Málfregnir - 01.12.2002, Síða 35

Málfregnir - 01.12.2002, Síða 35
um annað að gera en innleiða stofnheiti fyrir kvíslirnar, á sama hátt og Stefán hafði gert fyrir háplöntur. Þannig hefur Bergþór Jóhannsson gefið öllum mosum, sem hér vaxa, íslensk nöfn, Hörður Kristinsson hefur nefnt íjölmargar fléttutegundir og höfundur þessarar greinar hefur gefið flestum stórsveppum islensk heiti. Þá hafa allnokkrar tegundir þörunga fengið íslensk nöfn. Olíklegt er þó að nokkurn tíma verði allur hinn mikli sægur smásærra sveppa og þörunga nefndur upp á vora tungu og sama á við um marga smádýraflokka. Almennt má segja að við þessar nafngiftir hafi nafnareglum Stefáns Stefánssonar verið fylgt. Bergþór Jóhanns- son gengur lengst í því efni. Hann hefur valið stutt og einföld stofnheiti á allar kvíslir íslenskra mosa og við þau skeytir hann orðinu -mosar en býr svo til tegundanöfn með fyrri hluta kvíslarnafns sem seinni lið. Dæmi: Snúðmosar (Tortula), með tegundunum veggjasnúður, dvergsnúður, urðarsnúður, skorusnúður, lautasnúður, hœrusnúður, fjörusnúður. Hann ritar kvíslarnöfnin í fleirtölu eins og Bjarni Sæmundsson hafði áður gert í spendýrabókum sínum (sjá síðar). Bergþór gerði grein fyrir kvíslanöfnum sínum í sérstökum ritlingi (Tillögur um nöfn á íslenskar mosaœttkvíslir, 1985) og mun það vera eina ritið af þvi tagi á íslensku. Bergþór fylgir alþjóðlegum nafnareglum einnig að því leyti að hann kennir ættir og ættbálka jafnan við þá kvísl sem útvalin er sem nafngjafi í fræðinöfnum þeirra en áður hafa íslenskir náttúru- fræðingar varla fylgt neinni reglu í því efni. Greinarhöfundur hefur að mestu leyti fylgt sömu stefnu í nafngiftum íslenskra sveppa enda átti hann þátt í að móta hana með Bergþóri á sínum tíma og notaði jafnan endinguna -sveppir eða -sveppur í kvíslanöfnum eins og fram kemur í Sveppakverinu (1979) og víðar. I nýrri sveppabók, sem hann hefur í smíðum, er hins vegar leitast við að nota fleiri endingar eða sleppa þeim alveg. Dæmi: Hnefa- sveppur (Russula), með tegundunum grœnhnefia, gulhnefia, birkihnefia o.s.frv., er nú bara nefndur Hnefla en tegundanöfnin eru óbreytt. Hnefluætt kemur þá í stað Hnefasveppsættar o.s.frv. sem er styttra og þjálla. Hörður Kristinsson hefur sjaldan notað endingarnar -skóf eða -fiétta á fléttukvíslir en hann hefur fram til þessa lagt áherslu á að nefna tegundir en ekki kvíslir þó að hann fylgi að mestu sömu reglum og Bergþór með tegundanöfnin. Lítið af þessum fléttunöfnum hefur birst opinber- lega nema helst í rannsóknaskýrslum. Ymsir ljöru- og sæþörungar eiga sér gömul íslensk heiti en auk þess hafa þeir Karl Gunnarsson og Sigurður Jónsson gefið allnokkrum tegundum sæþörunga íslensk nöfn. Hafa þeir í meginatriðum fylgt nafnareglum Stefáns í því efni (Sigurður Jónsson og Karl Gunnarsson 1978). I bók greinarhöfundar Veröldin í vatninu (1979) var hins vegar lögð mest áhersla á að nefna flokka, ættbálka og ættir vatnaþörunga en nýnefni kvísla og tegunda eru fá og lítt kerfisbundin. Nafngiftir á dýrum (ágrip) Ekki verður hjá því komist að geta hér aðeins um íslenskar nafngiftir á dýrum því að nokkurt samspil eða víxlverkun hefur átt sér stað milli grasa- og dýrafræðinga í þessu efni eins og eðlilegt er. Bjarni Sæmundsson fylgdi nafnareglum Stefáns í hryggdýrabókum sínum (íslensk dýr /-///, 1926-1936) að svo miklu leyti sem það var hægt vegna gömlu nafnanna. Hann tók upp þá nýbreytni að rita kvíslanöfn í fleirtölu og hafa sumir grasafræðingar tekið það eftir honum. I ritinu Sœlindýr við lsland (1919), eftir Guðmund G. Bárðarson, kom fyrst fram sú nýbreytni að mynda fyrri hluta tegunda- nafna sömu kvíslar með orðum sem standa 35

x

Málfregnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.