Málfregnir - 01.04.1991, Qupperneq 31

Málfregnir - 01.04.1991, Qupperneq 31
Sitt af hverju Tvær nýjar orðanefndir Orðanefnd Stjarnvísindafélags Islands var stofnuð á almennum félagsfundi 14. desember 1990 og er tekin til starfa. I nefndinni eiga sæti: Þorsteinn Sæmundsson, formaður Einar Júlíusson Guðmundur Arnlaugsson Guðmundur Bjarnason Stjórn Leiklistarsambands íslands ákvað á fundi í desember 1990 að koma á fót nefnd til að fjalla um leiklistarorð. Nefnd- ina skipa: Jón Hjartarson, formaður Karl Guðmundsson Úlfur Hjörvar Norræna málnefndaþingið 1991 Hið árlega þing norrænu málnefndanna verður haldið í Reykjavík 23.-25. ágúst nk. Þetta þing er hið 38. í röðinni. Aðal- umræðuefni verður „Norðurlandamál gagnvart nýrri þróun í Evrópu" (Spráken i Norden inför den nya utveck- lingen i Europa). Búast má við þátttöku fulltrúa frá öllum málnefndum á Norður- löndum, Norrænni málstöð í Ósló o.fl., alls um 50-60 manns. Stjórnarfundur Norrænnar málstöðvar verður haldinn hér daginn fyrir þingið, 22. ágúst. Stjórn íslenskrar málnefndar ályktar um nýju mannanafnalögin Á fundi í stjórn íslenskrar málnefndar 9. apríl 1991 var samþykkt ályktun á þessa leið: „Samþykkt hafa verið á Alþingi lög um mannanöfn. Þar er ekki farið að til- mælum íslenskrar málnefndar um að hún eigi fulltrúa í mannanafnanefnd. Stjórnin áskilur sér rétt til að gera athugasemdir við þessar málalyktir“. 31

x

Málfregnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.