Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2008, Page 54
KYNNING
I
Lanqsagað lambalæri
með jógúrtkryddlegi
1 lambalæri, án lykilbeins og
sagað eftir endilöngu
Jógúrtkryddlögur:
2 dl jógúrt, hreint
2 hvítlauksgeirar, pressaðir
2 msk. engiferrót, smátt söxuð
3 msk. sítrónusafi
1 tsk. kummin
1 tsk. kóríanderfræ, steytt
% tsk. kardimommur, steyttar
% tsk. salt
3 msk. mynta, smátt söxuð
Setjið allt í skál og blandið vel
saman. Veltið lambinu upp úr
kryddleginum og geymið í kæli í
2-12 klst.
Strjúkið megnið af kryddleginum
af kjötinu og grillið á meðalheitu
grilli í 25-30 mín. Snúið kjötinu
reglulega. Berið kjötið fram með
t.d. grilluðu grænmeti ogbökuðum
kartöflum.
Dominique og Eymar mcela með
klassískum vínum, ferskum og
ungum - til dœmisfrá Bordeaux -
Chðteau de Barbe Blanche, Chóteau
Teyssier - eöa Chile, Casa Lapostolle
Cabernet Sauvignon.
(xestgjafirin