Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2008, Qupperneq 46
46 FÖSTUDAGUR 23. MAl 2008
Ættfræði DV
UMSJÓN: KJARTAN GUNNAR KJARTANSSON kgk@dv.is
Kjartan Gunnar Kjartansson
rekur ættir þjóöþekktra
Islendinga sem hafa verið í
fréttum í vikunni, rifjar upp
fréttnæma viðburði liðinna ára
og minnist horfinna merkra
íslendinga. Lesendurgeta sent
inn tilkynningar um stóraf-
mæli á netfangið kgk@dv.is
Guðríður Guðbrandsdóttir
60 ARA ALAUGARDAG
húsmóðir í Reykjavík
Guðríður er fædd að
Spágilsstöðum í Laxár-
dal í Dölum og ólst þar
upp í foreldrahúsum.
Hún var húsfreyja
í Búðardal 1933-53 en
eftir það í Reykjavík.
Á sínum yngri árum
í Dölum tók Guðríð-
ur mikinn þátt í starfi
Ungmennafélags-
ins Ólafs pá, einkum
leiklistarstarfi á veg-
um félagsins. Eftir að
Guðríður fluttist til
Reykjavíkur tók hún
virkan þátt í starfsemi Breið-
firðingafélagsins. Hún er mikil
hannyrðakona.
FJÖLSKYLDA
Guðríður giftist 4.9.1932 Þor-
steini Jóhannssyni, f. 19.5. 1907,
d. 23.7. 1985, verslunarmanni.
Foreldrar hans voru Jóhann B.
Jensson, hreppstjóri í Hauka-
dalshreppi í Dölum, og Halldóra
Ólafsdóttir en þau voru búsett
að Hlíðarenda.
Dóttir Guðríðar og Þorsteins:
Gyða Þorsteinsdóttir, f. 2.4.
1942, d. 28.7. 2000, húsffeyja í
Kópavogi, var gift Guðmundi Á.
Bjarnasyni.
Fósturbörn Guðríðar og Þor-
steins: Sigurður Markússon, f.
16.9. 1929, fyrrv. framkvæmda-
stjóri í Reykjavík, kvæntur Ingu
Árnadóttur; Halldóra Kristjáns-
dóttir, f. 26.5. 1931, húsffeyja í
Kópavogi, ekkja eftir Hannes
Alfonsson.
Systlcini Guðríðar: Sigrún
Guðbrandsdóttir, f. 1900, d.
J968, húsfreyja að Neðri-Hunda-
dal í Miðdölum; Guðmundur
Guðbrandsson, f. 1901, d. 1932,
til heimilis að Spágilsstöðum;
Markús Guðbrandsson, f. 1902,
d. 1966, bóndi að Spágilsstöðum;
Ása Guðbrandsdóttir, f. 1903, d.
1972, húsfreyja í Reykjavík; Hin-
rik Guðbrandsson, f. 1905, d.
1940, bóndi að Spágilsstöðum;
Jón Guðbrandsson, f. 1907, d.
1931, til heimilis að Spágilsstöð-
um; Kristmundur Guð-
brandsson, f. 1909, d.
1999, bóndi að Skógs-
koti í Miðdölum; Guð-
rún Guðbrandsdóttir, f.
1912, d. 2003, ljósmóðir
í Dölum, var búsett að
Spágilsstöðum en síð-
ar í Búðardal og loks í
Reykjavík; Sigurbjörn
Guðbrandsson, f. 1913,
d. 2000, vann lengi að
búi foreldra sinna á
Spágilsstöðum, síðar
húsvörður í Reykjavík;
Sigurður Guðbrands-
son, f. 1915, d. 1932, búsettur á
Spágilsstöðum.
Uppeldissystur Guðríðar:
Lára Marteinsdóttir, f. um 1918,
húsffeyja í Noregi; Bára Þórðar-
dóttir, f. 23.2.1924, d. 12.1. 2001,
húsffeyja í Reykjavík og á Suður-
nesjum.
Foreldrar Guðríðar: Guð-
brandur Jónsson, f. 30.8.1873, d.
9.9. 1944, bóndi að Spágilsstöð-
um, og k.h., Sigríður Margrét
Sigurbjörnsdóttir, f. 7.2. 1876, d.
14.3.1946, húsfreyja þar.
ÆTT
Faðir Guðbrands var Jón
Markússon, b. á Spágilsstöð-
um. Hann var sonur Markúsar
Magnússonar, b. á Svarfhóli í
Laxárdal. Móðir Guðbrands var
Guðríður Jónsdóttir ffá Geita-
stekkíHörðudal, ÓJafssonar, en
hún var seinni kona Jóns Mark-
ússonar.
Foreldrar Sigríðar voru Sig-
urbjörn Guðmundsson, b. á
Hömrum í Laxárdal, og fyrri
kona hans Guðrún Jóhannes-
dóttir ffá Sauðhúsum í Laxár-
dal, Jónssonar. Sigurbjörn flutt-
ist til Kanada með konu sinni og
tveimur dætrum en þriðja dótt-
irin, Sigríður, varð eftir heima.
Hún ólst upp hjá ömmu sinni
og afa á Vígholtsstöðum í Lax-
árdal, Sigríði Bjarnadóttur og
Guðmundi Tómassyni.
Guðríður verður að heiman
á afmælisdaginn.
TorfhildurTorfadóttir
húsmóðirá Isafirði
Torfhildur fæddist mu
í Asparvík á Ströndum
en missti föður sinn
kornung og ólst upp á
Bólstað í Steingríms- C
firði. Hún var í vist og
vinnumennsku víða á
Vestfjöröum sem ung
kona en flutti til Isa-
fjarðar á þriðja áratugn-
um þar sem hún giftist
og var síðan húsmóðir
þar.
Torfhildur var
saumadama á Klæð- ___________
skeraverkstæði Einars
og Kristjáns á fsafirði um skeið.
Hún var síðan í fiskvinnslu og
vann við rækjuvinnslu í mörg ár.
Fjölskylda
Torfhildur giftist 1.10. 1930
Einari Jóni Jóelssyni, f. 4.7.
1902, d. 13.5.1981, sjómanni og
verkamanni á ísafirði. Hann var
sonur Jóns Jóels Einarssonar og
Kristínar Jónu Aradóttur.
Börn Torfhildar og Einars:
Kristín Einarsdóttir, f. 26.1.
1933, húsmóðir í Njarðvílcum,
gift Eiði Reyni Vilhelmssyni;
i&i.
104
ára á
lauqardag
Jónína Guðrún Einars-
dóttir, f. 10.10. 1938,
d. 21.12. 1939; Jónat-
an Bjöm Einarsson,
jjM f. 30.7. 1940, d. 18.11.
1991, vinnuvélstjóri í
Keflavík, var kvæntur
Sólveigu ■ Sigurbjörgu
Jónu Þórðardóttur;
Sigurbjörn Sævar Ein-
arsson, f. 13.1. 1942,
verkamaður á ísafirði,
var kvæntur Bjarneyju
Grém Sigurðardótt-
ur en þau skildu; Torfi
Einarsson, f. 7.12.1949,
útibússtjóri Sjóvá-Almennra á
Vestfjörðum, var kvæntur Elísa-
betu Jóhannsdóttur sem er látin
en seinni kona hans er Guðrún
Jónsdóttir.
Systkini Torfhildar urðu tíu
talsins en þau em öll látin.
Foreldrar Torfhildar voru
Torfi Bjömsson, f. 5.7. 1854, d.
18.2. 1905, bóndi í Asparvík á
Ströndum, og k.h., Anna Bjam-
veig Bjamadóttir, f. 19.6. 1863, d.
13.11.1949, húsfreyja.
Torflúldur er við góða heilsu
en hún dvelur nú á Hlíf á ísafirði.
STEINUNNJÓ-
HANNESDÓTTIR
RITHOFUNDUR
Steinunn fæddist á Akranesi og
ólst þar upp. Hún lauk stúdentsprófi
frá MA 1967, leiklistarprófi frá Leik-
listarskóla Þjóðleikhússins 1970, var
í frönskunámi við háskólann í Toul-
ouse 1967-68, smndaði framhalds-
nám í leiklist við Statens Scenskola
í Stoklchólmi 1970-71 og við Stokk-
hólmsháskóla í leikhúsfræðum og
sálfræði 1971-72, og nám í sálarfræði
við HÍ 1978-79. Steinunn bjó í Sví-
þjóð 1986-90 og sótti hún þá ýmis
námskeið tengd leikhúsi og hand-
ritagerð.
Steinunn var leikari við Þjóðleik-
húsið 1972-86 og jafnframt leikstjóri
með áhugaleikfélögum á sama tíma.
Hún var ritari Leiklistarsambands
Norðurlanda 1991-92 og fram-
kvæmdastjóri Norrænna leildistar-
daga vorið 1992. Hún hefur verið
greina- og pistlahöfundur fyrir ýmis
blöð og tímarit og höfundur fjölda
útvarpsþátta og er nú starfandi rit-
höfundur.
Steinunn hefur m.a. skrífað ævi-
sögu Halldóru Briem, leikritin Dans
á rósum, Ferðalok, og Heimur Guð-
ríðar, barna- og unglingasögurnar
Flautan og vindurinn, Mamma fer á
þing og Tunglið hennar Theódóru,
auk smásagna, stuttmyndahand-
rita, þýðinga og fjölda greina í blöð
og tímarit. Þá kom út eftir Steinunni
Reisubók Guðríðar Símonardóttur
2001 og hefur hún verið margend-
urprentuð síðan. Þess má geta að í
Vestmannaeyjum hefur verið stofn-
að Félag um sögusetur 1627, sem
starfar af mildum krafti og varð til
upp úr leshring um bókina. Er Stein-
unn ráðgjafi hópsins.
Steinunn sat í varastjórn Fé-
lags íslenskra leikara, í ritstjórn 19.
júní 1993-96, var varamaður í stjórn
Rithöfundasambands íslands og í
menningarmálanefnd Reykjavíkur
1994-98, átti sæti í dómnefnd Bók-
menntaverðlauna Tómasar Guð-
mundssonar 1997 og 1998, hefúr set-
ið í stjórn Samtaka um betri byggð frá
stofnun 1999, situr í stjórn Minning-
arsjóðs Guðmundar Böðvarssonar
og Ingibjargar Sigurðardóttur og sit-
ur í þjóðmálanefnd Þjóðkirkjunnar.
FJÖLSKYLDA
Steinunn giftíst 2.3. 1968 Einari
Karli Haraldssyni, f. 17.12. 1947, að-
stoðarmanni iðnaðarráðherra og
fyrrv. ritstjóra. Hann er sonur Har-
aldar M. Sigurðssonar, fýrrv. iþrótta-
kennara á Alcureyri, og k.h., Sigríð-
ar K. Matthíasdóttur, húsmóður og
verslunarmanns, d.2005.
Börn Steinunnar og Einars eru
Arna Kristín, f. 6.8. 1968, flautuleik-
ari og tónleikastjóri Sinfónínuhljóm-
sveitar íslands, gift Hilmari Þorsteini
Hilmarssyni, grafi'skum hönnuði
og er sonur þeirra Hilmar Starri, f.
2004, en dóttir Örnu Kristínar og
Geirs Rafnssonar er Steinunn Halla,
f. 1992; Vera, f. 11.8. 1980, félagsráð-
gjafi og blaðamaður við Fréttablaðið
en maður hennar er Kristján Hjálm-
arsson, fféttastjóri á Fréttablaðinu,
og er sonur þeirra Einar Steinn, f.
2002, auk þess sem dóttir Kristjáns er
Þórhildur, f. 1995; Gró, f. 12.4. 1988,
nemi í Svíþjóð.
Systkini Steinunnar eru Leó,
f. 23.9. 1951, kennari á Alcranesi,
kvæntur Sólveigu Reynisdóttur,
framkvæmdastjóra þjónustumið-
stöðvar Árbæjar; Hallbera, f. 28.9.
1956, skólabókavörður á Akranesi,
gift Gísla Gíslasyni, framkvæmda-
stjóra Faxaflóahafiia.
Foreldrar Steinunnar: Jóhannes
Finnsson, f. 26.6.1917, d. 15.2.1974,
bókari og sjómaður á Akranesi, og
k.h., Bjarnfríður Leósdóttir, f. 6.8-
1924, fyrrv. kennari og verkalýðsleið-
togi á Akranesi.
ÆTT
Jóhannes var bróðir Gróu Mar-
grétar Kristínar, móður Finns Torfa
Stefánssonar, tónskálds, gítarleik-
ara og fýrrv. alþm. Jóhannes var son-
ur Finns Torfa, skipstjóra og útgerð-
arm. á Flateyri, bróður Hjörleifs, afa
Árna Finnssonar, formanns Nátt-
úruverndarsamtaka Islands. Finn-
ur Torfi var sonur Guðmundar, b.
á Görðum Jónssonar. Móðir Finns
Torfa var Gróa, systir Finns í Hvilft,
föður Hjálmars, forstjóra Áburðar-
verksmiðjunnar, Ragnheiðar, fýrrv.
skólastjóra og Gunnlaugs, fýrrv.
alþm. í Hvilft. Gróa var dóttir Finns,
b. í Hvilft Magnússonar, alþm. þar,
bróður Ásgeirs, alþm. á Þingeyrum,
Torfa, alþm. á Kleifum og Ragnheið-
ar, langömmu Snorra Hjartason-
ar skálds og Hjartar tollstjóra, föður
Ragnheiðar, fyrrv. relctors MR.
Magnús var sonur Einars, dbrm.
í Kollafjarðarnesi Jónssonar, af ætt
Einars Sigurðssonar, prófasts og
skálds í Heydölum. Móðir Gróu var
Sigríður Þórarinsdóttir, b. á Vöðlum
Jónssonar, b. íUnaðsdal.
Móðir Jóhannesar var Steinunn
Jóhannesdóttir, b. á Hesti í Önundar-
firði, bróður skipstjóranna Bjarna
Hermanns og Sæmundar, Kristjáns-
sona. Móðir Steinunnar var Jónína
Sveinsdóttur frá Ósi í Bolungarvík.
Bjamffíður er systir Hallberu,
móður Ragnheiðar Ríkharðsdótt-
ur alþm., móður Ríkharðs Daða-
sonar, fýrrv. landsliðsmanns í knatt-
spyrnu. Bjarnfríður er dóttír Leós,
skipstjóra og bílstjóra á Akranesi Eyj-
ólfssonar, Sigurðssonar. Móðir Leós
var Hallbera, systir Magnúsar í Mið-
vogi, langafa Sigrúnar Magnúsdótt-
ur, forstöðumanns Sjóminjasafnsins
í Reykjavík og fyrrv. borgarfulltrúa.
Hallbera var dóttir Magnúsar, b. í
Efra-Hreppi Sigurðssonar, og Ing-
unnar Magnúsdótmr.
Móðir Bjarnfríðar var Málfríður,
dóttir Bjarna, b. í Nýlendu Vigfús-
sonar, og Málffíðar Einarsdóttur.
Steinunn og Einar Karl verða með
fjölskyldu sinni á Hótel Glym í Hval-
firði að kvöldi afmælisdagsins og
gista í Guðríðarstofu.