Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2008, Síða 36
36 FÖSTUDAGUR 23. MAl 2008
Helgarblað PV
hefur lifað tímana tvenna. Hann talar á einlægan hátt um trúna, skilnaðinn, tónlistina og
ástina. Páll talar um villta tíma með Jet Black Joe þar sem hann skaut tronnnarann og varð fyrstur á íslandi
til að verða fyrir táragasi, þegar bróðir Gunnars í Krossinum sveik hann og hann fann jafnvægið i lífinu. Ás-
geir Jónsson tók viðtal við Pál sem lifir góðu lífi i dag og sér ekki eftir neinu.
Þeir eru fáir á íslandi sem ekki
þekkja til stórsöngvarans Páls Rós-
inkrans. Frá því að Páll steig fram á
sjónarsviðið með hljómsveit sinni
Jet Black Joe hefur hann alltaf ver-
ið í umræðunni þó lítið fari fyrir
honum. Svæsnar sögur úr rokkinu,
sterk trú, þátttakan í Krossinum,
skilnaðurinn og tónlistin eru allt
hlutir sem hafa mótað líf þessa
manns en á annan hátt en flesta
grunar.
Lítur á sig sem Hafnfirðing
„Ég er fæddur á Landspítalan-
um 18.janúar 1974," segir Páll Rós-
inkrans þegar hann sest niður til
þess að ræða við blaðamann DV
um allt og ekki neitt. Páll er vel til
fara og virkar hógvær og kurteis.
„Ég bjó í Reykjavík til átta ára ald-
urs en flutti síðan í Hafnarfjörð. Þar
bjó ég til tuttugu og fjögurra ára
aldurs þannig að ég tel mig nú vera
Hafnfirðing," segir Páll sem stað-
festir enn og aftur að Hafnarfjarð-
arbær virðist ala endalaust af sér
fært tónlistarfólk.
Þótt Páll hafi alltaf verið viðloð-
andi tónlist og söng, meðal ann-
ars í gegnum sunnudagaskólann í
Krossinum þegar hann var yngri,
byrjaði rokkferillinn þegar hann
var 14 ára í Hafnarfirði. „Þá var ég
í bílskúrsbandi sem hét Edrú," en
aðspurður segir Páll að nafn hljóm-
sveitarinnar hafi vissulega verið
kaldhæðni. „Það var allavega ekki
tilgangur hennar. Enda vorum við
bara ungir strákar með sítt hár. Við
æfðum tvisvar í vilcu og spiluðum
í félagsmiðstöðvunum og svona.
Spiluðum lög sem við filuðum og
það var bara gaman."
Fæðing Jet Black Joe
í Húnaveri
Það var í gegnum hljómsveitina
Edrú sem að Páll kynntist Gunn-
ari Bjarna Ragnarssyni, hinum
forsprakka Jet Black Joe. „Hljóm-
sveitin mín og hljómsveitin hans
Bootlegs áttu báðar að spila á úti-
hátíðinni í Húnaveri." Má með
sanni segja að ábyrgðarleysi og
óstundvísi ungra síðhærðra rolck-
ara hafi orðið til þess að þeir félag-
ar kynntust því báðir voru þeir einu
meðlimir sinna hljómsveita sem
mættu á svæðið.
„Við tókum tal saman og upp á
djókið tókum við þátt í einhverri
hæfileikakeppni saman." Mánuði
síðar var PáÚ mættur heim til Gunn-
ars, „Við fórum að semja tónlist og
seinna meir fóru fleiri og fleiri að
bætast í hópinn og úr varð Jet Black
Joe." Fyrsta lag sveitarinnar var tek-
ið upp seint á árinu 1991 og var Páll
þá 17 ára. Það var smellurinn Rain
sem náði strax miklum vinsældum.
Lagið kom út vorið 1992 ásamt Big
...
is:
NýhljómsvxTt hcfur n.irt ótrúlcgmn vinsældum á stuttum tíma:
Kvenhylli
°g
frægðarljós
- páll Rrtslnkrans, l8árasirnRvíii1£JeiBlrtckJoc.cr|>opi>stianií> Jtrppleiö
lúternkcltuvaartoorr-
w< m n»m t»hn » ikiu
im, omw ucu. «n> tM Bcintifynusmi Roknasíns
Sfc£nS«“»>>u»Sr5 rtnortc t-rT-,B^,>,„ „
sgsrjsxrsi.’s
Ir-nm. -jnWCT i t-iy»»--»c»»L-jii .Vt ciAli *k>*6uD»ð takJtótúli.tM nwíuwtl rnVsa. WB rráUusc cr
aS&KSi'íaÆ KK&'aiSiU.
SKÍ'SSfSÆ’i MSS^*
uciHwww™, gszssszzzz asar&assjg-
wJ"ÍT, wu r—nnarl Hcuna w toftr löcrrur q; Þfir loiw IR HiiV inn wrti pcn»0ana nrn» ÞMn
Sj***t*^v*ig«*g
* B Íituín UmTlUia b*ft J-éb hríw pntf «*ki;r 1 Juj: h»ry>t ttillU l»ótt NStamni WB
Wtur KrtukincMn aft kmu rt W tjijvai.* tnfr ~S*nt 'tvö r-V' VHW*k"n I*4 **
irprtini >6 tvt» rftu hiult l»í> i*J uia vjfttwftStiórninni uoi Luxtíftne ** 'Vi hiifuiB
w-*»A toft hafi ortáft tii tru aft títan h!jóon»c *jn»t Ttrfrxiálr nc hrlncntua rtftEn þaa oríkímatt
úÖSSTi liöjo. ht. ES*»n»Jr.- ÚCWSrtr l'Wll Hnú, Itcroiac,. tonl ttartrra. w
lWns.lr»rt>C»»tW>Wá>rar»bar„m lart, vC *pCus> crleBíC >»U»t, >ri t.vrt, fcrtlrtrr. Hrur um
SaSaStfe —
wetiua n»4> þ.4m t#**u hrU uct oUur. Mtt trn lytftfart
kcnift fram ft qftMmófiift nm Unct hUtaswinr i pak» d»s* noOKta. 'tLA
Hefurverið trúaðurfrá
blautu barnsbeini.
Fat Stone á plötunni Bandalög 5 og
voru vinsældir þessarar ungu og
efnilegu rokkfiljómsveitar tryggðar.
„Við gáfum út fyrstu plötuna
okkar fyrir jóiin 1992," en hún hét
í höfuðið á hljómsveitinni og segir
Páll að hlutirnir hafi gerst með ógn-
arhraða á þessum tíma. „Allt í einu
vorum við famir að túra með þess-
um stóru hijómsveitum eins og Sál-
inni og Todmobile." I kjölfarið fylgdu
plötumar You ain't here árið 1993
og Fuzz árið 1994. Það er skemmst
frá því að segja að Jet Black Joe var
rokkhljómsveit á íslandi á þessum
tíma.
Skaut trommarann
Eins og alltaf fylgdi rokkinu mik-
il keyrsla. Sætar stelpur, sukk og há-
vaðapartí. Margar ótrúlegar sögur
hafa heyrst á kaffistofum af ævintýr-
um Páls og félaga og flestar þeirra
em dagsannar. „Það em margar
sögur frá þessum tíma og flestar
em sannar þó þær séu nú stílfærð-
ar margar hveijar. En ég hef gaman
af því að heyra þær í mismunandi
útgáfu og heyra hvemig þær hafa
breyst."
Þegar Páll er spurður um eina
söguna sem tengist voðaskoti er
hann ekki lengi að kveikja. „Já, ég
skaut trommarann, Jón Örn Arnar-
son," segir Páll með sinni hæglátu
rödd. „Ég skaut hann í öxlina. Hann
limpaðist niður og ég kom honum
í snatri á spítala." Þegar þangað var
komið kom hver læknirinn á fæt-
ur öðmm aðvífandi, „Þeir vom all-
ir að segja hvað hann væri heppinn
að hafa sloppið því skotið fór rétt
fram hjá slagæð. Síðan em þeir all-
ir þarna að stumra yfir honum og
ræða málin þegar ég segi „Hallæri,
ég missi af ljósatímanum," segir Páll
og hlær þegar hann rifjar upp sög-
una. „Trommarinn var ólaður þarna
niður og gat ekki sparkað í rassgatið
á mér en við hlógum mikið að þessu
síðar meir."
Þó sagan hljómi eins og Páll hafi
skotið félaga sinn viljandi þá var
það ekki raunin. „Þetta var bara
voðaskot þó svo að sagan um að
ég hafi gert þetta viljandi sé mun
skemmtilegri. Þetta var sem sagt
22 kalibera riffill sem ég hafði verið
að meðhöndla eitthvað þarna áður,
þá óhlaðinn. Svo hafði hann verið
hlaðinn þama í millitíðinni- og ég
vissi ekki af því."
í Þ.Á GÖMLU GÓÐU
Palli var sá heitasti á svæðinu.
Trommarinn fékk grjót í
hausinn
Hann gengst við annarri sögu
sem blaðamaður mkkar hann um,
sem tengist hópslagsmálum eftir
ball á ísafirði. „Við vomm þarna að
spila á stað sem var kallaður Sjall-
inn að mig minnir. Við vorum með
tónleika þarna um kvöldið og höfð-
um svo gistiaðstöðu á efri hæð-
inni." Páll og félagar áttu bókað flug
snemma daginn eftir og hugðust
fara snemma í háttinn og nenntu
ekki að halda eftirpartí eftir tón-
leikana að þessu sinni.
„Það var þarna hópur fólks sem
vildi komast inn en við ætluðum
bara í háttinn. Það voru víst ein-
hverjar stelpur þarna inni og menn
vildu bara hafa þetta rólegt," seg-
ir Páll sem reyndar var ekld með
stelpu upp á arminn þetta kvöldið.
„En þeir vom þarna fýrir utan með
einhver læti og vildu komast inn.
Sem endaði með því að þeir henda
grjóti inn um gluggann og lend-
ir grjótið í trommaranum." Hringt
var á lögregluna til þess að tilkynna
um atvikið en viðbrögð þeirra vom
heldur ófagleg svo ekki sé meira
sagt. „Þeir voru búnir að vera þarna
fyrir utan að fylgjast með þessu all-
an tímann og gerðu ekkert. Þegar
við hringdum svo sögðu þeir okk-
ur að láta vinnandi fólk í friði og
skelltu svo á."
Fyrstur til að vera meisaður
Á þessum tímapunkti voru
meðlimir sveitarinnar orðnir held-
ur pirraðir á atgangi heimamanna
og sinnuleysi lögreglunar en af fasi
Páls að dæma þegar sagan er sögð
er erfitt að sjá fyrir sér að hann geti
yfir höfuð skipt skapi. „Við tókum
upp á því að brjóta þarna fæturna
af tréstólum sem vom í íbúðinni
og hlaupa út með stólfætur á lofti."
Þegar út var komið var tekið á móti
þeim félögum með grjótkasti og
hnefahöggum.
„Við tökum þarna hressilega á
móti en emm svo reknir aftur inn á
endanum. Þegar ég kominn í dyra-
gættina lít ég við og sé að það em
tveir menn að berja á rótaranum
okkar. Ég sé að annar maðurinn
er með stein í hendinni sem hann
slær niður trekk í trelck og ég held
að það sé hreinlega verið að drepa
Sigga rótara."
Páll hleypur Sigga til bjargar og
slær annan manninn þéttu höggi.
„Þá er kallað á mig „Páll Rósin-
krans" og ég lít við og er meisaður
beint í augun. Og sagan segir að ég
sé fyrsti maðurinn á íslandi til þess
að vera meisaður."
Páll og félagar voru handteknir í
kjölfarið og þurftu seinna að mæta
fýrir rétt. „Við sluppum þó allir við
dóm, nema umboðsmaðurinn.
Hann var dæmdur fyrir kjálkabrot
að mig minnir."
Á barmi heimsfrægðar
Páll hugsar með hlýhug til þessa
Framhald
ánæstusíðu