Málfregnir - 01.12.2002, Qupperneq 53

Málfregnir - 01.12.2002, Qupperneq 53
umheiminn á eigin þjóðtungu því að í viðskiptum eru eðlilega gerðar aðrar málfarskröfur en í bókmenntum. Islend- ingum og öðrum smáþjóðum er það í lófa lagið að læra ensku nógu vel til þess að geta stundað öll heimsins viðskipti með góðum árangri án þess að vanrækja móðurmálið. Hér er komið að kjarna málsins, þykist ég vita: rækt við móðurmálið og árangur í viðskiptum þurfa ekki að rekast á. Þetta eru falskar andstæður. Styrkur smáþjóða felst þvert á móti meðal annars í því að þær þurfa að ná góðum tökum á ensku og öðrum málum og þessi þörf opnar þeim nauðsynlega útsýn til umheimsins. Enskumælandi stórþjóðir geta á hinn bóginn freistast til að láta það hjá líða að læra önnur tungumál og geta því orðið af viðskiptum og verðmætum menningartengslum við aðrar þjóðir. Enda þótt gott vald þjóðar á ensku eða öðrum heimsmálum geti örvað viðskipti og efnahagslíf eins og sumar rannsóknir hagfræðinga virðast sýna, þá er einnig hægt að hugsa sér hið gagnstæða: að staðföst rækt við þjóðtunguna umfram önnur mál sé til marks um þrautseigju einnig á öðrum sviðum - þess háttar þrautseigju sem getur skilað mönnum góðum lífskjörum til langs tíma litið. Athuganir mínar á ýmsum helstu gangráðum hagvaxtar um heiminn síðan 1965 virðast mér að svo stöddu benda til þess að þjóðir, sem halda tryggð við eigin tungu frekar en að tileinka sér eitthvert heimsmál (ensku, frönsku, spænsku o.s.frv.), búi jafnan við mun örari hagvöxt en hinar að öðru jöfnu. Reynist þetta rétt, þá getur málrækt beinlínis borgað sig. Og svo er eitt enn að endingu. Móðurmálið er ekki dautt áhald eins og rokkur, skilvinda, gjaldmiðill eða grammó- fónn. Tungan er þvert á móti líftaug fólksins sem byggir þetta land. Þjóðtungan er að minni hyggju hafin yfir verðlagningu á markaði. Asjóna Islands væri öll önnur nú og fátæklegri ef forfeður okkar hefðu lagt upp laupana og leyft íslensku að víkja fyrir vondri dönsku svo sem talsverð brögð voru að í Reykjavík og öðrum bæjum landsins fyrir 200 árum. Hefði svo farið, þá vantaði okkur nú styrkasta strenginn í menningu þjóðarinnar. Eg efast um að Island hefði þá getað haldið óskertu aðdráttarafli gagnvart þeim þúsundum æskufólks sem halda áfram að flykkjast til annarra landa ár fram af ári að mannast og mennta sig og hverfa síðan aftur hingað heim til starfa. Þetta fólk má ísland aldrei missa. Heimild Benedikt Jóhannesson. 1998. Hvað kostar að tala íslensku? Greinar af sama meiói helgaðar Indriða Gíslasyni sjötugum. Bls. 303-316. Rannsóknarstofnun Kenn- araháskóla Islands, Reykjavík. 53
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Málfregnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.