Málfregnir - 01.04.1991, Page 24

Málfregnir - 01.04.1991, Page 24
Ritfregnir eflir Ara Pál Kristinsson og Baldur Jónsson Ensk-íslensk viðskiptaorðahók. Eftir Terry G. Lacy og Þóri Einarsson. 2. útgáfa endurskoðuð og aukin. Terry G. Lacy sá um útgáfuna. Bókaútgáfan Örn og Örlygur hf. Reykjavík 1990. xxi + 525 bls. Ensk-íslensk viðskiplaorðabók eftir Terry G. Lacy og Þóri Einarsson kom fyrst út 1982 og var þá þörf nýjung í heldur fáskrúðugum orðabókakosti íslendinga. Hún hafði að geyma um 9000 orð og orðasambönd sem snerta innflutning og útflutning, kaup og sölu, banka- og tryggingarstarfsemi, vöru- flutninga, reikningshald, samskipti aðilja vinnumarkaðarins, stjórnun fyrir- tækja og fleiri svið samfélagsins. Sömu höfundar sendu frá sér íslensk- enska viðskiptaorðabók 1989 og var sagt frá henni í Málfregnum 7, bls. 27-28. Orðaforði þeirrar bókar var ekki sóttur allur beint í Ensk-íslenska viðskiptaorða- bók frá 1982 heldur var hann aukinn efni úr tímaritum, dagblöðum, við- skiptaskjölum og viðtölum. Nú hafa þau Terry G. Lacy og Þórir Einarsson endurskoðað og aukið Ensk- íslenska viðskiptaorðabók frá 1982 og hefur Terry G. Lacy einkum unnið að því. í þessum bókum liggur feiknamikil vinna og er framtak höfunda þeim mun þakkarverðara sem ekki var við sam- bærileg eldri verk að styðjast. Hin nýja Ensk-íslenska viðskiptaorða- bók er endurskoðuð og aukin með hlið- sjón af orðaforðanum í íslensk-ensku viðskiptaorðabókinni og bætt var við fjölmörgum orðum úr úrvali nokkurra íslenskra og erlendra rita. Bókin er því sömu gerðar og íslensk-ensk viðskipta- orðabók að því er varðar allt snið og orðaval. í hinni endurskoðuðu og auknu Ensk-íslensku viðskiptaorðabók eru 15000 orð og orðasambönd, ásamt drjúgum viðaukum sem greint er frá hér á eftir. Formálar eru bæði á íslensku og ensku og eru þeir að mestu leyti sam- hljóða; hinn síðarnefndi er þó aukinn stuttum kafla sem heitir „A Word to the English-Speaker Learning lcelandic“. í formálum bókarinnar er margt endur- tekið frá 1982 en stundum með breyttu orðalagi. Terry G. Lacy rekur m.a. í formálum sínum (1990) hver tilgangur bókarinnar er og hvernig staðið hafi verið að vali orða. Um tilganginn segir (bls. vii): Þessi bók var gerð til þess að aðstoða íslend- inga við að skilja sundur íslenska og enska tungu, við að skilja betur flókna gerð enskunnar og síðast en ekki síst við að við- halda góðri íslensku. Stuttur kafli í formálanum (tæplega tvær síður) heitir í íslensku gerðinni „Að tjá sig á ensku“. Það ber vitni um dirfsku höfundar að sjóða niður í svo stuttan kafla leiðbeiningar um enska málnotkun. Tæpt er á ýmsu og sumt af því sem sagt er skilur lesandann eftir hissa en engu nær, t.d. þessi málsgrein (bls. ix): Hægt er að bæta framburðinn með því að lækka röddina þegar við á. 24

x

Málfregnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.