Málfregnir - 01.12.2002, Blaðsíða 31

Málfregnir - 01.12.2002, Blaðsíða 31
vanta orð eðr nöfn til þess er ný vísindi og kunstir útheimta, þá vona eg að slíkt eigi til frambúðar hindri nytsemi bæklíngsins." Mjög fá eða engin þeirra tvöföldu plöntunafna, sem Oddur bjó til eftir fyrrnefndum reglum, náðu fótfestu í málinu og koma þau naumast fyrir í öðrum ritum en Islenzkri grasafrœði hans. Hins vegar rötuðu mörg einnefndu tegunda- nöfnin inn í flórubækur síðari tíma og nokkur kvíslanöfn. I þessu efni skilur íslenskan sig frá flestum öðrum þjóðtungum sem héldu sig við tvínefnaregluna eins og enn má sjá í ensku, dönsku, þýsku, frönsku, ítölsku og rússnesku (í ensku og frönsku eru þrískipt nöfn ekki óalgeng). I Noregi og Svíþjóð varð hins vegar töluverð stefnubreyting í þessu efni á 20. öldinni, ef til vill fyrir áhrif frá Flóru Stefáns Stefánssonar, svo að þar eru óskipt tegundanöfn nú meginregla, a.m.k. hvað háplöntur varðar, þó að hin séu líka algeng. Arið 1881 kom út í Kaupmannahöfn bókin Islands Flora eftir Christian Gronlund sem kalla má fyrstu nútímaflóru landsins. Gronlund getur mjög oft um íslensk tegundanöfn sem hann tekur úr eldri heimildum en sneiðir greinilega hjá tvínefnum Odds Hjaltalín og verður ekki séð að hann hafi búið til nein íslensk nöfn. I formála segist hann hafa fengið aðstoð við íslensku nöfnin hjá Þorvaldi Thoroddsen og Vilhjálmi Finsen. Móritz H. Friðriksson læknir gagnrýndi þessa flórubók, einkum hvað varðar íslensku nöfnin, og birti síðan lista yfir íslenskar háplöntur í Almanaki Þjóðvina- félagsins 1883 og 1884, með réttum nöfnum, sem hann taldi vera. Er þar margt undarlegra nafna en þó segist hann aðeins taka þau sem notuð séu „í daglegu máli almennings, eða þá í bókum og handritum íslenzkra grasafræðinga, en smíða engin sjálfur...“. Stefán Stefánsson og einnefnareglan Með útkomu bókarinnar Flóra Islands eftir Stefán Stefánsson, árið 1901, var inn- leiddur nýr og þó í raun gamall siður í nafngiftum plantna á Islandi. Síðan hafa menn yfirleitt valið þann kost að gefa hverri lífveru eitt óskipt heiti eftir íslenskri málvenju. Þó er ekki laust við að menn hafi stundum fylgt þessum nafnareglum meira af tilfinningu en skilningi. Því er nauðsyn- legt að gera sér ljósa grein fyrir nafna- reglum Stefáns eins og þær birtast í Flóru hans. Fyrsta boðorð Stefáns er greinilega að hver íslensk plöntutegund skuli bera eitt íslenskt nafn (eða aðalnafn) sem helst á að einkenna hana á einhvern hátt. Sé til gamalt alþýðunafn á tegundinni skal það notað en annars skal gefa henni eitt íslenskt nafn. Hann gefur þó alloft upp tvö alþýðunöfn, t.d.fergin og tjarnaelfting fyrir Equisetum fluviatile, og beitieski og móeski fyrir E. variegatum, jafnvel þrjú á stöku stað, t.d. dýragras, arnarrót og bláin fyrir Gentiana nivalis sem hann hefur lík- lega ætlað notendum bókarinnar að velja á milli. Þetta heyrir þó til undantekninga og virðist dálítið tilviljunarkennt. Til dæmis hefur hann aðeins eitt nafn á blóðbergi sem þó á sér fjölda nafna í íslensku. Stefáni var ljóst að til þess að nöfn plantnanna gætu orðið almenningseign yrðu þau að laga sig að íslenskri málhefð. Nafnið verður því að vera hægt að bera fram og skrifa sem eitt orð. Þessi regla finnst okkur nú svo sjálfsögð að við eigum bágt með að ímynda okkur annan möguleika en tvínefnareglan á 19. öldinni sýnir að þetta var ekki sjálfgefið. Þrátt fyrir þetta vill hann samhæfa nöfnin tvínefnareglu Linnés. Annað boðorð hans er því að hver ættkvísl skuli hljóta eitt fremur stutt íslenskt nafn og það skal á einhvern hátt vera hluti af nöfnum allra tegunda viðkomandi kvíslar. Þar er aftur komið stofnheitið sem Oddur innleiddi en nú skal það vera samtengt viðurnefninu. 31
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Málfregnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.