Málfregnir - 01.12.2002, Blaðsíða 13

Málfregnir - 01.12.2002, Blaðsíða 13
löngunin aflvana var eigi nóg, heldr að hann átti jafnfrarat að safna hug og dug, þekkíng og kunnáttu, trúleik og réttleik, í einu orði sagt, verða sjálfr frjáls, og þá raundi hann með iðni og sparsemi fá safnað réttfengnum auði, er einn gefr sæla nautn og er sigrsælt verkfæri í hugrakkri hendi til að vinna að fraraför og farsæld mannsins sjálfs og mannfélagsins. Öll hugbleyði var nú farin úr brjósti hans, og með henni öll leiðindi og óánægja, eyrad og kúgun, því sú hugsun getr aldrei fengið rúm í frjálsu og hugstóru brjósti, að láta nokkru sinni bugast af eymdinni eðr kúgast af mönnunum. Unglíngrinn eltist, varð mentaðr dugandis- maðr, og kom aldrei til hugar að flýa ættjörð sína, því hann vissi vel, að Island var landa frjálsast meðan landið bygðu frjálsir menn, og svo mundi það jafnan verða.“ (Arnljótur Ólafsson 1880[1988]:10) Arnljótur leit svo á að hér á landi yrði engin byggð ef ekki væri frelsi í viðskiptum. Og þó að það þurfi ekki svo að vera, þá hygg ég þó að allir Islendingar geri ráð fyrir því að búseta hér á landi og íslensk tunga séu samofin. Því getum við framlengt niðurstöðu Arnljóts þannig: Frjáls viðskipti eru forsenda þess að íslensk tunga lifi. En ætli það gagnstæða gildi? Hefur íslensk tunga líka gildi fyrir viðskiptin? Skoðum þetta stuttlega. Jafnvel þar sem við kunnum ekkert í máli heimamanna getum við yfirleitt bjargað okkur. Stundum grípum við til annars máls sem við kunn- um slangur í og viðmælendur okkar líka. I Finnlandi grípa menn til skandinavísku- blendings, í Austur-Evrópu gengur þýskan víða en flestir Islendingar grípa eflaust fyrst til enskunnar, jafnvel í Danmörku þar sem við höfum lært mál innfæddra árum saman. Það er reyndar kostulegt að sjá íslendinga tala ensku í Kína eða á Spáni þar sem augljóst er að sá sem rætt er við skilur ekki orð í málinu. Sumir beita þá þeirri aðferð að tala hægar og hærra, þeim sem fyrir verða til lítils skilningsauka. Einum man ég eftir sem reyndi frönskuna yfirleitt á þeim alþýðumönnum pólskum sem ekki skildu ensku. Sjálfur hef ég oft- ast notað íslensku við slík tækifæri, t.d. í búðum eða á veitingastöðum. Hingað til hefur þessi samskiptaaðferð gengið ágæt- lega því þó að viðmælendur hafi í raun ekki skilið eitt einasta orð þá kemst merk- ingin með einhverju móti til skila. Þessi reynsla mín gæti því bent til þess að tungu- málakunnátta væri alls ekki nauðsynleg til þess að eiga viðskipti. En því fer þó fjarri að mér detti í hug að halda því fram að með þessari aðferð geti menn náð langt þó að með henni geti maður keypt sér minja- gripi eða fatnað. Samskiptin yrðu fljótlega býsna fábrotin ef tungumál, sem báðir tala, vantaði. Flest viðskipti eru að sjálfsögðu mun flóknari en prútt um mexíkóskar styttur eða kínverskar myndir. Ætli menn að stofna til umfangsmikilla viðskipta er það beinlínis nauðsynlegt að notað sé nákvæmt orðalag og þá auðvitað á máli sem báðir skilja. Flestir Islendingar átta sig vel á því að vegna þess hve fámenn þjóðin er og lengst af afskipt eru ekki margir út- lendingar sem tala okkar mál. Þess vegna verðum við að sætta okkur við að ekki sé talað á okkar móðurmáli í samskiptum okkar við útlendinga. Einhvern tíma þurfti ég að eiga viðræður við Norðmenn. Sá sem kom fyrstur á fundinn spurði glað- hlakkalega hvaða mál við ættum að tala á fundinum: „Skal vil snakke gammel- norsk?“ og fékk um hæl svar frá félaga mínum: „Nej, gammel-norsk gár ikke, men i Island kan vi godt lide gammel- dansk.“ Niðurstaðan varð reyndar sú að töluð var enska. Það kann að vekja upp þá spurningu hvers vegna við töluðum ekki dönsku eða skandinavísku (sem er einhvers konar hrognamál sem Islendingar telja sér trú um að allir Norðurlandabúar skilji án þess að við þurfum að fylgja nokkrum reglum um framburð eða málfræði). Flestir 13
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Málfregnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.