fyrr. Er það
alveg sama þótt Ruth Reg-
inalds sé fúl út í það. Fréttir
láku út þess
efnis í gær
að þekkt ís-
lensk kona
myndi fækka
fötum í
næsta tíma-
riti. Og það
væru ekki
einhverjar
gamlar nektarmyndir heldur
ferskar frá linsunni. Þó nokkuð
hefur verið í gegnum árin um
að íslenskar snótir fækki fötum
og skemmst er þess að minn-
ast þegar Hugh Hefner sjálfur
sendi flokk af ljósmyndurum
til að taka myndir af íslenskri
fegurð. Það bíða því margir
spenntir út vikuna.
■ Próflok voru í síðustu viku
í flestum skólum landsins.
Á sama tíma og skóla lýkur
grænkar grasið og fótbolta-
menn fara að sparka tuðrum.
f Lands-
bankadeild
karla er
margt ungra
manna sem
enn geta
djammað
og djúsað
fram eftir
nóttu og
spilað leik fáeinum dögum
síðar. Fótboltamenn voru
áberandi í miðbæ Reykjavíkur
langt fram eftir nóttu um síð-
ustu helgi. Voru þar mótherj-
ar í leik en flestallir voru þeir
í sama liði á bamum. Liðinu
sem vinnur.
■ Vodafone stóð í vetur fyrir
firmamóti í knattspyrnu hér
heima. Þar báru starfsmenn
Glitnis sigur úr býtum og fóru
því sem fulltrúar fslands til
Mosvku þar sem árlegt knatt-
spyrnumót Vodafone fór fram.
fslenska
liðið stóð
sig framar
vonum.
Eftir að
hafa unnið
Þjóðverja í
vítaspyrnu-
keppni í
undanúr-
slitum, unnu þeir Spánverja
1-0 í úrslitaleik. Sigurlaun-
in voru ekki af verri endan-
um, miði á sjálfan úrslitaleik
Meistaradeildarinnar sem
fram fór í borginni á miðviku-
dag. Vodafone er einn stærsti
styrktaraðili Meistaradeildar-
innar en alþjóðlegt Vodafone-
mót er orðið fastur liður hjá
þessu stóra fyrirtæki. Ekki er
víst að íslenskt knattspyrnulið
slái út þennan frábæra árang-
ur í bráð.
SKALDIÐ SKRIFAR
Guðrún Snæbjört Þóroddsdóttir ætlar í mál viö hundaræktunina i Dalsmynni. Tveir
hvolpar þaðan hafa dáið hjá Guðrúnu. Annar þeirra var krufinn og greindist með lifrar-
bólgu og bandorma. Héraðsdýralæknir telur ólíklegt að hvolpurinn hafi smitast í Dals-
mynni. Rekstrarleyfi hundaræktunarinnar er útrunnið en unnið er að endurnýjun.
LÖGSÆKIR ÉH
DALSMYNNI
ERLfl HLYNSDÓTTIR
blodamodur skrifat: erla&dv.is
„Ég sé mest eftir að hafa ekki lát-
ið kryfja fyrri hvolpinn líka," segir
Guðrún Snæbjört Þóroddsdóttir
hundaeigandi sem hefur ráðið sér
lögmann og ædar í mál við hunda-
ræktunina í Dalsmynni. Hún hef-
ur fengið þrjá hunda þaðan. Tveir
þeirra dóu sem hvolpar en sá
þriðji er að jafria sig eftir erfið veik-
indi. Hann er talinn hafa smitast
af öðrum hvolpinum. Þegar seinni
hvolpurinn dó hjá henni lét hún
kryfja hann. Þá kom í Ijós að hann
var með bandorma í mjógörn og
bráða liffarbólgu. Guðrún seg-
ir að sér hafi brugðið mjög þegar
hún fékk krufriingarskýrsluna frá
dýralækni vegna þess hversu mik-
ið hefði amað að hvolpinum Otra
sem var aðeins nokkurra vikna.
Meðal annarra kvilla sem hrjáðu
hann voru bandormasýking, æða-
bólga og samfallin svæði í lungum,
auk þess sem hann greindist já-
kvæður fyrir smitandi lifrarbólgu.
DV sagði frá því í maíbyrjun að
Guðrún héfði keypt chihuahua-
hvolpinn Mána hjá Hundagall-
eríi í Dalsmynni í fyrra. Frá upp-
hafi var hann mikið veikur og dó
loks í nóvember, fjögurra mán-
aða gamall. Guðrún fékk annan
hvolp frá Dalsmynni þar sem
Ásta Sigurðardóttir, eigandi
hundaræktunarinnar, neit-
aði að endurgreiða henni.
Sá hvolpur, Otri, drapst að
kvöldi annars maí.
Fyrir átti Guðrún chi-
huahua-tíkina Emblu
frá Dalsmynni sem er
tveggja ára. Hún hafði
braggast vel og því
ákvað Guðrún að fá
sér leikfélaga fyrir tík-
ina á sama stað.
Ormarnir geta verpt
Embla hefúr verið mjög veik
af lifrarbólgu að undanförnu
og segir Guðrún að dýralækn-
ar sem meðhöndlað hafa hund-
ana hennar telji að Embla hafi
smitast af Otra áður en hann dó.
Það hafi hreinlega bjargað Emb-
lu hversu fljótt hún komst undir
læknishendur.
Þegar DV hafði samband við
Ástu ítrekaði hún að hafa ekki
látið frá sér veika hvolpa. Hún
segir hundana í Dalsmynni
ormahreinsaða eins og skylt er. Þó
komi fyrir að ormamir verpi og út
klekist nýir ormar. Að
sögn Ástu er ekki
óalgengt að
endurtaka
þurfi orma-
hreins-
un síðar.
Hún vís-
ar annars
á Gunnar
Örn Guð-
munds-
son, hér-
aðsdýralækni
Gullbringu-
ogKjósarum-
dæmis.
Gunnar
bend-
v*nj wlktndfseinnlTmmUirtrm ítufð'vrr, tefHriííT 1 uauo“nn
nokknt. m fúr «tmu l.tfl a ftkaudaBskvðm (ynVM1 d™Psl ftrlr
«ttlr hTOlpm, Wj m hetlbriS t»«ir hto l«Kííí“ ' “nd'
HVOLPABNIB DBÁPUST
sem og Emblu, hund Guðrún-
ar, til að athuga hvort finnist
dulin lifrarbólga.
DV5.MAI.
ir á að algengast sé að lifrarbólga
sé um fjóra til níu daga að búa um
sig í dýrinu: „Það er ósennilegt
að hann hafi smitast í Dals-
mynni," segir hann um
Otra. „Ef um lifrarbólgu-
smit væri að ræða mætti
ætía að fleiri hundar
hefðu veikst. Sú var ekki
raunin í Dalsmynni,"
segir hann. Fyrirhugað
er þó að rannsaka syst-
kini Otra, foreldra hans
%
ra'"'*ii*'ii.fi,«if>„i
Með krufningarskyrsluna
Guðrún Snæbjört Þóroddsdóttir lét
kryfja hvolpinn sinn og þá kom í
Ijós að hann var með lifrarbólgu og
bandorma. Hún telur hann hafa
veikst af lifrarbólgu í Dalsmynni en
héraðsdýralæknir segir það óllklegt.
Engin viðurlög
þótt leyfi vanti
Rekstrarleyfi Dalsmynnis
vegna dýrahalds í atvinnuskyni
er útrunnið. Karl Karlsson,
sérfræðingur hjá Umhverfis-
stofu, segist hafa undir hönd-
um umsókn frá Dalsmynni um
endurnýjun en til að honum sé
mögulegt að afgreiða umsókn-
ina þarf hann að fá umsögn frá hér-
aðsdýralækni, sem íþessu tilviki er
Gunnar Örn. „Það er skylt að hafa
þetta leyfi. Þeir sem það ekki hafa
uppfýlla ekki ákvæði reglugerðar,"
segir Karl. Hann bendir þó á að
viðurlög séu af skornum skammti.
Þannig geti hann ekki beitt dag-
sektum eða lokað hjá fólki sem hef-
ur ekki leyfi. Nefnd sem umhverf-
isráðherra skipaði í apríl vinnur
að endurskoðun laganna. Gunn-
ar Örn segir það meðal annars
vegna anna sem hann hefur enn
ekki sent Umhverfisstofu umsögn
vegna Dalsmynnis en
býst við að gera það
mjög bráðlega. Einnig
hafi umsögnin dregist
vegna þess að verið var
að endurbæta aðstöð-
una í Dalsmynni í takt
við hertar reglur
um aðbúnað.
Hann tek-
ur ftarn að
Dalsmynni
sé eina
hunda-
ræktunin á
landinu sem
hafi haft starfs-
leyfi en slíkt leyfi
þarf ef rækt-
andi er með sex
hunda eða fleiri.
KRISTJÁN HREINSSON SKÁLD SKRIFAR. Ogsvo stöndum við hérídagogsjáumfyrir okkur áréttláta menn sem með óréttlœti Imfa komist til valda.
Hvað eiga þeir sameiginlegt Dav-
íð Oddsson bankastarfsmaður
og hann þama Haraldur Johann-
essen ríkislögreglustjóri, sonur
Matthíasar, fyrrverandi ritstjóra?
Þessi spuming fær svar sitt þegar ég hef far-
ið eins og köttur í kringum heitan graut.
Kristur sagði að við ættum að gjalda illt
með góðu en Konfúsíus sagði að gjalda bæri
illt með réttlæti. Og svo stöndum við hér í dag
og sjáum fyrir okkur óréttláta menn sem með
óréttíæti hafa komist til valda, menn sem
helst vilja gjalda gott með illu.
Vlð erum með ríkislögreglustjóra hér á
landi sem er tengdur innsta kjarna Sjálfstæð-
isflokksins og þrátt fyrir að maður þessi hafi
sannað afburða hæfni sína til að klúðra öllu
sem hann kemur nálægt raða ráðamenn
undir hann silkipúðum. Greindin er slík að
manni verður bumbult við tilhugsunina eina.
Þeir væru flottir saman í spjallþætti Haraldur
lögga og borgarstarfsmennimir Ólafúr F. og
Jakob. Kræst! - Bakkabræður hvað!
Auðvitað er Haraldur eitt skýrasta dæmi
veraldarsögunnar um það hvemig flokks-
hollusta, vinavæðing og innmúruð fjöl-
skyldutengsl geta komið mönnum í feitar
stöður og flott djobb.
Haraldur þessi afrekaði það víst einhverju
sinni, í votta viðurvist, að hóta manni lífláti.
Líflátshótunin var rannsökuð og þegar sakir
virtust sannaðar, týndust gögn málsins. Við
emm að tala um það, kæm lesendur, að eitt
stykki rfldslögreglustjóri hótar manni lífláti
og svo em gögn sem væntanlega em undir
verndarvæng embættisins skyndilega horfin
og ekki hægt að vinna málið frekar.
Hvar emm við eiginlega stödd f þróunar-
ferlinu þegar við leyfum óréttlátasta fólkinu
að fylgja eftir því sem við köllum réttlæti?
Við emm stöðugt að velja menn til starfa
sem gera fátt annað en koma sér og sínum
að kjötkötíunum. Við þolum það án átaka að
embættismenn láta amöbur og einfrumunga
vinna verk sem ætluð eru alvöm fólki með
eitthvað á milli eyrnanna.
Jú, þeir Davíð og Haraldur eiga það sameig-
inlegt að þeir þiggja laun fyrir störf sem við
gætum lagt niður án þess að nokkur tæki eft-
irþví.
Og núna man ég vísu sem eitt sinn var ort
um ónefnda löggu:
Það er Ijóst að ísland er
ótrúlegur staður
efeinhver lögga lifir hér
sem lyginn gkepamaður.