Málfregnir - 01.05.1992, Síða 32

Málfregnir - 01.05.1992, Síða 32
Sitt af hverju Ný orðanefnd í fyrrasumar var stofnuð Orðanefnd löggiltra endurskoðenda, sem hefir í hyggju að safna saman íslenskum orðum um reikningshald og fleira á verksviði endurskoðenda. Nefndina skipa: Sigurður P. Sigurðsson, formaður Helga Harðardóttir Sigurþór Ch. Guðmundsson Símon Á. Gunnarsson Stefán Svavarsson Póstáritun formanns og nefndarinnar er: Pósthólf 5051, ÍS-125 Reykjavík. Ályktun um þýðingamál Á fundi íslenskrar málnefndar, sem haldinn var á Hótel Sögu þriðjudaginn 3. mars 1992, var samþykkt þessi ályktun: „Islensk málnefnd vekur athygli á ný- legri könnun sem íslensk málstöð hefur látið gera að frumkvæði menntamála- ráðuneytisins á stöðu þýðingamála hér- lendis. Ljóst er að þörfin fyrir þýðingar, einkum á ýmiss konar nytjatextum, er mikil og knýjandi, og jafnframt er vax- andi skortur á þýðendum og túlkum með fullnægjandi sérmenntun til að þýða úr og á íslensku. Hvergi er slíka menntun að fá eins og sakir standa og engin von til að úr verði bætt til frambúðar nema íslensk stjórnvöld taki málin í sínar hendur. Þetta ástand er orðið varhugavert því að íslendingar eiga meira undir þýðing- um en margar fjölmennari þjóðir. íslensk málnefnd vill því leyfa sér að beina þeirri áskorun til menntamálaráðherra að hann skipi nefnd hið fyrsta til að undir- búa tillögur um skipulagða menntunar- braut fyrir íslenska þýðendur og túlka, þar sem höfð verði hliðsjón af sambæri- legri menntun eins og hún gerist best með öðrum þjóðum.“ íðorðasöfn á geisladiski Sænska tækniorðamiðstöðin (TNC) hefir gefið út geisladisk með gríðarstórum íðorðasöfnum frá Norðurlöndum, Evr- ópubandalaginu og Kanada. í íslenska hlutanum, sem heitir Kringla, eru orða- söfn um tölvutækni og tölfræði. Geisladiskurinn nefnist „Termdok“ og kostar um 50 þús. ísl. kr. auk virðisauka- skatts. Petta er 2. útgáfa. í fyrri útgáfu var ekki unnt af tæknilegum ástæðum að hafa íslenskt efni með. Málfregnir koma út tvisvar á ári Útgefandi: íslensk málnefnd Ritnefnd: Gunnlaugur Ingólfsson og Kristján Árnason Ritstjóri: Baldur Jónsson Ritstjórn og afgreiðsla: íslensk málstöð, Aragötu 9, ÍS-101 Reykjavík. Sími: (91) 28530, (91) 694443. Bréfasími: (91) 622699 Áskriftarverð: 600 krónur á ári Prentsmiðja Árna Valdemarssonar hf. ISSN 1011-5889 a M ÍSLENSK MÁLNEFND

x

Málfregnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.