Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2008, Blaðsíða 57
DV Sakamál
FÖSTUDAGUR 23. MA( 2008 57
Sakamál
UMSJÓN: KOLBEINN ÞORSTEINSSON kolbeinn@dv.is
BANVÆIMIM HRAKI Vín inn vit útvar einliverju sinni
sagt um áfengisdrykkju. Það sannaðist á hóteli í Cadempino
i Sviss. Þrir félagar höfðu farið út að skemmta sér á dansstað
og voru í góðum gír þegar þeir komu heim á hótel um
nóttina. Og hvað er eðlilegra en að fara í hrákakeppni þegar
skapið er gott og nóttin er ung? Keppnin fólst í að hrækja sem
lengst út frá svölum herbergisins og þegar upp var staðið lá emn
i valnum. Einn var reyndar kominn undir rekkjuvoðir en hinir héldu keppni
áfram. Sá sem síðar lést tók tilhlaup að svölunum, nú skyldi tekið á þvi.
Maðurinn, tuttugu og níu ára, féll sex metra niður og dó skömmu síðar.
mmm
Parkman myrtur Innheimt-
an reyndist ekki ferð til fjár.
George Parkman var af auðugu fólki kominn og efnaðist enn frekar af lánastarfsemi.
Afleiðingar þeirrar starfsemi urðu honum að aldurtila og morðingi hans tilheyrði virt-
ustu elítu Boston-borgar, líkt og hann sjálfur.
Gas! Gas! Gas!
Óhætt er að segja að kona
ein á norðvesturhluta Sjálands
hafi ekki hugsað málið til enda.
Hún var í heimsókn hjá kunn-
ingjafólki þegar skyndilega
rann á hana æði. Konan, sem
var kófdrukkin, tók til handa-
gagns voldugan eldhúshníf og
sveiflaði honum í allar áttir,
eins og um skylmingar váeri
að ræða. Húsráðendur sáu
sitt óvænna og lögðu á flótta
og gerðu lögreglu viðvart. En
áður en lögreglan kom á stað-
inn hafði konunni tekist að
stinga hnífrium í sitt eigið enni.
Henni var þó ekki uppgjöf í
huga þegar laganna verði bar
að og þurfti að beita piparúða
til að hemja skassið. Hvort lög-
reglumennirnir hrópuðu „Gas!
Gas! Gas!" skal ósagt látið.
Ekki eingöngu mannfólk sem gistir fangelsið í Chiapas:
ASNINN Á BAK VIÐ LÁS OG SLÁ
Lögreglan í Chiapas í Mexókó er öilu vön
þegar kemur að því að handtaka fyllibyttur og
fleira fólk sem hagar sér illa á almannafæri. En
verðir laga þar á bæ hafa ekki eingöngu lent í
vandræðum með mannfólk sem ekki kann fót-
um sínum forráð þvíþeir hafa oftar en einu sinni
þurft að hafa afskipti af ferfætlingum sem vikið
hafa af hinum mjóa vegi dyggðarinnar, vegi sem
reyndar er ákvarðaður af mannskepnunni.
Um þessar mundir er í umdæmi lögreglunn-
ar í Chiapas undir lás og slá asni nokkur sem
hefur gerst sekur um árás og ofbeldi. Lögreglu-
stjórinn, Sinar Gomez, sagði að asninn hlyti
ekki frelsi fyrr en eigandi hans hefði samþykkt
að greiða sjúkrahúskostnað fórnarlambanna,
en asninn sparkaði í og beit tvo karlmenn við
búgarð á þessum slóðum.
„Hér um slóðir fer hver sá sem fremur glæp
í grjótið. Engu máli skiptir hver á í hlut," sagði
Sinar Gomez þegar fréttastofa AP hafði sam-
band við hann. Eigandi asnans, Mauro Gutierr-
ez, sagði AP að hann hygðist reyna að komast
að samkomulagi, á vinalegum nótum, við fórn-
arlömbin um greiðslu lækniskostnaðar sem er
um fjögur hundruð og tuttugu bandaríkjadalir,
eða rétt rúmar þrjátíu þúsund krónur.
Að sögn fórnarlambanna beit asninn Genaro
Vazquez í bringuna og sparkaði í Andres Hern-
andez þegar hann kom Vazquez til bjargar, með
þeim afleiðingum að hann brákaðist á ökkia.
„Allt í einu var skepnan komin ofan á okkur,
eins og hún væri með hundaæði," sagði Hern-
andez. Það þurfti sex menn til að hemja hina
ólmu skepnu.
Sem fyrr segir er þetta ekki í fyrsta skipti sem
lögreglan setur skepnur á bak við lás og slá.
Áður hefur naut verið fangelsað fyrir að eyði-
leggja kornuppskeru og tvo sölubása og árið
2006 sat hundur á bak við rimla í tólf daga eft-
ir að hafa bitið mann. Eigendur hundsins voru
sektaðir um sem nemur þrettán hundruð ís-
lenskum krónum.
George Parkman læknir var einn
af virtari íbúum Boston-borgar úm
miðja nítjándu öld, og vel þekktur.
Hann átti margar húseignir í borg-
inni, sem hann leigði út, og sást
gjarna ganga götur borgarinnar og
innheimta það sem honum bar af
leigutökum sínum.
Parkman var virtur læknir og
tilheyrði Brahmin-elítunni í Bost-
on, en þar var um að ræða mektar-
fólk sem taldist til elstu fjölskyldna
borgarinnar. Þeir atburðir sem sag-
an fjallar um náðu hámarki í bygg-
ingu Massachusetts-sjúkrahúss-
ins, en Parkman hafði einmitt gefið
land undir byggingu þess nokkr-
um árum fyrr. Sjúkrahúsbyggingin
hýsti einnig læknaskóla Harvard.
George Parkman hafði aldrei
þekkt annað en auð og velsæld enda
tilheyrði hann einni auðugustu ætt
borgarinnar. En hann var einnig
afar séður í fjármálum og hafði, eft-
ir að hann komst til manns, tekist
að ávaxta sitt pund með fjárlánum
og údeigu íbúða sinna, sem margar
hverjar stóðu vart undir nafni.
Til mikillar ólukku hafði hann
meðal annars lánað John White
Webster, prófessor í efhafræði við
skólann, töluvert fé. En ekki gekk
sem skyldi að innheimta þá skuld
og eftir því sem tíminn leið gerðist
Parkman önugri vegna þess.
Myrtur á rannsóknarstofu
George Parkman sótti Webster
heim þar sem hann var við vinnu
á rannsóknarstofu læknaskól-
ans 23. nóvember 1849 og krafðist
þess að Webster gerði upp skuld-
ina. Til handalögmála kom sem
lyktaði með því að Webster rotaði
Parkman. Nú voru góð ráð dýr og
Webster tók þá ákvörðun að klára
verkið sem hann hafði hafið og
gerði það svikalaust. Hann hlutaði
líkama Parkmans niður og faldi lík-
amshlutana í hvelfingu undir skrif-
stofu sinni.
John White Webster, líkt og
Parkman, átti mikið undir sér enda
tilheyrði hann Brahmin-elítunni.
Webster sagði lögreglunni að hann
byggi ekki yfir neinni vimeskju um
Hann hlutaði líkama Park-
m/inc níAiir a/i fnlrli /i'Irnmc.
Læknaskóli Harvard í
Boston George Parkman gaf
lóð undir byggingu skólans.
hvarf Parkmans. Lögreglan í Bost-
on hafði enga ástæðu til að álykta
að sá framburður væri annað en
sannur.
Sá fyrsti sem lögreglan hand-
tók vegna málsins var íri sem hafði
reynt að nota mtmgu dala seðil til
að greiða ferjutoll. Ástæða þess að
gmnur féll á þennan ólánsama íra
var það álit að ekki nokkur íri hefði
svo mikið fé milli handanna án
þess að hafa óhreint mjöl í poka-
horninu.
Sök bítur sekan
En Ephraim Littlefield, húsvörð-
ur í skólanum, hafði grunað Webst-
er um græsku allt frá því Parkman
hvarf. Grunur Littlefield styrkt-
ist þegar Webster stakk að honum
peningum svo hann gæti keypt
kalkún fýrir þakkargjörðarhátíðina
svo fjölskyldan gæti gert sér glað-
an dag. Ephraim Littlefield hafði
unnið við skólann í sjö ár og aldrei
nokkru sinni fyrr hafði Webster
gaukað nokkrum sköpuðum hlut
að honum. Á meðan kalkúninn
steiktist í ofninum braust Littlefield
inn í innsiglaða hvelfingu Websters
og þar blöstu við honum líkams-
leifar Georges Parkman.
Réttarhöldin yfir Webster vöktu
athygli fólks hvaðanæva úr Banda-
ríkjunum. Sextíu þúsund manns
vom viðstaddir og var fólki skipt
upp í hópa sem var skipt út úr rétt-
arsalnum á tíu mínútna fresti. Rétt-
arhöldin mörkuðu tímamót að því
leyti að aldrei fyrr höfðu tennur
verið notaðar sem sönnunargagn.
Parkman var með falskar tennur og
áberandi undirbit og í mörg ár eft-
ir dauða hans voru fölskurnar hans
til sýnis á hæðinni fýrir ofan rann-
sóknarstofu Websters.
Webster var sekur fúndinn og
skömmu áður en hann var hengd-
ur játaði hann afbrot sitt.
Flögur fyrir dóp
Nýsjálendingur reyndi að
borga fýrir snakk með marijú-
ana þegar í ljós kom að hann
hafði ekki nægt reiðufé tíl
að greiða fyrir snakk í kjóski
í Wellington. En hann hefði
betur athugað hverjir voru í
biðröðinni þega hann bar upp
þetta óvenjulega viðskiptatil-
boð, því þar stóð lögreglumað-
ur í mestu makindum og beið
þess að röðin kæmi að honum.
Hætt er við að þeir tveir
pokar af M&M og kartöfluflög-
urnar sem Wade Churchward
hugðist kaupa verði honum
dýrkeypt því lögregluþjóninum
rann blóðið til skyldunnar og
handtók hann.
Ungur
afbrotamaður
Hann var ekki hár í loft-
inu bílþjófurinn sem stal bíl
um miðja nótt í bandaríska
bænum Pontiac. Síðastliðna
miðvikudagsnótt ákvað átta
ára guttí í bænum að fara í bíl-
túr. Hann laumaðist því út af
heimili sínu og rakst á bíl sem
var í lausagangi ekki langt frá.
Pottormurinn beið ekki boð-
anna en settist undir stýri og
bakkaði út á götu. En drengur-
inn náði ekki með góðu móti
niður á bremsuna og því tókst
ekki betur tíl en svo að hann
ók ffaman á annan bíl. En
ævintýrið var ekki á enda og
áður en drengurinn gat rönd
við reist kom þriðji bíllinn að-
vífandi og var ekið inn í hinn
stolna bíl. Ekki er getið um eft-
irmál í ffétt AP af málinu.
MORÐí HARVARD