Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2008, Side 66

Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2008, Side 66
66 FÖSTUDAGUR 23. MAl 2008 Sport DV KNATTSPYRNUÁRIÐ Úrslitaleikur Meistaradeildar- innar markar lok kappleikja á milli félagsliða í Evrópu. Margt bar á góma á safaríkri knatt- spyrnuvertíð. Leikendur á stóra sviðinu stóðu ýmist und- ir væntingum eða ekki. Harm- leikur, stjörnuhrap og slæmir dómar hrjáðu suma. Aðrir fengu áhorfendur til að rísa úr sætum og hrífast sem aldrei fyrr. DV stiklaði á stóru og tók saman það athyglisverðasta á knattspyrnuárinu. BAYERN EINU NÝJU MEISTARARNIR I sex stærstu deildum Evrópu var Bayern eina nýja liðið sem hampaði meistaratitli í þýsku Bundesligunni. Á Englandi, Spáni, Ítalíu, Frakklandi og Hollandi vörðu meistaraliðin frá þvi i fyrra titlana sína. AC MILAN EKKI í MEISTARADEILDINNI Mikil vandræði einkenndu leiktíðina hjá AC Milan. Liðinu mistókst að komast í Meistara- deildina og endaði í 5. sæti ftölsku A- deildarinnar. Miklar breytingar eru í vændum en Carlo Angelotti verður áfram þjálfari liðsins. Liðið þótti of gamalt og margir leikmenn liðsins eru komnir af léttasta skeiði. FERILL RONALDOS Á ENDA? Einn skemmti- legasti knattspyrnumaður heirns um árabil má muna fífil sinn fegurri. Enn ein alvarleg meiðslin komu upp í leik AC Milan og Livorno þegar Ronaldo varð fyrir þvi að slfta krossband i hné. Alla knattspyrnuáhugamenn dreymir um að sjá hann í fyrra formi en slíkt er borin von. SVIPLEGT FRÁFALLPUERTAS Antonio Puerta, leikmaður Sevilla, lét lífið í miðjum leik gegn Getafe i spænsku úrvalsdeildinni. Hjartagalli olli láti kappans. Knattspyrnuheimurinn syrgði Puerta og þúsundir manna voru viðstaddar jarðarför hans á Spáni. RONALDINHO GEFUR EFTIR Töframað- urinn virðist hafa lent í eigin álögum. Fleiri fregnir bárust af Ronaldinho á skemmti- stöðum í Barcelona heldur en frá knattspyrnuvellinum. Óumdeilanlega besti leikmaður heims fyrir tveimur árum en hefur heldur betur átt erfitt uppdráttar að undanförnu. Er á förum frá Barcelona og þarf að rétta úr kútnum. MOURINHO REKINN Jose Mourinho sem komið hafði eins og stormsveipur inn í ensku úrvalsdeildina var rekinn af Roman Abramovich. Aldrei var lognmolla i kringum Portúgalann sem stóð við stóru orðin og gerði Chelsea tvívegis að meisturum. Eitthvað fór hann i taugarnar á eigandanum Abramovinch sem lét hann óvænt fara. KAKA BESTUR Brasilíumaðurinn Kaka var valinn besti leikmaður heims af FIFA. Lionell Messi varð annar í kjörinu en Ronaldo þriðji. Kaka var frábær i Meistaradeildinni í fyrra og leikur hans þar aflaði honum þennan heiður. ENGLAND MISSTI AF EM Steve Mc Claren, þjálfari enska landsliðsins, var látinn taka pokann sinn eftir að enska landsliðinu mistókst að komast i lokakeppni EM 2008. Leikur liðsins olli miklum vonbrigðum. Króatía og Rússland komust áfram á kostnað Englands. Leikmenn liðsins voru harðlega gagnrýndir í fjölmiðlum. Fabio Capello var ráðinn i stað McClaren og ekkert var sparaðtil. ZENIT UEFA-MEISTARI Ein óvæntustu úrslit síðari ára komu í UEFA-keppninni þegar Zenit frá Rússlandi hampaði titlinum. Vann Bayern Múnchen 4-0 í fyrri leik undanúrslitanná og sýndi þar að árangur þess er engin tilviljun. Lagði einnig Bayer Leverkusern. Rangers frá Skotlandi atti litið í Zenit frá Pétursborg i úrslitaleiknum sem endaði 2-0. CRISTIANO RONALDO BESTUR Cristiano Ronaldo tók við kyndlinum sem besti leikmaður heims. Frábært timabil kappans mun vafalitið veita honum þann heiður að verða besti leikmaður heims þegar þar að kemur. 31 mark í ensku úrvalsdeildinni og 42 mörk í öllum keppnum segja allt sem segja þarf um draumatímabil kappans. «uef* CUP ■NHul

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.