Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2008, Blaðsíða 38
38 FÖSTUDAGUR 23. MAf 2008
Helgarblað DV
tímabils í iífi sínu þó að margt hafi
gengið á. „Þetta var að mörgu leyti
skemmtilegasta tímabil lífs míns.
Fullt af góðum minningum og
góðri tónlist sem lifir áfram og það
skiptir líka miklu." Það hefur þó
alltaf fylgt Jet Black Joe að sveitin
hafi verið á barmi heimsfrægðar
en rétt misst af lestinni.
„Við vorum vissulega komn-
ir með dreifingarsamninga og
komu plöturnar út í Evrópu, Japan
og víðar," en Páll segir aðalástæð-
una fyrir því að þeir komust ekki
lengra vera þá að ekki hafi verið
staðið nægilega vel að hlutunum.
„Við vorum bara ungir rokkarar og
lifðum þannig en þeir menn sem
áttu að sjá um þetta, útgáfustjórar
og aðrir, stóðu sig ekki vel að mínu
áliti. Þeir hugsuðu meira um sjálfa
sig en okkur."
Vitsmunlegt sjálfsmorð
Á þessum tímapunkti hafði
Páll fengið nóg af rokkinu og því
lífi sem fylgdi því. „Ég er mjög
trúaður maður og hef alltaf verið.
Það hafði lengi blundað í mér að
skipta yfir í þann geira og breyta
alveg um. Framkvæma það sem
margir myndu kalla vitsmunalegt
sjálfsmorð." En sannfæring Páls
var sterk og hann ákvað að fylgja
henni. „Ég lét bara vaða og sé ekk-
ert eftir því."
Á þessum tíma var mikið tal
um ákvörðun Páls og margir að-
dáendur sveitarinnar voru ósátt-
ir og undrandi. Jet Black Joe hafði
eignast stóran aðdáendahóp sem
átti kannski síst von á því að Rós-
inkransinn sjálfur myndi „frelsast"
eins og það er kallað. En sú varð
raunin.
„Ég varð fyrir trúarupplifun og
öllum pakkanum. Þetta gaf mér
kraft og hjálpaði mér mikið. Mér
leið vel og þetta var góður tími
í mínu lífi." Eins og margir sem
hafa barist við Bakkus og leita í
trúna fann Páll skjól í henni. „Ég
drakk hvorki né reykti í fimm ár.
Var bara hreinn og beinn og leið
vel þannig." Páll segist svo hafa
fundið jafhvægi í þessum málum
og líði vel í dag. „Ég fæ mér alveg
bjór og skemmti mér, en á annan
hátt en áður."
Leitaði í Krossinn
Eins og frægt er orðið fór Páll
frá því að vera aðalsöngvari vin-
sælustu rokkhljómsveitar fslands
yfir í að vera Guðs maður í Kross-
inum og þótt mörgum það undar-
legt. „Jú jú, maður heyrði oft tal-
að um Palla sem er frelsaður og
ruglaður," en sem fyrr segir minn-
ist hann U'mans í Krossinum sem
góðs tíma þar sem hann fann sjálf-
an sig og ástina.
„Eg kynntist þar góðri konu
sem heitir Sigríður Margrét Ól-
afsdóttir," og eins og oft áður í lífi
Páls gerðust hlutimir hratt. „Við
giftum okkur 12. desember 1998.
Þá vorum við búin að vera sam-
an í íjóra mánuði og hún komin
fjóra mánuði á leið," segir Páll og
skellir upp úr. Páll eignaðist svo
Henríettu Hrefnu 1. júní árið eft-
ir og hjónabandið gekk vel. Þetta
var annað barn Páls en hann á líka
15 ára son, Helga Val, sem hann
eignaðist 18 ára með þáverandi
kærustu sinni. „Já ég var kallaöur
heim af balli í Keflavík þegar hún
átti að eiga."
Bróöir Gunnars sveik
Þó Páli líkaði lffið í Krossinum
vel þá var það ekki allt dans á rós-
um og babb kom í bátinn. „Nokkr-
ir menn í Krossinum gáfu út plötu
með mér árið 2000 sem hét No
turning back." Platan seldist eins
og heitar lummur eða í um 15.000
eintökum sem telst mjög gott á ís-
lenskum markaði. „Þeir sviku mig
um þann pening sem ég átti að fá
fyrir plötuna og ég átti erfitt með
að sætta mig við það. Mér fannst
ég ekki njóta nægs stuðnings."
Einn af þeim mönnum sem
Páll segir hafa svikið sig er bróðir
Gunnars Þorsteinssonar, leiðtoga
Krossins. Páll segir Gunnar þó
ekki hafa komið nálægt því máli
og ber honum vel söguna. „Gunn-
ar stendur fyrir margt sem aðrir
þora ekki að tala um. Hann er án
efa besti predikari landsins og klár
í kjaftinum. Ég ber Gunnari vel
söguna og hann hefur kennt mér
margt."
Erfiður skilnaður og
ástin á ný
Páll var giftur Sigríði í sjö og
hálft ár og gekk hjónabandið vel
en á endanum héldu þau í sína
áttina hvort. „Eins og gerist svo
oft í samböndum þá bara stefndu
leiðir okkar í ólfkar áttir og við
ákváðum að skilja." Páll segir að
skilnaðurinn sé vissulega ein af
erfiðustu raunum h'fs hans. „Að
ganga í gegnum skilnað er alltaf
erfitt en það er gott á milli okkar í
dag og það skiptir mestu máli að
mínu mati."
Eins og Páll orðar það sjálfur
heldur lífið áfram og í dag hefur
Páll kynnst annari konu. „Ég er
búinn að kynnast yndislegri konu
í dag sem heitir Rut Róberts. Hún
er falleg og góð," segir Páll og af
svipnum á honum að dæma er
greinilegt að hann er hugfanginn
afRut.
Rut og Páll eru búin að vera
saman í hálft ár en hittust fyrst fyr-
ir rúmum 15 árum. „Ég sá Rut fyrst
á Rósenbergkjallaranum þegar ég
var svona 18, 19 ára og þá hafði ég.
nú bára aldrei séð annað eins. Síð-
an hitti ég hana ekkert aftur fyrr
en 3. nóvember síðastliðinn niðri
í bæ," og þau hafa verið óaðskilj-
anleg sfðan. „Við bara smullum
svona saman," en Rut og Páll búa
saman í dag. „Það er nú yfirleitt
þannig í mínu lífi að þegar hlut-
irnir gerast þá gerast þeir mjög
hratt. Það dembist yfir mann sem
verða skal."
Selur eins og mjólk
Eftir allt sem gengið hafði á hjá
Páli var ævintýrið bara að byrja.
Páll fór að gefa út sínar eigin plöt-
ur og átti eftir að koma fram með
Jet Black Joe á ný. Allar plötur sem
Páll gefur út seljast eins og mjólk
þó lítið fari fyrir honum í fjölmiðl-
um. „Já, plöturnar mínar hafa
selst nokkuð vel. No turning back
seldist í um 20.000 eintökum og
„EGERMJOG
TRÚAÐUR MAÐ-
UR OG HEF ALLTAF
VERIÐ. ÞAÐ HAFÐI
LENGIBLUNDAÐ
ÍMÉRAÐSKIPTA
YFIR í ÞANN GEIRA
OG BREYTA ALVEG
UM. FRAMKVÆMA
ÞAÐ SEM MARGIR
MYNDU KALLA
VITSMUNALEGT
SJÁLFSMORÐ."
Your song sem kom út 2001 seld-
ist í meira en 20.000 eintökum.
Það verður að teljast bara nokk-
uð gott," segir Páll, en samtals má
ætla að kappinn sé búinn að selja
hátt í 200.000 stykki hér heima ef
allt er teldð saman.
Páll er þó með skýringu á reið-
um höndum um hvers vegna
hann selur svona mikið og það án
mikilla erfiðleika eða auglýsinga.
„Ég spila rosalega mikið, Ekki bara
með Jet Black Joe heldur fyrir fólk
í veislum við öll tækifæri, í brúð-
kaupum og við jarðarfarir líka. Þar
spila ég mikið af þessum lögum og
það virðist ná til breiðs hóps," en
þegar mest er að gera syngur Páll
fyrir þúsundir manna á mánuði.
Páll segir það fi'nt að hann fái
ekki athygli miðað við sölutölur.
„Ég hef ekki áhuga á að vera enda-
laust á síðum blaðanna. Frekar
forðast það, nema kannski til að
minna á mig einstaka sinnum."
Páli finnst margir fara offari í því.
„Maður getur varla opnað blað án
þess að sjá myndir af sama fólkinu
aftur og aftur. Ég hugsa þetta bara
öðruvísi. Ég lifi góðu lífi og það
gengur vel. Þannig að ég þarf ekk-
ert að vera ota mínum tota of mik-
ið. Það er í raun ekki minn karakt-
er," segir Páll og blaðamaður tekur
undir enda búinn að falast eftir
viðtali í nokkra mánuði.
Ekki í bleikan gaila
Páll tók þátt í undankeppni
Eurovision í ár í þáttunum Laug-
ardagslögin og var einn þeirra
átta sem náðu í úrslit. Eins og
svo margir aðrir sem tóku þátt
í keppninni framan af vissi Páll
ekki að hann væri að keppa um
farmiða til Serbíu. „Gummi Jóns
spurði mig hvort ég væri til í að
syngja lag fyrir hann í sjónvarps-
þætti og ég sá nú ekkert að því.
En ég vissi ekkert um þetta Euro-
vision-dæmi enda var þetta ekkert
kynnt þannig til að byrja með."
Páll segist ekki sjá eftir því að
hafa ekki komist alla leið. „Eins
og ég sagði á tónleikunum með Jet
Black Joe í Höllinni á fösmdaginn
vildi ég ffekar vera staddur þar en
í Serbíu."
Páll útilokar þó ekki að hann
muni stíga á Eurovision-sviðið.
„Ég gæti kannski hugsað mér að
fara einhvern tímann út með gott
lag en ég myndi ekki vera í bleik-
um galla. Ég myndi vilja vera með
hljómsveit á sviðinu og flytja gon
lag. Þetta er orðið svo mikið euro-
popp, trommuheiladansrugl eiu-
hvað. Ég á ekkert heima í því."
Nýtt efni með JBJ og blús
Eftir að Jet Black Joe kom aftur
saman á Eldborgarhátíðinni 2001
hafa Gunnar Bjami og Páll verið
að vinna saman, með hléum þó.
Árið 2006 kom svo út fjórða breið-
skífa sveitarinnar Full circle og nú
gæU verið von á þeirri fimmtu.
„Við emm að vinna að nýju efni
og ætlum að spila í sumar. Við telj-
um okkur aldrei hafa verið betri
þannig séð," segir Palli og glott-
ir. „Það er engin pressa á okk-
ur með eitt né neiu og við ætlum
bara að spila þetta eftir hjartanu
og sjá hvert það leiðir okkur. Finna
gamla neistann og gefa út það sem
við emm sáttir við."
Páll segist líka eiga mikið eftir
að gera sjálfur þótt hann sé eklá
byrjaður að vinna í neinu eins og
er. „Ég hef hlustað á blús síðan ég
var átta ára og á alltaf eftir að gefa
út blúsplötu. Kannski djass líka. Ég
tel mig bæði vera nokkuð fjölhæf-
an og geta skilað því vel." Páll ÚU-
lokar ekki að gera jafnvel sálma-
plötu líka. „Maður þarf að syngja
fýrir Guð líka."
Meö Guö í hjarta sér
Þegar Páll er spurður hvar Guð
sé í lífi hans er hann ekki lengi að
svara. „Guð er í hjarta mínu. Jesú
sagði að himnaríki væri innra með
þér." En Páll virðist hafa fundið
stöðugt og sanngjamt samband við
Guð. Páll segist ekki vera í neinum
söfnuði eins og áður þó hann fari
oftar.í ldrkju en flestir. „Ég er ekki
í neinum sérstökum söfnuði en ég
syng mikið í kirkju. Á tónleikum í
Fíladelfíu, við jarðarfarir og brúð-
kaup og öllu Ulheyrandi. ÆUi mað-
ur sé þá ekki oftar í kirkju en flesUr
aðrir," segir Páll að lokum. asgeir@
dv.is